Fimm umsækjendur taldir hæfastir

For­sæt­is­ráð­herra skipar í stöðu aðstoð­ar­seðla­banka­stjóra.

Fimm umsækj­endur um stöðu aðstoð­ar­seðla­banka­stjóra eru taldir hæf­astir, en nefnd sem metur hæfi umsækj­enda hefur skilað af sér nið­ur­stöðum sínum til Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra sem skipar í starfið.

Frá þessu er greint í Við­skipta­Mogg­anum í dag.

Í hæfn­is­nefnd­inni sitja: Friðrik Má Bald­urs­son, pró­fessor við Háskól­ann í Reykja­vík sem er for­maður hennar. Hann er skip­aður í nefnd­ina af for­sæt­is­ráð­herra án til­nefn­ingar. Þórunn Guð­munds­dóttir, hæsta­rétt­ar­lög­maður og vara­for­maður banka­ráðs SÍ sem skipuð er sam­kvæmt til­nefn­ingu banka­ráðs­ins, og Eyjólfur Guð­mundss­son, rektor Háskól­ans á Akureyri, sem skip­aður er sam­kvæmt til­nef­in­ingu sam­starfs­nefndar háskóla­stigs­ins.

Arnór Sig­hvats­son gegnir nú stöð­unni, en hann hættir 1. júlí, þar sem skip­un­ar­tími hans er að renna út.

Umsækj­end­urnir fimm sem komust í flokk­inn „mjög vel hæfir“ eru dr. Daníel Svav­ars­son, for­stöðu­maður hag­fræði­deildar Lands­banka Íslands, Guðrún Johnsen, lektor og dokt­or­snemi í hag­fræði, Jón Þór Sig­ur­geirs­son, fram­kvæmda­stjóri alþjóða­sam­skipta við SÍ, Rannveig Sig­urð­ar­dóttir, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri hag­fræði- og pen­inga­stefnu­sviðs SÍ, og Þor­steinn Þor­geirs­son, ráð­gjafi seðla­banka­stjóra.

Umsækj­end­urnir tveir sem hæfn­is­nefndin taldi vel hæfa á eftir hinum fimm mjög vel hæfu eru þeir dr. Tryggvi Guð­munds­son, hag­fræð­ingur sem starfar sem full­trúi Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins í London, og Vil­hjálmur Bjarna­son, hag­fræð­ingur og fyrrum alþing­is­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Í þriðja flokknum og hæfa telur nefndin vera þá Konráð S. Guð­jóns­son, hag­fræð­ing Við­skipta­ráðs Íslands, dr. Lúðvík Elíasson, starfs­mann Seðla­banka Íslands, dr. Ólaf Mar­geirs­son, sér­fræð­ing hjá Zurich Insurance, og Stefán Hjalta Garð­ars­son, reikni­verk­fræð­ing og frum­kvöðul, að því er fram kemur í Við­skipta­Mogg­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár