Tólf sóttu um stöðu aðstoðarseðlabankastjóra

Fyrr­ver­andi þing­maður er á meðal umsækj­enda um stöðu aðstoð­ar­seðla­banka­stjóra. For­sæt­is­ráð­herra mun skipa í stöð­una.

Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri hættir síðar á þessu ári.
Arnór Sig­hvats­son aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri hættir síðar á þessu ári. Mynd: Seðlabankinn.

Alls sóttu tólf um stöðu aðstoð­ar­seðla­banka­stjóra sem aug­lýst var til umsóknar 21. febr­úar síð­ast­lið­inn. Umsókn­ar­frestur rann út 19. mars. Á meðal þeirra sem sóttu um stöð­una er Vil­hjálmur Bjarna­son, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Guðrún Johnsen, hag­fræð­ingur og fyrr­ver­andi stjórn­ar­maður í Arion banka, Konráð S. Guð­jóns­son, hag­fræð­ingur Við­skipta­ráðs, Ólafur Mar­geirs­son hag­fræð­ingur, Daníel Svav­ars­son, for­stöðu­maður Hag­fræði­deildar Lands­bank­ans, Rannveig Sig­urð­ar­dóttir, stað­geng­ill aðal­hag­fræð­ings Seðla­banka Íslands og aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri hag­fræði og pen­inga­stefnu bank­ans, og Jón Þ. Sig­ur­geirs­son, fram­kvæmda­stjóri alþjóða­sam­skipta og skrif­stofu banka­stjóra hjá Seðla­banka Íslands. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins.

Arnór Sig­hvats­son hefur tví­vegis verið skip­aður aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri og má ekki sækja aftur um starfið sam­kvæmt lögum. Þegar starfið var aug­lýst kom fram að umsækj­endur skyldu hafa lokið há­skóla­prófi í hag­fræði eða tengd­um grein­um, og búa yfir víð­tækri reynslu og þekk­ingu á fjár­mála­starf­semi og efna­hags- og pen­inga­mál­um. Þá var gerð krafa um stjórn­un­ar­hæfi­leika og hæfni í mann­leg­um sam­skipt­um. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra mun skipa í starfið. Fyrst mun hún skipa nefnd til að meta hæfi umsækj­enda, en nið­ur­staða hæfn­is­nefndar verður ráð­gef­andi fyrir for­sæt­is­ráð­herra.

Umsækjendurnir um starfið eru:

Daníel Svav­ars­son, hag­fræð­ingur.

Guðrún Johnsen, hag­fræð­ingur.

Stefán Hjalti Garð­ars­son, reikni- og fjár­mála­verk­fræð­ingur.

Jón Þ. Sig­ur­geirs­son, við­skipta­fræð­ingur.

Konráð S. Guð­jóns­son, hag­fræð­ingur.

Ludvik Elíasson, hag­fræð­ingur.

Ólafur Mar­geirs­son, hag­fræð­ingur.

Rannveig Sig­urð­ar­dóttir, hag­fræð­ingur.

Stefán Jóhann Stef­áns­son, hag­fræð­ingur.

Tryggvi Guð­munds­son, hag­fræð­ingur.

Vil­hjálmur Bjarna­son, við­skipta­fræð­ingur.

Þor­steinn Þor­geirs­son, hag­fræð­ingur.

[adspot]Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri hefur einnig verið skip­aður tví­vegis í sitt starf og mun láta af störfum í ágúst á næsta ári. Því verður nýr seðla­banka­stjóri skip­aður árið 2019. Már sagði í við­tali við sjón­varps­þátt Kjarnans fyrr í mán­uð­inum að hann hlakk­aði mjög til að hætta. Már sagði enn fremur að þótt nægt fram­boð sé af fólki sem telur sig geta orðið næsti seðla­banka­stjóri þá sé ekki víst að raun­veru­legt fram­boð af kandídötum í starfið sé mik­ið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár