Reglugerð um útlendinga óbreytt eftir fund ráðherranna

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra átti fund með Sigríði Andersen dóms­mála­ráð­herra vegna reglu­gerðar um útlend­inga­mál sem þrengir að rétti hæl­is­leit­enda og Rauði kross­inn lýsti áhyggjum yfir. Engar upp­lýs­ingar fást um nið­ur­stöðu fund­ar­ins.

Engar breyt­ingar hafa verið gerðar né heldur boð­aðar á nýrri reglu­gerð um útlend­inga sem dóms­mála­ráð­herra setti í mars og þrengir að mati Rauða kross­ins á túlkun á því hvenær sér­stakar ástæður eigi við í málum umsækj­enda um alþjóð­lega vernd og hvenær beri að taka mál sér­stak­lega við­kvæmra ein­stak­linga til efn­is­legrar með­ferðar. For­sæt­is­ráð­herra hitti dóms­mála­ráð­herra á fundi, en ekki fæst upp­gefið hvort málið var sér­stak­lega rætt þar.

[links]Kjarninn greindi frá því í mars að Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefði óskað eftir sam­tali við Sigríði Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra vegna máls­ins og vildi fara nákvæm­lega yfir gagn­rýni Rauða kross­ins og hvernig rétt sé að bregð­ast við því. Hún ítrek­aði í svari sínu í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi sér­stak­lega að í kjarna útlend­inga­lag­anna eigi mannúð að vera leið­ar­ljós í mót­töku flótta­fólks og ekki síst barna. Katrín sagði einnig að henni hafi verið ókunn­ugt um efni reglu­gerð­ar­innar þegar hún var kynnt.

Ekki fást upp­lýs­ingar frá ráðu­neyt­inu hvort málið var rætt eða hvort fund­ur­inn yfir höfuð sner­ist um þetta mál, en sjá má á heima­síðu for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins þar sem finna má upp­lýs­ingar um dag­skrá ráð­herra, að fundur milli Katrínar og Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra fór fram fimmtu­dag­inn 5. apríl og stóð í klukku­tíma.

Rauði kross­inn gerði alvar­legar athuga­semdir við þröng skil­yrði reglu­gerð­ar­innar sem gerðar voru fyrir því að taka megi umsókn til efn­is­með­ferðar vegna heilsu­fars­á­stæðna. Hingað til hafi verið lagt ein­stak­lings­bundið mat á heilsu umsækj­enda og hvaða áhrif end­ur­send­ing hefur á heilsu þeirra, óháð því hvort heil­brigð­is­kerfi í við­töku­ríki er í stakk búið til að veita við­kom­andi full­nægj­andi með­ferð. Reglu­gerðin taki hins vegar fram í dæma­skyni að þeir ein­stak­lingar sem geti fallið þarna undir séu umsækj­endur sem glíma við mikil og alvar­leg veik­indi, gerð er krafa um skyndi­legan og lífs­hættu­legan sjúk­dóm og að með­ferð við honum sé aðgengi­leg hér á landi en ekki í við­töku­ríki.

„Í kafla reglu­gerð­ar­innar sem fjallar um sér­við­mið er varðar börn og ung­menni er tekið fram að þau við­mið sem komi fram í reglu­gerð­inni (1. og 3-7. mgr.) eigi jafn­framt við um börn. Þannig virð­ist gert ráð fyrir að börn sem eru haldin sjúk­dómi sem ekki nær þeim alvar­leika­þrös­k­uldi að telj­ast skyndi­legur og lífs­hættu­legur skuli end­ur­send til við­töku­rík­is, jafn­vel þó að for­eldrar barns­ins muni þurfa að greiða fyrir með­ferð við sjúk­dómnum í við­töku­ríki, án þess að frekara mat fari fram á ein­stak­lings­bundnum aðstæðum barns­ins,“ segir í frétt Rauða kross­ins um málið frá því í mars.

Rauði kross­inn telur að efni nýrrar reglu­gerðar gangi að miklu leyti gegn almennri túlkun og skýr­ingu á lögum um útlend­inga, mark­miðum þeirra og athuga­semdum í grein­ar­gerð með frum­varpi sem varð að núgild­andi lögum um útlend­inga. Þá feli ákvæði reglu­gerð­ar­innar í sér aft­ur­för og skerð­ingu á rétt­indum umsækj­enda um alþjóð­lega vernd.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er enn sem komið er komin lítil reynsla á fram­kvæmd sam­kvæmt reglu­gerð­inni. Vísað hafi verið til hennar í ákvörð­unum og úrskurðum, en óvíst er enn hvort hún hafi haft úrslita­á­hrif og enn eigi þau mál eftir að rata til kæru­nefndar útlend­inga­mála. Rauði kross­inn bíður þess að sjá með hvaða hætti hún not­ast við hina nýju heim­ild í reglu­gerð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár