Kallar dómsmálaráðherra til sín vegna flóttamannamála

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hyggst kalla Sigríði Andersen dóms­mála­ráð­herra á sinn fund til að ræða nýja reglu­gerð sem þrengir að túlkun reglna sem gilda um alþjóð­lega vernd.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hyggst kalla Sigríði Andersen dóms­mála­ráð­herra á sinn fund til að ræða nýja reglu­gerð sem þrengir að túlkun reglna sem gilda um alþjóð­lega vernd.

Þetta kom fram í svari Katrínar við fyr­ir­spurn Loga Ein­ars­sonar for­manni Sam­fylk­ing­ar­innar á Alþingi í morgun. Logi spurði Katrínu út í þessa nýju reglu­gerð, sem Rauði kross­inn segir þrengja að túlkun um hvenær sér­stakar ástæður eigi við í málum umsækj­enda um alþjóð­lega vernd og hvenær beri að taka mál sér­stak­lega við­kvæmra ein­stak­linga til efn­is­legrar með­ferðar.

Logi sagði dóms­mála­ráð­herra hafa hunsað vilja lög­gjafans full­kom­lega með nýrri reglu­gerð. „Veik börn sem áður hefðu átt mögu­leika á skjóli og öryggi verða nú send úr landi.“ Hann spurði hvað Katrínu fynd­ist um þessa reglu­gerð og sagði þetta „ófor­skammað, ómann­úð­legt, kald­rifjað og hlýtur að vera ísköld vatns­gusa beint framan í Vinstri græn sem talað hafa fyrir meiri mannúð í þessum mála­flokki. Nú reynir virki­lega á hvort mál­flutn­ingur þeirra eru bara orðin tóm.“

Katrín sagð­ist ekki hafa vitað af þess­ari reglu­gerð. Hún hafi óskað eftir sam­tali milli for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins til að fara yfir gagn­rýni Rauða kross­ins og hvernig sé rétt að bregð­ast við.

Rauði kross­inn hefur gert alvar­legar athuga­semdir við þröng skil­yrði reglu­gerð­ar­innar sem eru fyrir því að taka megi umsókn til efn­is­með­ferðar vegna heilsu­fars­á­stæðna. Hingað til hafi verið lagt ein­stak­lings­bundið mat á heilsu umsækj­enda og hvaða áhrif end­ur­send­ing hefur á heilsu þeirra, óháð því hvort heil­brigð­is­kerfi í við­töku­ríki er í stakk búið til að veita við­kom­andi full­nægj­andi með­ferð. Reglu­gerðin taki hins vegar fram í dæma­skyni að þeir ein­stak­lingar sem geti fallið þarna undir séu umsækj­endur sem glíma við mikil og alvar­leg veik­indi, gerð er krafa um skyndi­legan og lífs­hættu­legan sjúk­dóm og að með­ferð við honum sé aðgengi­leg hér á landi en ekki í við­töku­ríki.

„Í kafla reglu­gerð­ar­innar sem fjallar um sér­við­mið er varðar börn og ung­menni er tekið fram að þau við­mið sem komi fram í reglu­gerð­inni (1. og 3-7. mgr.) eigi jafn­framt við um börn. Þannig virð­ist gert ráð fyrir að börn sem eru haldin sjúk­dómi sem ekki nær þeim alvar­leika­þrös­k­uldi að telj­ast skyndi­legur og lífs­hættu­legur skuli end­ur­send til við­töku­ríkis, jafn­vel þó að for­eldrar barns­ins muni þurfa að greiða fyrir með­ferð við sjúk­dómnum í við­töku­ríki, án þess að frekara mat fari fram á ein­stak­lings­bundnum aðstæðum barns­ins,“ segir í frétt Rauða kross­ins.

Rauði kross­inn telur að efni nýrrar reglu­gerðar gangi að miklu leyti gegn almennri túlkun og skýr­ingu á lögum um útlend­inga, mark­miðum þeirra og athuga­semdum í grein­ar­gerð með frum­varpi sem varð að núgild­andi lögum um útlend­inga. Þá feli ákvæði reglu­gerð­ar­innar í sér aft­ur­för og skerð­ingu á rétt­indum umsækj­enda um alþjóð­lega vernd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár