Örveruflóran í sveit og borg

Lífs­stíll getur haft gríð­ar­leg áhrif á örveruflór­una í lík­ama okkar.

Þó bakt­er­íur hafi ekki alltaf gott orð á sér þá sam­anstendur lík­ami okkar af stórum hluta af slíkum frumum. Við búum í mjög mik­il­vægu sam­lífi með alls kyns bakt­er­íum á og í lík­ama okkar sem sífellt er að sanna gildi sitt betur.

Bakt­er­íuflóran í melt­ing­ar­færum okkar spilar lyk­il­hlut­verk í líðan okkar og hefur áhrif á þróun fjöl­margra sjúk­dóma. Sam­setn­ing örveruflór­unnar ræðst af miklu leyti af lífs­stíl okkar eins og hvað við setjum í okkur og á og hvort við stundum reglu­lega hreyf­ingu. Jafnvel búseta getur haft áhrif á bakt­er­í­urnar.

Ný rann­sókn sem birt var í Cell Reports sýnir að búseta hefur áhrif á örveruflóru. Við­fangs­efni rann­sókn­ar­innar voru Níger­íu­búar sem ann­ars vegar búa í borg og hins vegar í sveit. Rann­sóknin náði til bæði smá­barna og full­orð­inna og gefur hún því mun ítar­legri sýn á myndun örveruflór­unnar en svip­aðar eldri rann­sóknir.

Þegar örveruflóra og efna­skipta­eig­in­leikar ein­stak­linga frá sveit og borg voru metin kom í ljós að mik­ill munur var á örveruflór­unni sem end­ur­spegl­að­ist í þeim land­svæðum sem þau bjuggu á. Þetta átti bæði við um full­orðna ein­stak­linga sem og börn, undir þriggja ára aldri.

Fæðu­valið er mis­jafnt eftir því hvar ein­stak­lingur býr í Nígeríu, að miklu leiti skýrist það af fram­boði á mis­mun­andi fæðu­teg­undum. Þessi munur kemur mjög skýrt fram í örveruflór­unni og það mjög snemma á ævi­skeið­inu. Þó örveruflóran sé einnig af stórum hluta sam­eig­in­leg, milli búsvæða, eru ákveðnir bakt­er­íu­hópar sem sýna skýran mun milli ein­stak­linga í sveit og í borg.

Þessi rann­sókn sýnir að örveruflóran skil­grein­ist mjög snemma á lífs­leið­inni og að lífs­stíll okkar getur haft gríð­ar­lega mikil áhrif á hana. Það er mik­il­vægt að passa vel upp á bakt­er­í­urnar okkar, þær eru hér til að hjálpa okkur.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár