Hvaða gagn gera vítamín?

Er kannski bara lang­best að passa að borða hollt og umfram allt fjöl­breytt?

Vítamíntöflur og stein­efni eru gjarnan notuð til að bæta okkur upp þau nær­ing­ar­efni sem við teljum okkur ekki fá úr fæð­unni. Hvaða gagn allar þessar töflur gera hefur löngum verið bit­bein meðal manna en meðan mörgum þykir vítamíntafla á morgn­anna lífs­nauð­syn­leg segja aðrir hana lítið sem ekk­ert gera.

Í rann­sókn sem birt var í Journal of the American College of Cardiology var leit­ast við að finna svör við því hvaða áhrif vítamín hafa á lík­amann. Hér var aðal­lega horft til hjarta- og æða­sjúk­dóma, þ.e. hvort inn­taka vítamína (A, B1, B2, B3 (níasín), B6, B9 (fól­in­sýra), C, D og E vítamín og beta-karótín) eða stein­efna (kalk, járn, zink, magnesíum og selen) hefði áhrif á áhættu ein­stak­linga til að upp­lifa ein­hvers konar kvilla tengdum hjarta- og æða­kerf­inu.

Til að meta áhrifin var rúm­lega 100 rann­sókn­ar­greinum um efnið safnað saman og nið­ur­stöður þeirra skoð­aðar. Þegar bornar voru saman áður­nefndar for­sendur, þ.e. ákveðin vítamín/stein­efni og hjarta- og æða­tengdir kvillar, kom í ljós að inn­taka vítamína hefur heilt yfir engin áhrif á heilsu, hvorki nei­kvæð né jákvæð. Eina vítamínið sem virt­ist draga úr líkum á hjarta- og æða­sjúk­dómum var fól­in­sýra.

Hins vegar sýndi inn­taka andox­un­ar­efna og níasín jákvæða fylgni við dauðs­föll, af hvaða tagi sem er. Utan þess­ara tveggja atriða fund­ust engin merki um nokkur áhrif þess að taka inn vítamín. A.m.k. ekki þegar horft er til hjarta- og æða­sjúk­dóma.

Þá situr eftir hjá manni sú vanga­velta hvernig best sé að ná ráð­lögðum dag­skömmtum okkar í hinum ýmsu vítamínum. Líklega er lang­best að passa að borða hollt og umfram allt fjöl­breytt. Ef ein­hver ótt­ast að við­kom­andi er ekki að fá öll nauð­syn­leg nær­ing­ar­efni úr matnum er hægt að prófa vítamíntöflur, en lík­lega er lang best að leita álits sér­fræð­inga sem geta bæði metið öll nær­ing­ar­efni í blóði sem og ráð­lagt með við­brögð við hvers konar skorti.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár