Skæð veira skýtur upp kollinum á Indlandi

Nipah veiran greind­ist fyrst á Indlandi árið 2001, þá í Bangla­desh. Síðan þá hefur hún reglu­lega skotið upp koll­inum í land­inu í litlum far­öldrum. Ekki hefur tek­ist að þróa bólu­efni gegn henni.

Talið er að í það minnsta 14 ein­stak­lingar í Kerala fylki Indlands hafa látið lífið látið lífið af völdum veiru sem kölluð er Nipah veiran. Fleiri liggja á sjúkra­húsi með óstað­fest til­felli.

Nipah veiran greind­ist fyrst í mönnum árið 1998 en ekki hefur tek­ist að þróa bólu­efni né áhrifa­ríkar með­ferðir gegn henni. Veiran er sér­stak­lega skæð og getur dán­ar­tíðni smit­aðra verið á bil­inu 40% to 75%. Vegna þessa er veiran á lista Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­ar­innar yfir þær veirur sem stofn­unin telur að skuli vera í for­gangi í rann­sóknum. Aðrar veirur á list­anum eru meðal ann­ars Ebóla og Zika veiran.

Nipah veiran getur borist frá dýrum til manna og eru ávaxta­leð­ur­blökur nátt­úru­legir hýslar sjúk­dóms­ins. Önnur dýr geta einnig borið sjúk­dóm­inn með sér sem milli­hýslar auk þess sem dæmi eru um að veiran hafi borist frá manni til manns. Þegar veiran kom fyrst fram á sjón­ar­sviðið smit­uð­ust hátt í 300 manns í Malasíu af veirunni og lét­ust yfir 100. Í það skiptið barst veiran í menn frá svínum.

Nipah veiran greind­ist fyrst á Indlandi árið 2001, þá í Bangla­desh. Síðan þá hefur hún reglu­lega skotið upp koll­inum í land­inu í litlum far­öldrum. Til­fellin sem greinst hafa á síð­ustu vikum tak­markast við bæinn Kozhikode í Kerala hér­aði Suður-Indlands. Reynt er að tak­marka útbreiðslu sjúk­dóms­ins og er talið að það hafi tek­ist.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár