Framsýn samþykkir líka vantraust á Gylfa

Framsýn hefur fetað í fót­spor VR og lýst yfir van­trausti á for­seta ASÍ. Félagið segir með ólík­indum að ASÍ skuli verja ofur­launa­hækk­anir til efsta lags­ins en vara verka­fólk við því að fylgja eftir launa­kröfum sínum.

ÚR kröfugöngu ASÍ 1. maí síðastliðinn.
ÚR kröfu­göngu ASÍ 1. maí síð­ast­lið­inn. Mynd: Bára Huld Beck

Aðal­fundur stétt­ar­fé­lags­ins Fram­sýnar sam­þykkti í gær­kvöldi van­traust á Gylfa Arn­björns­son, for­seta Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ). Félagið fet­aði þar með í spor VR, stærsta stétt­ar­fé­lags lands­ins, og Verka­lýðs­fé­lags Akranes sem gerðu slíkt hið sama í síð­ustu viku.

[links]Í sam­þykkt Fram­sýnar segir m.a.: „Það er með ólík­indum að Alþýðu­sam­band Íslands skuli leyfa sér að verja ofur­launa­hækk­anir til emb­ætt­is­manna þjóð­ar­innar, for­stjóra fyr­ir­tækja og aðila í fjár­mála­geir­anum með því að berja niður sam­taka­mátt verka­fólks í land­inu með áróð­urs­aug­lýs­ingum. Samtök sem eiga að setja mál­stað vinn­andi fólks ofar öllu.

Það að vara verka­fólk við því að fylgja eftir kröfum sínum er und­ar­leg hug­mynda­fræði. Sú túlkun for­ystu­manna laun­þega á því að það séu ein­ungis kaup­kröfur þeirra sem skapa þjóð­arauð­inn sem leiða af sér óða­verð­bólgu og ólgu á íslenskum vinnu­mark­aði er með öllu óskilj­an­leg. Kaup­máttur launa sé það sem menn eigi að horfa til, annað skipti ekki máli.“

Þegar VR sam­þykkti van­traust á Gylfa fyrir fimm dögum síðan kom fram í yfir­lýs­ingu stjórnar stétt­ar­fé­lags­ins að hún telji ekki að Gylfi hafi rækt það meg­in­hlut­verk sitt að taka mál­stað félags­manna aðild­ar­fé­laga ASÍ og tryggja að hags­munir þeirra séu ætið efstir á blaði. „Þrátt fyrir skýra kröfu gras­rót­ar­innar innan aðild­ar­fé­laga ASÍ um breyttar áherslur og rót­tæk­ari verka­lýðs­bar­áttu hefur for­seti ASÍ kosið að snið­ganga þær kröfur og þær breyt­ingar sem orðið hafa í for­ystu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og notað til þess rödd Alþýðu­sam­bands­ins. For­seti ASÍ nýtur því ekki trausts til að leiða við­ræður við stjórn­völd eða Sam­tök atvinnu­lífs­ins fyrir okkar hönd og mun ekki tala í umboði okk­ar.

Verka­lýðs­fé­lag Akraness lýsti yfir van­trausti á Gylfa 24. maí síð­ast­lið­inn og í yfir­lýs­ingu stjórnar þess sagði m.a. að það væri „ bjarg­föst skoðun stjórnar Verka­lýðs­fé­lags Akraness að for­seti ASÍ hafi á liðnum miss­erum og árum ítrekað unnið gegn hags­munum félags­manna Verka­lýðs­fé­lags Akraness og skuld­settum heim­ilum þessa lands.“

[adspot]Kjör­tíma­bil Gylfa sem for­seta ASÍ rennur út í haust og búist er fast­lega við mót­fram­boði frá þeim stétt­ar­fé­lögum sem gengið hafa í gegnum for­ystu­skipti und­an­farin miss­eri þar sem for­ystu­fólk með rót­tæk­ari afstöðu til kjara­bar­áttu hafa tekið við. Þar ber helst að nefna VR og Efl­ingu, tvö stærstu stétt­ar­fé­lög lands­ins. Auk þess hafa Framsýn og Verka­lýðs­fé­lag Akraness gagn­rýnt hann harð­lega.

Samþykkt aðalfundar Framsýnar í heild var eftirfarandi:

„Alþýðu­sam­band Íslands hefur ekki talið ástæðu til að verða við beiðni Fram­sýnar stétt­ar­fé­lags um að taka úr umferð aug­lýs­ingar þar sem varað er við launa­hækk­unum til lág­launa­fólks.

Því sam­þykkir aðal­fundur félags­ins að lýsa yfir van­trausti á for­seta Alþýðu­sam­bands Íslands.

Það er með ólík­indum að Alþýðu­sam­band Íslands skuli leyfa sér að verja ofur­launa­hækk­anir til emb­ætt­is­manna þjóð­ar­innar, for­stjóra fyr­ir­tækja og aðila í fjár­mála­geir­anum með því að berja niður sam­taka­mátt verka­fólks í land­inu með áróð­urs­aug­lýs­ingum. Samtök sem eiga að setja mál­stað vinn­andi fólks ofar öllu.

Það að vara verka­fólk við því að fylgja eftir kröfum sínum er und­ar­leg hug­mynda­fræði. Sú túlkun for­ystu­manna laun­þega á því að það séu ein­ungis kaup­kröfur þeirra sem skapa þjóð­arauð­inn sem leiða af sér óða­verð­bólgu og ólgu á íslenskum vinnu­mark­aði er með öllu óskilj­an­leg. Kaup­máttur launa sé það sem menn eigi að horfa til, annað skipti ekki máli.

Hverju hefur þessi stefna skilað verka­fólki í land­inu:

  • Lág­marks­laun verka­fólks hafa hækkað á 20 árum um ein­ung­is 230.000 krón­ur á mán­uði.
  • Til sam­an­b­urðar er at­hygl­is­vert að skoða hækk­an­ir hjá völd­um aðilum milli ár­ana 2016 – 2017 og til­greind­ar eru í árs­reikn­ing­um fé­lag­anna:
  • For­stjóri N1 hækk­aði í laun­um um 1 millj­ón á mán­uði, mán­að­ar­laun 5 millj­ón­ir.
  • For­stjóri Lands­virkj­un­ar hækk­aði í laun­um um 800 þús­und á mán­uði, mán­að­ar­laun 2,7 millj­ón­ir.
  • For­stjóri Eim­skips hækk­aði í laun­um um tæp 700 þús­und á mán­uði, mán­að­ar­laun 8,6 millj­ón­ir.
  • Bæj­ar­stjóri Kópa­vogs hækk­aði um 612 þús­und á mán­uði, mán­að­ar­laun 2,5 millj­ón­ir.
  • For­stjóri Sím­ans hækk­aði í laun­um um 433 þús­und á mán­uði, mán­að­ar­laun 4 millj­ón­ir.
  • For­stjóri Isa­via hækk­aði um 400 þús­und á mán­uði, mán­að­ar­laun 2,1 millj­ón.
  • For­stjóri Reita hækk­aði í laun­um um 400 þús­und á mán­uði, mán­að­ar­laun 3,7 millj­ón­ir.
  • For­stjóri HB Granda hækk­aði í laun­um um 330 þús­und á mán­uði, mán­að­ar­laun 4,2 millj­ón­ir.
  • Verka­maður­inn á gólf­inu hjá Granda með níu ára starfs­reynslu í fisk­vinnslu hækk­aði um tæp­lega kr. 12.000 á mán­uði, mán­að­ar­laun kr. 274.151.
  • Þessu til við­bót­ar er rétt að rifja upp að kjara­ráð hef­ur hækkað laun æðstu emb­ætt­is­manna og ráð­herra, auk þess að hækka þing­far­ar­kaup sem nem­ur um 200 til 400 þús­und krón­ur á mán­uði með aft­ur­virk­um hækk­un­um til allt að tveggja ára.
  • Aðal­fund­ur Fram­sýn­ar stétt­ar­fé­lags sætt­ir sig ekki við und­an­hald líkt og boðað er í aug­lýs­inga­her­ferð Alþýðu­sam­bands Íslands. Þess í stað kall­ar Fram­sýn eft­ir sam­fé­lags­sátt­mála um sér­stak­ar aðgerðir til handa lág­launa­fólki í land­inu í gegn­um skatt­kerf­is­breyt­ing­ar og bætt launa­kjör.
  • Það er hlut­verk stétt­ar­fé­laga að vera mál­svar­ar sinna fé­lags­manna. Fram­sýn stétt­ar­fé­lag tek­ur hlut­verk sitt mjög al­var­lega og mun hér eft­ir sem hingað til berj­ast fyr­ir aukn­um lífs­gæðum og rétt­ind­um fé­lags­manna. Annað er ekki í boði.”
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kjarabarátta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár