Stjórn VR lýsir yfir vantrausti á forseta ASÍ

Stjórn stærsta stétt­ar­fé­lags lands­ins segir að Gylfi Arn­björns­son njóti ekki trausts til að leiða við­ræður við stjórn­völd eða Samtök atvinnu­lífs­ins fyrir þess hönd í kom­andi kjara­við­ræðum.

Gylfi Arnbjörnsson er forseti ASÍ.
Gylfi Arn­björns­son er for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

Gylfi Arn­björns­son, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ), nýtur ekki trausts stjórnar VR, stærsta stétt­ar­fé­lags lands­ins, til að leiða kom­andi kjara­við­ræður við stjórn­völd eða Samtök atvinnu­lífs­ins fyri hönd VR. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá stjórn­inni sem birt var í dag.

Þar segir að stjórnin telji að Gylfi hafi ekki rækt það meg­in­hlut­verk sitt að taka mál­stað félags­manna aðild­ar­fé­laga ASÍ og tryggja að hags­munir þeirra séu ætið efstir á blaði. „Þrátt fyrir skýra kröfu gras­rót­ar­innar innan aðild­ar­fé­laga ASÍ um breyttar áherslur og rót­tæk­ari verka­lýðs­bar­áttu hefur for­seti ASÍ kosið að snið­ganga þær kröfur og þær breyt­ingar sem orðið hafa í for­ystu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og notað til þess rödd Alþýðu­sam­bands­ins. Forseti ASÍ nýtur því ekki trausts til að leiða við­ræður við stjórn­völd eða Samtök atvinnu­lífs­ins fyrir okkar hönd og mun ekki tala í umboði okkar,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Gylfi hissa

Í sam­tali við RÚV kveðst Gylfi vera hissa á yfir­lýs­ing­unni. Greini­legt sé að stjórn VR sé í nöp við sig og við því sé lítið að gera. „Það er alveg ljóst að það er skoð­ana­munur í okkar hreyf­ingu um aðferðir í kjara­bar­áttu. Ég hef reynt að efla þá umræðu innan okkar sam­taka. Meðal ann­ars með fundum vítt og breytt um landið. Mjög mik­il­vægt að stefnan sé mótuð í nánu sam­tali við aðild­ar­fé­lög og síðan á þingi sam­bands­ins.“

Kjör­tíma­bil Gylfa sem for­seta ASÍ rennur út í haust og búist er fast­lega við mót­fram­boði frá þeim stétt­ar­fé­lögum sem gengið hafa í gegnum for­ystu­skipti und­an­farin miss­eri þar sem for­ystu­fólk með rót­tæk­ari afstöðu til kjara­bar­áttu hafa tekið við. Þar ber helst að nefna VR og Eflingu, tvö stærstu stétt­ar­fé­lög lands­ins.

Rifist um auglýsingu

Van­traust­til­lagan var ekki án fyr­ir­vara. Fyrr í þessum mán­uði tók­ust Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, og Gylfi á um aug­lýs­ingu um kaup­mátt­ar­auk­ingu sem birt var á Facebook-síðu ASÍ. Ragnar Þór sagði þá að hann myndi, ásamt öðrum for­mönnum aðild­ar­fé­laga ASÍ, lýsa yfir van­trausti með form­legum hætti á Gylfa ef aug­lýs­ingin yrði ekki tekin niður.

Í aug­lýs­ing­unni var farið yfir þróun kjara­­mála und­an­farna ára­tugi og færð rök fyr­ir því að „vel skipu­lögð sókn með raun­hæf lang­­tíma­­mark­mið“ hafi skilað launa­­fólki meiri kjara­­bót en átök fyrri ára­tuga. Kröfu um að taka mynd­­bandið niður var hafnað af ASÍ. Það má sjá hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttarfélag

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár