Gylfi svarar Ragnari Þór – Segist hafa fullt umboð

Forseti ASÍ segir Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­mann VR, fara fram með offorsi til þess að banna umræðu. Ragnar Þór mun á næstu dögum gefa út for­m­­lega van­­trausts­yf­­ir­lýs­ingu á hend­ur Gylfa.

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
Gylfi Arn­björns­son, for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

Gylfi Arn­björns­son for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands segir að hann og Ragn­ar Þór Ing­­ólfs­­son for­maður VR hafi verið ósam­mála um leiðir í kjara­bar­áttu en að honum þyki nokkuð merki­legt að Ragnar vilji fara fram með þessu offorsi til þess að banna umræðu. „Ég er tals­maður þess að eiga sam­tal, bæði við sam­herja mína og and­stæð­inga og ég lít nú á Ragn­ar sem sam­herja minn. Við erum að sinna bar­áttu sömu hóp­anna,“ segir hann í sam­tali við mbl.is í dag.

[links]Eins og fram kom í fréttum í morgun þá mun Ragn­ar Þór á næstu dög­um gefa út for­m­­lega van­­trausts­yf­­ir­lýs­ingu á hend­ur Gylfa eft­ir að ASÍ neit­aði að taka niður aug­lýs­ingu um kaup­mátt­­ar­aukn­ingu.

Ragnar Þór sendi tölvu­­póst á fé­lags­­menn ASÍ í vik­unni þar sem hann óskaði eft­ir því að aug­lýs­ing á face­­book­síðu ASÍ yrði tek­in nið­ur, ann­­ars myndi hann ásamt öðrum for­­mönn­um aðil­ar­­fé­laga ASÍ lýsa yfir van­­trausti á for­­set­ann. Hann hefur áður lýst van­trausti á Gylfa en ætlar núna að gera það með form­leg­um hætti.

Til­efnið er, sem fyrr segir, mynd­band á veg­um ASÍ sem VR og Fram­sýn hafa sagt gera lítið úr kjara­bar­áttu verka­fólks. Farið er yfir þróun kjara­mála í mynd­band­inu und­an­farna ára­tugi og færð rök fyr­ir því að „vel skipu­lögð sókn með raun­hæf lang­tíma­mark­mið“ hafi skilað launa­fólki meiri kjara­bót en átök fyrri ára­tuga. Kröfu um að taka mynd­bandið niður var hafnað af ASÍ.

„Það er nátt­úru­lega ekk­ert nýtt að Ragn­ar lýsi yfir van­trausti á mig. Hann hef­ur gert það áður eins og haft er eft­ir hon­um í frétt­inni. Nú ætl­ar hann að gera það með form­leg­um hætti og ég bíð bara spennt­ur eft­ir því að sjá hvernig það verður,“ seg­ir Gylfi í sam­tali við mbl.is. Hann bend­ir jafn­framt á að næsta þing ASÍ fari fram í októ­ber í haust og fram að því hafi hann fullt umboð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár