Ragnar Þór vill vantraust á Gylfa Arnbjörnsson

Átökin innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar fara harðn­andi.

Ragn­ar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, mun á næstu dög­um gefa út form­lega van­trausts­yf­ir­lýs­ingu á hend­ur Gylfa Arn­björns­syni, for­seta Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ), eft­ir að ASÍ neit­aði að taka niður aug­lýs­ingu um kaup­mátt­ar­aukn­ingu.

Frá þessu eru greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Ragnar Þór sendi tölvu­póst á fé­lags­menn ASÍ í vik­unni þar sem hann óskaði eft­ir því að aug­lýs­ing á face­booksíðu ASÍ yrði tek­in niður, ann­ars myndi hann ásamt öðrum for­mönn­um aðilar­fé­laga ASÍ lýsa yfir van­trausti á for­set­ann.

Hann seg­ir að VR muni benda á það eft­ir helgi hvað kaup­mátt­ar­vísi­tal­an kem­ur rangt fram í mynd­band­inu en ann­ars er hann ósátt­ur við að skautað sé fram­hjá efna­hags­hrun­inu í tíma­línu ASÍ, að því er segir í Morg­un­blað­inu.

Harðn­andi átök eru nú innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar. Tvö stærstu stétt­ar­fé­lög lands­ins, VR og Efling, þar sem Sólveig Anna Jóns­dóttir var nýlega kjörin for­maður, hafa um margt gengið í takt í umræðu um kjara­mál, og hafa meðal ann­ars talað um að þörf sé á því að hlusta betur eftir þörfum fólks­ins á gólf­inu og ná fram raun­veru­legum kjara­bótum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár