Segir að samninganefnd SGS muni aldrei taka þátt í að semja um að rýra kjör

Samn­inga­nefnd SGS segir það miður að Framsýn hafi þurft að bera félaga sína þungum sökum í tengslum við ákvörðun félags­ins um að aft­ur­kalla samn­ings­um­boð sitt frá Starfs­greina­sam­band­inu.

Samninganefnd SGS
Samn­inga­nefnd SGS Mynd: Starfsgreinasambandið

Samn­inga­nefnd Starfs­greina­sam­bands Íslands sendi frá sér yfir­lýs­ingu vegna frétta fjöl­miðla þess efnis að stétt­ar­fé­lagið Framsýn hafi ákveðið að aft­ur­kalla samn­ings­um­boð sitt frá Starfs­greina­sam­band­inu. Samn­inga­nefnd SGS segir það miður að í tengslum við þá ákvörðun hafi Framsýn þurft að bera félaga sína þungum sökum. Í yfir­lýs­ing­unni segir að samn­inga­nefnd SGS muni aldrei taka þátt í því að semja um að rýra kjör síns fólks, hvort sem það líti að vinnu­tíma, álags­greiðslna eða ann­arra þátta.

Segir að einstaklingar innan hreyfingarinnar hafi viljað skoða vinnutímabreytingu

Fram­sýn, stétt­ar­fé­lag Þing­ey­inga, sam­þykkti á fundi sín­um í gær­kvöldi að aft­ur­kalla samn­ings­um­boðið sem fé­lagið veitti Starfs­greina­sam­band­inu. Aðal­steinn Árni Bald­urs­son, for­maður Fram­sýn­ar, sagði í sam­tali við mbl.is í gær að félagið eigi mikla sam­leið með VR, Eflingu, VLFA og VLFG þar sem þau séu þau einu sem hafi alfarið hafnað til­lögum að vinnu­tíma­breyt­ingum sem Samtök atvinnu­lífs­ins hafi lagt til. Aðal­steinn sagði að Fram­sýn hafi ávallt haft sömu af­stöðu gagn­vart þess­um til­lög­um SA og því eðli­legt að fé­lög­in starfi sam­an.

Jafn­framt sagði hann að innan hreyf­ing­ar­innar hafi verið ein­stak­lingar sem hafi viljað skoða vinnu­tíma­breyt­ingar. „Því miður er það þannig að inn­an hreyf­ing­ar­inn­ar hafa verið ein­stak­ling­ar sem hafa viljað skoða þetta, en maður átt­ar sig ekki á því. Þetta er bara bull­andi kjara­skerð­ing fyr­ir fólk að skera niður yf­ir­vinnu­tíma og lengja dag­vinnu­tíma,“ sagði Aðal­steinn.

Samn­inga­nefnd SGS seg­ir Fram­sýn hafa borið félaga sína þung­um sök­um

Í yfir­lýs­ing­unni frá SGS segir að það sé í sam­ræmi við for­ræði ein­stakra félaga að Framsýn hafi ákveðið að aft­ur­kalla samn­ings­um­boð sitt frá sam­band­inu. SGS hafnar hins vegar ásök­unum Fram­sýnar og segir það vera miður að vera borin þungum sökum af félögum sínum. „Það er miður að í tengslum við þessa sam­þykkt þurfi að bera félaga sína þungum sökum. Samn­inga­nefnd Starf­greina­sam­bands­ins mun aldrei taka þátt í því að semja um að rýra kjör okkar fólks, hvort sem það lítur að vinnu­tíma, álags­greiðslna eða ann­ara þátta.“

Þá segir í yfir­lýs­ing­unni að í við­ræðum SGS við Samtök atvinnu­lífs­ins hafi þessi afstaða komið fram með „mjög sterkum og afdrátt­ar­lausum hætti“ og að samn­inga­nefnd­ar­mönnum ætti því að vera það „alger­lega ljóst“. Þá er minnt á það í yfir­lýs­ing­unni að SGS sleit við­ræð­unum við SA vegna þess­ara þátta.

„Samn­inga­nefnd Starfs­greina­sam­bands­ins mun ekki standa í skeyta­send­ingum við félaga sína í fjöl­miðlum. Verkefni okkar er að ná samn­ingum um bætt kjör okkar fólks, við ein­beittum okkur að því í sam­hljómi við félaga okkar í Eflingu, Verka­lýðs­fé­lagi Akraness og Grinda­víkur, “ segir að lokum í yfir­lýs­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár