Þriðja stærsta stéttarfélag landsins verður til við sameiningu tveggja félaga

Á aðal­fundum Starfs­manna­fé­lags Reykja­vík­ur­borgar og SFR stétt­ar­fé­lags í almanna­þjón­ustu sem lauk í dag voru ný lög og heiti sam­ein­aðs félags sam­þykkt en það heitir Sameyki stétt­ar­fé­lag.

Árni Stefán Jónsson og Garðar Hilmarsson
Árni Stefán Jónsson og Garðar Hilm­ars­son Mynd: Aðsend mynd

Á aðal­fundum Starfs­manna­fé­lags Reykja­vík­ur­borgar og SFR stétt­ar­fé­lags í almanna­þjón­ustu voru ný lög og heiti sam­ein­aðs félags sam­þykkt. Félagið heitir Sameyki stétt­ar­fé­lag í almanna­þjón­ustu og er félags­svæði þess allt landið. Ákvörðum um sam­ein­ingu félag­anna lá fyrir að lok­inni alls­herj­ar­at­kvæða­greiðslu í byrjun nóv­em­ber síð­ast­lið­ins en þar sam­þykkti meiri­hluti félags­manna í báðum félögum að félögin skyldu sam­ein­ast í eitt félag.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá hinu nýja stétt­ar­fé­lagi.

Samkvæmt félag­inu er höf­uð­mark­mið sam­ein­ing­ar­innar að verða enn sterk­ari í kjara- og hags­muna­bar­átt­unni og auka þjón­ustu við félags­menn. Eftir sam­ein­ingu eru félags­menn um ell­efu þús­und og starfa við almanna­þjón­ustu hjá ríki, borg, sveit­ar­fé­lögum og fyr­ir­tækjum í meiri­hluta­eigu opin­berra aðila. Sameyki stétt­ar­fé­lag er því lang­fjöl­menn­asta stétt­ar­fé­lagið á opin­berum mark­aði og mun gera kjara­samn­inga við 18 við­semj­endur, flestir samn­ing­anna eru lausir í lok mars. Formaður Sameykis stétt­ar­fé­lags er Árni Stefán Jónsson áður for­maður SFR og vara­for­maður er Garðar Hilm­ars­son áður for­maður St.Rv.

Alls barst 291 til­laga að heiti félags­ins frá næstum rétt rúmum 200 félags­mönnum. Dóm­nefndin sem skipuð var tveimur full­trúum frá hvoru félagi auk ráð­gjafa frá aug­lýs­inga­stofu sem einnig er íslensku­fræð­ingum. Dóm­nefndin skil­aði nokkrum til­lögum til stjórna félag­anna sem lagði eina til­lögu, Sameyki stétt­ar­fé­lag í almanna­þjón­ustu fyrir aðal­fund. Tillagan var sam­þykkt með meiri­hluta af atkvæðum, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni.

Stærsti hluti félags­manna Sameykis stétt­ar­fé­lags í almanna­þjón­ustu starfar á opin­berum vett­vangi við almanna­þjón­ustu. Kjara­samn­ingar meiri­hluta félags­manna eru lausir í lok mars og munu þau á næstu dögum setja sig í sam­band við þeirra stærstu við­semj­endur.

„Krafan um að vinn­andi fólk geti lifað mann­sæm­andi lífi af launum sínum er grund­vallar mann­rétt­inda­krafa. Jöfnun launa á milli vinnu­mark­aða er eitt af okkar mik­il­vægu málum sem við leggjum ríka áherslu á að verði lokið eins fljótt og auðið er. Auk þess viljum við tryggja að launa­þró­un­ar­trygg­ingin haldi sér.

Við sem störfum í almanna­þjón­ustu þekkjum best hversu mik­il­vægt er að hlúa að innviðum vel­ferð­ar­kerf­is­ins og búa þannig um hnút­ana að það sé tryggt og öllum opið. Starfs­menn í almanna­þjón­ustu hafa búið við mikið álag og stytt­ing vinnu­vik­unnar er því mik­il­væg til þess að koma til móts við vax­andi álag og streitu­tengda sjúk­dóma og mun stytt­ing skipta miklu máli fyrir opin­bera starfs­menn.

Við fögnum til­lögum átaks­hóps um hús­næð­is­mál sem hefur verið bar­áttu­mál lengi en leggjum áherslu á að þeim þurfi að fylgja eftir. Tillögur ASÍ um skatt­kerf­is­breyt­ingar tóna við stefnu BSRB í skatta­málum meðal ann­ars um fjölgun skatt­þrepa og tökum við þeim því fagn­andi. Sameyki stétt­ar­fé­lag óskar þeim félögum sem nú standa í eld­lín­unni í kjara­samn­ings­við­ræð­unum góðs gengis og við fylgj­umst vel með þróun mála,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár