Skora á SGS að slíta viðræðum við SNS og undirbúa verkfallsaðgerðir

Stétt­ar­fé­lagið Framsýn skorar á aðild­ar­fé­lög Starfs­greina­sam­bands Íslands að slíta við­ræðum við Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga og hefja und­ir­bún­ing að sam­eig­in­legum verk­falls­að­gerðum í haust.

Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar.
Aðal­steinn Árni Bald­urs­son, for­maður Fram­sýnar. Mynd: Skjáskot/RÚV

Framsýn stétt­ar­fé­lag skorar á aðild­ar­fé­lög Starfs­greina­sam­bands Íslands, SGS, að slíta við­ræðum við Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga, SNS, og hefja und­ir­bún­ing að sam­eig­in­legum verk­falls­að­gerðum í haust með það að mark­miði að „lama“ meðal ann­ars allt skóla­starf í leik- og grunn­skólum lands­ins. Þetta kemur fram í ályktun stjórnar Fram­sýnar varð­andi stöð­una í kjara­við­ræðum Starfs­greina­sam­bands­ins sem Framsýn á aðild að.

Fá ekki sambærilega eingreiðslu

Í til­kynn­ingu Fram­sýnar segir að mikil reiði sé á meðal starfs­manna sveit­ar­fé­laga vegna ákvörð­unar samn­inga­nefndar sveit­ar­fé­lag­anna að und­an­skilja starfs­menn Starfs­greina­sam­bands­ins frá því að fá sam­bæri­lega ein­greiðslu í ágúst og starfs­menn ann­arra stétt­ar­fé­laga og sam­banda.

[links]Samn­inga­nefnd Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga hefur samið við ákveðin sam­bönd og stétt­ar­fé­lög um að þeirra félags­menn sem starfa hjá sveit­ar­fé­lög­unum fái greiddar 105.000 ein­greiðslu miðað við fullt starf þann 1. ágúst 2019, sem greiðslu inn á vænt­an­legan kjara­samn­ing.

Þegar aðild­ar­fé­lög SGS kröfð­ust þess að félags­menn þeirra sem starfa hjá sveit­ar­fé­lög­unum fengju sömu­leiðis umrædda ein­greiðslu var því alfarið hafnað af hálfu samn­inga­nefndar sveit­ar­fé­laga með þeim rökum að Starfs­greina­sam­bandið hefði vísað kjara­deil­unni til rík­is­sátta­semj­ara.

Sú ákvörðun hefur verið harð­lega gagn­rýnd af SGS og Efl­ing sem skorað hafa á sveit­ar­fé­lögin að semja við þau um sömu greiðslur og aðrir munu fá þann 1. ágúst næst­kom­andi eða taka að öðrum kosti sjálf­stæða ákvörðun um að greiða sínu fólki inn á vænt­an­legan kjara­samn­ing til jafns við annað starfs­fólk.[adspot]

Framsýn segir þessa ákvörðun sveit­ar­fé­lag­anna með miklum ólík­indum og þeim til mik­illar skammar gangi hún eftir. „Það er með öllu ólíð­andi og samn­inga­nefnd SNS til vansa að skilja sína lægst laun­uðu starfs­menn eina eftir úti í kuld­anum, það er þá sem starfa eftir kjara­samn­ingi sveit­ar­fé­laga og Starfs­greina­sam­bands Íslands. Framsýn trúir því ekki fyrr en á reynir, að sveit­ar­stjórn­ar­menn í Þing­eyj­ar­sýslum hygg­ist koma fram við sitt frá­bæra starfs­fólk með þessum hætti,“ segir í álykt­un­inni.

Skora á SGS að hefja undirbúning að sameiginlegum verkfallsaðgerðum

Framsýn skorar því á samn­inga­nefnd sveit­ar­fé­lag­anna að end­ur­skoða afstöðu sína en félagið segir að umræður séu nú innan aðild­ar­fé­laga SGS að boða til verk­falls í haust standi samn­inga­nefndin við boð­aða mis­munun á hækk­unum til starfs­manna sveit­ar­fé­laga í ágúst.

„Það er von Fram­sýnar að sveit­ar­fé­lög í Þing­eyj­ar­sýslum virði starfs­menn sína jafnt og greiði öllum sínum starfs­mönnum þessa hækkun í ágúst sem eru með lausa samn­inga, ekki bara þeim sem staðið hafa á kant­inum meðan aðild­ar­fé­lög Starfs­greina­sam­bands­ins hafa unnið að því að ganga frá kjara­samn­ingi við SNS. Því miður hefur sú vinna ekki skilað árangri. Því skorar Framsýn á samn­inga­nefnd SNS að end­ur­skoða sína afstöðu.“

Ef ekki þá skorar Framsýn á aðild­ar­fé­lög Starfs­greina­sam­bands Íslands að slíta við­ræðum við SNS og hefja und­ir­bún­ing að sam­eig­in­legum verk­falls­að­gerðum í haust með það að mark­miði að lama meðal ann­ars allt skóla­starf í leik- og grunn­skólum lands­ins. „Það er ein­fald­lega ekki hægt að aðild­ar­fé­lög SGS standi aðgerð­ar­laus á kant­inum á sama tíma og samn­inga­nefnd Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga ætlar kinn­roða­laust að mis­muna starfs­mönnum sveit­ar­fé­laga. Skammist ykkar!“ segir að lokum í álykt­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stéttarfélag

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár