Skora á sveitarfélögin að semja við SGS og Eflingu um sömu greiðslur

For­svars­menn Starfs­greina­sam­bands Íslands og Eflingar segja það með öllu ólíð­andi að samn­inga­nefnd Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga semji ekki við SGS og Eflingu um sömu greiðslur og aðrir munu fá þann 1. ágúst næst­kom­andi.

Starfs­greina­sam­bandið og Efling skora á sveit­ar­fé­lögin að semja við SGS og Eflingu um sömu greiðslur og aðrir munu fá þann 1. ágúst næst­kom­andi eða taka að öðrum kosti sjálf­stæða ákvörðun um að greiða sínu fólki inn á vænt­an­legan kjara­samn­ing til jafns við annað starfs­fólk, að því er segir í sam­eig­in­legri frétta­til­kynn­ingu Starfs­greina­sam­bands Íslands (SGS) og Eflingar.

SGS og Efling hafa átt í kjara­samn­ings­við­ræðum við Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga vegna félags­manna sinna sem vinna hjá sveit­ar­fé­lögum öðrum en Reykja­vík­ur­borg. Við­ræð­urnar hafa gengið bæði hægt og illa, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni.

[adspot] Sér­stak­lega greinir á um líf­eyr­is­málum og að sveit­ar­fé­lögin hafi ekki staðið við fyr­ir­heit sín um að jafna líf­eyr­is­rétt­indi milli félags­manna BSRB og félags­manna SGS og Eflingar innan ASÍ.

Í til­kynn­ing­unni segir að samn­inga­nefnd Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga hafi nú þegar samið við ein­stök sam­bönd og stétt­ar­fé­lög um að þeir félags­menn sem starfa hjá sveit­ar­fé­lög­unum, skuli fá greiddar 105.000 krónur, miðað við fullt starf, þann 1. ágúst næst kom­andi sem greiðslu inn á vænt­an­legan samn­ing. Þar á meðal eru sam­tökin BSRB en greint var frá því í dag að BSRB hafi náð sam­komu­lagi við Sam­band ís­lenskra sveit­ar­fé­laga og Reykja­vík­ur­borg um fram­hald kjara­við­ræðna.

Því hafa SGS og Efling kraf­ist þess að félags­menn þeirra hjá sveit­ar­fé­lög­unum fái líka umrædda greiðslu en sam­kvæmt félög­unum var því alfarið hafnað af hálfu samn­inga­nefndar sveit­ar­fé­laga með þeim rökum að SGS og Efling væru búin að vísa kjara­deil­unni til rík­is­sátta­semj­ara. Í til­kynn­ing­unni segir að það sé öllu ólíð­andi.

Enn fremur kemur fram að það sé samn­inga­nefnd Sambands íslenskra sveit­ar­fé­lag „til vansa að skilja sína lægst laun­uðu starfs­menn eftir eina úti í kuld­anum. Starfs­greina­sam­band Íslands og Efling trúa því ekki fyrr en á reynir, að sveit­ar­stjórn­ar­menn hygg­ist koma svona fram við sitt frá­bæra starfs­fólk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár