„Eins og að synda í gegnum á úr skít“

Nýkjör­inn for­maður Eflingar sagði í sig­ur­ræðu sinni að ástandið í kosn­inga­bar­átt­unni væri búið að vera galið. „En okkur tókst þetta og við erum búin að vinna sigur í þessum kosn­ingum.“

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar. Mynd: Bára Huld Beck

„Ég sagði við mig sjálfa og sagði við ykkur að þetta yrði eins og að synda í gegnum á úr skít. Ég sagði það við ykkur og þannig hefur þetta verið en við gáf­umst ekki upp. Það er alveg sama hvað kom, við gáf­umst ekki upp því við vissum að þetta er okkar bar­átta.“

Þetta sagði Sólveig Anna Jóns­dóttir nýkjörin for­maður Eflingar við félaga sína á Barion Bryggu í sig­ur­ræðu sinni í gær. Bar­áttu­list­inn, sem leiddur var af Sól­veigu Önnu, vann sigur í stjórn­ar­kjöri Efl­ingar sem lauk í gær en hann fékk 52 pró­sent greiddra atkvæða.

Aðrir á B-lista eru þau Ísak Jóns­son, Guð­björg María Jós­eps­dótt­ir, Inn­ocentia F. Frið­geirs­son, Kol­brún Valv­es­dótt­ir, Mich­ael Bragi Whal­ley, Olga Leons­dóttir og Sæþór Benja­mín Randals­son. Skoð­un­ar­menn reikn­inga eru Bar­bara Sawka, Magnús Freyr Magn­ús­son og Val­týr Björn Thors, sem er vara­mað­ur.

„Algjörlega galið ástand“

Sólveig Anna hóf ræðu sína á því að óska öllum við­stöddum til ham­ingju.

[links]„Þetta er nátt­úru­lega búið að vera algjör­lega galið ástand. Ég held ekki að nein kosn­inga­bar­átta sem ég hef orðið vitni af hafi verið jafn hatrömm af hálfu and­stæð­ing­anna.

En okkur tókst þetta og við erum búin að vinna sigur í þessum kosn­ingum og ég vil að við tökum smá tíma til að með­taka það að eftir allt sem á undan hefur gengið – allan þann tryll­ing sem á hefur gengið – þá tókst okkur að fá sam­þykki félags­fólks Eflingar fyrir því að við á Bar­áttu­list­anum eigum að fá að stýra efna­hags­legri rétt­læt­is­bar­áttu verka- og lág­launa­fólks á höf­uð­borg­ar­svæð­inu,“ sagði hún.

Stolt og þakklát

Sólveig Anna sagð­ist vera stolt og þakk­lát fyrir að hafa kynnst félögum sínum á Bar­áttu­list­anum.

„Ég er stolt og þakk­lát fyrir að vera félags­kona í Eflingu, ykkar félagi, og ég er stolt og þakk­lát yfir því að hafa fengið að fara með ykkur í gegnum þessa bar­áttu. Ég sagði við mig sjálfa og sagði við ykkur að þetta yrði eins og að synda í gegnum á úr skít. Ég sagði það við ykkur og þannig hefur þetta verið en við gáf­umst ekki upp. Það er alveg sama hvað kom, við gáf­umst ekki upp því við vissum að þetta er okkar bar­átta. Við vissum að við höfum unnið stóra sigra og við vissum að við erum rétt að byrja.

Félags­fólk Eflingar hefur ákveðið að standa með okkur þannig að kæra fólk, ég vildi að ég hefði eitt­hvað meira að segja á þessum tíma­punkti en ég get ekki annað en aftur sagt að hjarta mitt er fullt af stolti og þakk­læti og ég hlakka til að taka næsta og næsta og næsta slag með ykkur og ég veit að þetta er aðeins byrj­unin á þeim mik­il­vægu og stóru sigrum sem framundan eru. Takk fyrir, kæru félagar,“ sagði hún að lokum.

Draga megi lærdóm af átökum síðustu vikna

Eins og kunn­ugt er sögðu Sólveig Anna og fram­kvæmda­stjór­inn, Viðar Þor­steins­son, starfi sínu lausu fyrr í haust eftir átök á skrif­stofu stétt­ar­fé­lags­ins.

Ólöf Helga Adolfs­dóttir, sem leiddi A-list­ann og fékk 37 pró­sent greiddra atkvæða, sagð­ist í sam­tali við Vísi í gær vera von­svikin yfir úrslitum kvölds­ins en að hún virti að sjálf­sögðu vilja félags­manna. Hún taldi að draga mætti lær­dóm af átökum síð­ustu vikna innan Eflingar. Þá sagði hún mik­il­vægt að félags­menn veittu stjórn Eflingar meira aðhald nú en áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár