Sólveig Anna vann – Verður formaður Eflingar á ný

Þrír listar voru í fram­boði til stjórnar Eflingar í kosn­ingum sem lauk í dag. Bar­áttu­list­inn, leiddur af fyrr­ver­andi fom­ann­inum Sólveigu Önnu Jóns­dóttur, vann.

Sólveig Anna Jónsdóttir.
Sólveig Anna Jóns­dóttir. Mynd: Bára Huld Beck

Bar­áttu­list­inn, sem leiddur var af Sólveigu Önnu Jóns­dóttur, vann sigur í stjórn­ar­kjöri Eflingar sem lauk í dag. Hún verður því for­maður Eflingar á ný, en hún sagði af sér sem slíkur í fyrra­haust.

Þrír listar voru í fram­boði. Trún­að­ar­ráð Efl­ingar sam­þykkti á fundi sínum 13. jan­úar síð­ast­lið­inn til­lögu upp­still­ing­ar­nefndar um svo­kall­aðan A-lista, en Ólöf Helga Adolfs­dótt­ir, sem setið hefur sem vara­for­maður stjórnar Efl­ingar frá því að Sól­veig Anna sagði af sér, leiddi þann lista. Tveir aðrir núver­andi stjórn­ar­menn eru á þeim lista en Agni­ezka Ewa Ziólkowska, sem tók við for­mennsku í Efl­ingu eftir að Sól­veig Anna hætti, verður ekki í fram­boð­i.

Guð­mundur Bald­urs­son, stjórn­ar­maður í Efl­ingu, var einnig í for­svari fyrir fram­boðs­lista.

Sólveig Anna leiddi svo hóp Efl­ing­ar­fé­laga sem buðu fram svo­kall­aðan B-lista, sem kall­aður var Bar­áttu­list­inn. Þegar hóp­ur­inn til­kynnti um fram­boð sitt sagð­ist hann eiga „það sam­eig­in­legt að vilja umbylta félag­inu okk­ar.“

Báráttu­list­inn fékk 52 pró­sent greiddra atkvæða, A-list­inn 37 pró­sent og C-listi Guð­mundar átta pró­sent. Tvö pró­sent þeirra sem greiddu atkvæði tóku ekki afstöðu.

Á kjör­skrá voru 25.842 en atkvæði greiddu alls 3.900 manns og kjör­sókn því 15,1 pró­sent.

Aðrir á B-lista eru Ísak Jónsson, Guðbjörg María Jós­eps­dóttir, Innocentia F. Frið­geirs­son, Kolbrún Valv­es­dóttir, Michael Bragi Whalley, Olga Leons­dóttir og Sæþór Benjamín Randals­son. Skoð­un­ar­menn reikn­inga eru Barbara Sawka, Magnús Freyr Magn­ús­son og Valtýr Björn Thors, sem er vara­maður.

Þegar Sól­veig Anna bauð sig fyrst fram til for­manns Efl­ingar árið 2018, gegn A-lista upp­still­ing­ar­nefndar Efl­ing­ar, fékk list­inn sem hún leiddi 2.099 atkvæði en hinn list­inn 519 atkvæði. Listi Sól­veigar Önnu var svo einn í fram­boði árið 2020 og hún þá sjálf­krafa end­ur­kjörin for­mað­ur­.

Sagði af sér í fyrra eftir ósætti við starfsmenn á skrifstofu

Þegar Sól­veig Anna sagði af sér sem for­maður Efl­ingar í fyrra­haust var ástæðan ósætti við starfs­menn á skrif­stofu Efl­ing­ar. Sú atburða­rás hófst fimmt­u­dag­inn 28. októ­ber 2021 þegar RÚV birti við­­­tal við áður­nefndan Guð­­­mund Bald­urs­son þar sem hann greindi frá því að hann hefði ítrekað reynt að álykt­un­ sem afhent hefði verið í júní síð­­ast­liðnum og inn­i­hélt ásak­­anir um að hún héldi úti sér­­­stökum „af­­töku­lista“ og hefði framið grafal­var­­leg kjara­­samn­ings­brot. Álykt­unin var und­ir­­­rit­uð af trún­­­að­­­ar­­­mönnum og sögð sett fram fyrir hönd starfs­­­manna. Guð­­mundur sagði í frétt­inni að hann hefði áhyggjur af fram­komu stjórn­­­enda Efl­ingar gagn­vart starfs­­­fólki. Tal­aði hann meðal ann­­­ars um að starfs­­­fólk sem hefði hætt hjá Efl­ingu hefði talið sér „að ein­hverju leyti ógnað innan gæsalappa, af ógn­­­ar­­­stjórn.“

[adspot]Í við­tali við Kjarn­ann sem birt­ist snemma í nóv­em­ber í fyrra sagði Sól­veig Anna að með álykt­un­inni sem sett var fram í júní hafi vopnin sem hún telur nauð­­syn­­leg til að sinna því starfi sem hún var kosin til að sinna verið slegin úr hönd­unum á henn­i.

[links]Þegar sím­­tal hafi borist frá frétta­­manni RÚV í aðdrag­anda birt­ingu frétt­­ar­innar hafi Sól­­veig Anna áttað sig á því að atburða­rásin sem hún hafði að ein­hverju leyti verið að und­ir­­búa sig undir að gæti orð­ið, væri að verða að veru­­leika. „Ég hug­­leiddi bara stöðu mína og þær aðstæður sem voru upp komnar og komst að þeirri nið­­ur­­stöðu að það væri ekk­ert annað að gera. Ég taldi mig vita með vissu að á þessum tíma væru mjög fáir úr starfs­­manna­hópn­um, alls fimm manns auk nokk­­urra stjórn­­enda, sem hefðu séð þessa álykt­un. Ég taldi mig vita að það væru fáir sem hefðu komið að því að skrifa hana og að hún hefði ekki farið í neina dreif­ingu innan starfs­­manna­hóps­ins. Af ein­hverjum ástæðum virð­ist Guð­­mundur Bald­­ur­s­­son hafa fengið ein­hvers­­konar aðgang eða veður af þessu og söm­u­­leiðis fyrr­ver­andi stjórn­­andi sem reyndi að nota álykt­un­ina til að fjár­­­kúga mjög veg­­legan starfs­loka­­samn­ing út úr félag­in­u.“

Hún ákvað að ávarpa starfs­fólk dag­inn eftir við­talið og óska eftir lág­marks­traust­yf­ir­lýs­ingu starfs­fólks við sig. Við því var ekki orðið og nið­ur­staða starfs­manna­fundar inn­i­hald álykt­un­­ar­innar ætti rétt á sér. Henni, og helsta sam­­starfs­­fólki henn­­ar, hafi orðið ljóst að ef álykt­unin yrði gerð opin­ber myndi þau ekki getað starfað leng­­ur. „Það myndi þessi her­­ferð sem rekin hefur verið gegn okkur víða að loks­ins ná þessum raun­veru­­lega árangri að við hefðum á end­­anum engan trú­verð­ug­­leika.“

Í kjöl­farið sagði hún af sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár