Sólveig Anna: „Starfsfólk skrifstofunnar vinnur fyrir félagsfólkið, ekki öfugt“

Sólveig Anna Jóns­dóttir, sem býður sig aftur fram til for­manns Eflingar, segir að miðað við stemn­ing­una og þær áherslur sem Samtök atvinnu­lífs­ins og stjórn­völd hafi kynnt telji hún að það „verði mjög mikil þörf á ríkri sam­stöðu verka­fólks“.

Sólveig Anna Jóns­dóttir, sem hefur nú opin­berað að hún sæk­ist að nýju eftir því að verða for­maður Eflingar, segir að ákvörð­unin um að bjóða sig fram að nýju hafi orðið til hægt og bít­andi. „Það er langt um liðið frá því að ég sagði af mér. Strax í kjöl­farið fékk ég fjölda skila­boða frá Efl­ing­ar­fólki sem lýsti yfir miklu upp­námi yfir stöðu mála. Það var leitt yfir því að það sem við höfðum verið að gera, ég, þau og félagar okkar, væri mögu­lega fyrir bí. Þessi skila­boð hafa eig­in­lega bara haldið áfram að koma. Ég hef því velt þessu mikið fyrir mér, hlustað á þetta fólk og afstaða mín mót­að­ist út frá því.“

Ljóst er að tölu­verður und­ir­bún­ingur hefur átt sér stað fyrir fram­boðið en Bar­áttu­list­inn hefur látið útbúa heima­síðu á íslensku, ensku og pólsku þar sem list­inn og stefnu­mál hans eru kynnt. Á heima­síð­unni getur fólk líka gefið fé til að styðja við list­ann eða skráð sig til þátt­töku í starfi hans. Aðspurð hversu lengi fram­boðið hafi verið í und­ir­bún­ingi segir Sólveig að hóp­ur­inn hafi aug­ljós­lega sett tíma og orku í að vinna að fram­boð­inu. „En þetta er ekki komið til á löngum tíma.“

Mikil þorf á samstöðu verkafólks

Stefnu­skráin sem Bar­áttu­list­inn kynnir til leiks í dag, og er rakin ítar­lega í umfjöllun Kjarnans um fram­boðið sem hægt er að lesa hér, er nokkuð afger­andi. Hún er einnig á skjön við þær áherslur sem rík­is­stjórnin og Samtök atvinnu­lífs­ins hafa boðað í aðdrag­anda kjara­samn­inga.

[links]Býst Sólveig Anna við miklum átökum í tengslum við gerð kjara­samn­inga? „Ég ætla að svara þessu með því hug­ar­fari sem ég hef tamið mér í aðdrag­anda gerðar þeirra kjara­samn­inga sem ég hef farið í áður. Sé valda­fólk til­búið að setja sig í spor verka- og lág­launa­fólks og raun­veru­lega hlusta og skilja hvað þurfi að gera þá eru átök óþörf í kjara­samn­ings­gerð­inni.

En miðað við stemn­ing­una og þær áherslur sem Samtök atvinnu­lífs­ins og stjórn­völd hafa kynnt þá tel ég næsta víst að í þessum kjara­samn­ingum, líkt og öðrum sem við höfum farið í gegnum, verði mjög mikil þörf á ríkri sam­stöðu verka­fólks.“

Ályktunin sem sagði ógnarstjórn ríkja

Þegar Sólveig Anna sagði af sér sem for­maður Eflingar í fyrra­haust var ástæðan ósætti við starfs­menn á skrif­stofu Eflingar. Sú atburða­rás hófst fimmtu­dag­inn 28. októ­ber 2021 þegar RÚV birti við­­tal við áður­nefndan Guð­­mund Bald­urs­son þar sem hann greindi frá því að hann hefði ítrekað reynt að álykt­un­ sem afhent hefði verið í júní síð­ast­liðnum og inni­hélt ásak­anir um að hún héldi úti sér­stökum „af­töku­lista“ og hefði framið grafal­var­leg kjara­samn­ings­brot. Álykt­unin var und­ir­­rit­uð af trún­­að­­ar­­mönnum og sögð sett fram fyrir hönd starfs­­manna. Guð­mundur sagði í frétt­inni að hann hefði áhyggjur af fram­komu stjórn­­enda Efl­ingar gagn­vart starfs­­fólki. Tal­aði hann meðal ann­­ars um að starfs­­fólk sem hefði hætt hjá Efl­ingu hefði talið sér „að ein­hverju leyti ógnað innan gæsalappa, af ógn­­ar­­stjórn.“

[adspot]Í við­tali við Kjarnann sem birt­ist snemma í nóv­em­ber í fyrra sagði Sólveig Anna að með álykt­un­inni sem sett var fram í júní hafi vopnin sem hún telur nauð­syn­leg til að sinna því starfi sem hún var kosin til að sinna verið slegin úr hönd­unum á henni.

Þegar sím­tal hafi borist frá frétta­manni RÚV í aðdrag­anda birt­ingu frétt­ar­innar hafi Sól­veig Anna áttað sig á því að atburða­rásin sem hún hafði að ein­hverju leyti verið að und­ir­búa sig undir að gæti orð­ið, væri að verða að veru­leika. „Ég hug­leiddi bara stöðu mína og þær aðstæður sem voru upp komnar og komst að þeirri nið­ur­stöðu að það væri ekk­ert annað að gera. Ég taldi mig vita með vissu að á þessum tíma væru mjög fáir úr starfs­manna­hópn­um, alls fimm manns auk nokk­urra stjórn­enda, sem hefðu séð þessa álykt­un. Ég taldi mig vita að það væru fáir sem hefðu komið að því að skrifa hana og að hún hefði ekki farið í neina dreif­ingu innan starfs­manna­hóps­ins. Af ein­hverjum ástæðum virð­ist Guð­mundur Bald­urs­son hafa fengið ein­hvers­konar aðgang eða veður af þessu og sömu­leiðis fyrr­ver­andi stjórn­andi sem reyndi að nota álykt­un­ina til að fjár­kúga mjög veg­legan starfs­loka­samn­ing út úr félag­inu.“

[adspot]Hún ákvað að ávarpa starfs­fólk dag­inn eftir við­talið og óska eftir lág­marks­traust­yf­ir­lýs­ingu starfs­fólks við sig. Við því var ekki orðið og nið­ur­staða starfs­manna­fundar inni­hald álykt­un­ar­innar ætti rétt á sér. Henni, og helsta sam­starfs­fólki henn­ar, hafi orðið ljóst að ef álykt­unin yrði gerð opin­ber myndi þau ekki getað starfað leng­ur. „Það myndi þessi her­ferð sem rekin hefur verið gegn okkur víða að loks­ins ná þessum raun­veru­lega árangri að við hefðum á end­anum engan trú­verð­ug­leika.“

Í kjöl­farið sagði hún af sér.

Ákvörðun félagsfólks hverjir stýra Eflingu

Þegar Sólveig Anna er spurð, í ljósi þess hvernig afsögn hennar bar að í haust, hvort hún telji sig geta starfað að nýju með því fólki sem vinni á skrif­stofu Eflingar seg­ist hún skilja mjög vel að fólk velti því fyrir sér. Hún hafi komið sínum skila­boðum um það mál skýrt frá sér í við­tölum sem hún fór í í nóv­em­ber, meðal ann­ars við Kjarnann. „Ég hef sagt það sem ég vil segja um það mál, sem leiddi til afsagnar minnar. Og ég vona að fjöl­miðlar og sam­fé­lagið allt skilji að bar­átta verka- og lág­launa­fólks er það stór og mik­il­væg að þetta snýst fyrst og síð­ast um hana. Það er ákvörðun félags­fólks Eflingar hverjir stýra félag­inu. Starfs­fólk skrif­stof­unnar vinnur fyrir félags­fólkið, ekki öfugt. Fari svo að við vinnum, og ein­hverjir starfs­menn skrif­stof­unnar geti ekki sætt sig við nið­ur­stöðu lýð­ræð­is­legra kosn­inga, þá er aug­ljóst að vilji félags­fólks gildir. Það er því ekki mitt að svara þess­ari spurn­ingu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár