Þórdís Lóa: Getum starfað með öllum hér

Oddviti Við­reisnar segir að flokk­ur­inn hafi gengið óbund­inn til kosn­inga og úti­lokar hún ekki sam­starf með neinum flokki.

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík.
Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir, odd­viti Við­reisnar í Reykja­vík. Mynd: Samsett mynd.

Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir, odd­viti Við­reisnar í Reykja­vík, segir að flokk­ur­inn hafi gengið óbund­inn til kosn­inga. „Við höfum sagt að við getum starfað með öllum hér,“ segir hún. Þetta kom fram í Silfrinu í dag en þar ræddu Egill Helgason og Fanney Birna Jóns­dóttir við odd­vita flokk­anna sem hlutu kosn­ingu í Reykja­vík í gær.

[links]Þórdís Lóa telur að borg­ar­búar séu að kalla eftir breyt­ingum og að nú séu komnir inn nýir flokkar sem byrja á núlli, öfugt við það sem verið hefur. Hún og Pawel Bar­toszek eru borg­ar­full­trúar Við­reisn­ar en flokk­ur­inn fékk 8,16 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum í gær.

Eyþór Laxdal Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir að nið­ur­staðan sé skýr og að eðli­legt sé að horft sé á hana þegar ræða skal meiri­hluta­sam­starf. Hann segir enn fremur að nýjar raddir séu komnar í stjórn­málum í borg­inni sem þurfi að heyr­ast. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk 30,77 pró­sent atkvæða og er því stærsti flokk­ur­inn í Reykja­vík.

Vigdís Hauks­dóttir, odd­viti Mið­flokks­ins í borg­inni, telur að stærsti flokk­ur­inn eigi að leiða við­ræð­urnar og vísar þar með til Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hún telur að Dagur B. Egg­erts­son, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar, muni ekki fórna borg­ar­stjórn­ar­stólnum og sé Viðreisn í lyk­il­stöðu til að mynda meiri­hluta með þeim og Flokki fólks­ins. Hún telur þann meiri­hluta vera mál­efna­legan.

Sanna Magda­lena Mörtu­dótt­ir og Sós­í­alista­flokk­ur­inn fengu góða kosn­ingu í gær en þau hlutu 6,37 pró­sent atkvæða. Þetta er í fyrsta skiptið sem flokk­ur­inn býður fram og segir Sanna að þetta sé allt nýtt fyrir þau og komi þau að borð­inu með sína per­sónu­legu reynslu. Hún segir að of snemmt sé að segja til um með hvaða flokki þau vilji vinna en að þau leggi áherslu á að koma vald­inu til fólks­ins og að mik­il­vægt sé að það hafi meira að segja um líf sitt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár