Viðreisn í lykilstöðu í Reykjavík

Viðreisn er í lyk­il­stöðu þegar kemur að myndun nýs meiri­hluta í borg­inni.

Viðreisn er í lyk­il­stöðu þegar kemur að því að mynda nýjan meiri­hluta í Reykja­vík, miðað við stöð­una eins og hún lítur út núna, en utan­kjör­fund­ar­at­kvæði hafa ekki verið verið talin.

Meiri­hlut­inn í borg­inni er fall­inn, en Sam­fylk­ingin er með 7 borg­ar­full­trúa sam­kvæmt nýj­ustu tölum, Píratar 2 og Vinstri græn einn. Flokk­arnir sem mynda núver­andi meiri­hluta eru því með 10 en hinir flokk­arnir með 13.

Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir og Pawel Bartoszek eru borg­ar­full­trúar Við­reisnar, eins og mál standa nú, en Viðreisn getur myndað meiri­hluta til bæði vinstri og hægri, með 12 full­trúa á móti 11.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er með afger­andi mest fylgi, en hann er með 30,36 pró­sent fylgi á móti 25,57 pró­sent fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar, þegar öll atkvæði hafa verið talin fyrir utan utan­kjör­fund­ar­at­kvæði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár