Útgjöld vegna hælisleitenda voru 3,4 milljarðar í fyrra

Heild­ar­út­gjöld ríkis og sveit­ar­fé­laga vegna veru hæl­is­leit­enda hér­lendis hefur numið 6,9 millj­örðum króna frá byrjun árs 2012 og til síð­ustu ára­móta.

Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra svaraði fyrirspurn um kostnað vegna hælisleitenda.
Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra svar­aði fyr­ir­spurn um kostnað vegna hæl­is­leit­enda. Mynd: Bára Huld Beck

Heild­ar­út­gjöld hins opin­bera vegna hæl­is­leit­enda voru um 3,4 millj­arðar króna í fyrra. Samtals hefur hann numið um 6,9 millj­örðum króna frá upp­hafi árs 2012. Þessar greiðslur ná yfir allan kostnað sem hlýst að veru hæl­is­leit­enda hér­lendis, starf­semi Útlend­inga­stofn­unar sem fellur til vegna mála­rekstrar umsækj­enda um alþjóð­lega vernd hjá stofn­un­inni og kostn­aði af rekstri kæru­nefndar útlend­inga­mála sem teng­ist mála­flokknum. Þetta kemur fram í svari Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Ólafs Ísleifs­sonar, þing­manns Flokks fólks­ins, um útgjöld vegna hæl­is­leit­enda.

Inni í þessum tölum greiðslur til sveit­ar­fé­laga vegna þeirrar þjón­ustu sem þau veita umsækj­endum um alþjóð­lega vernd. Þar er Reykja­vík langstærsti þjón­ustu­veit­and­inn en alls fékk hún 411 millj­ónir króna í fyrra vegna þjón­ustu við hæl­is­leit­endur. Hafn­ar­fjörður fékk 44 millj­ónir króna. Útlend­inga­stofnun er auk þess með þjón­ustu­samn­ing við Reykja­nesbæ en í svar­inu kemur ekki fram hverjar greiðslur til þess sveit­ar­fé­lags voru í fyrra.

Í upp­gjöri rík­is­sjóðs fyrir fyrri hluta árs 2017 kom fram að hrein útgjöld vegna hæl­is­leit­enda á því tíma­bili hafi verið mun hærri en upp­haf­lega áætlað var. Þar sagði: „Í fjár­heim­ildum vegna árs­ins 2017 voru veru­lega van­á­ætl­aðar í fjár­laga­gerð fyrir árið 2017 í ljósi for­dæma­lausrar fjölg­unar hæl­is­um­sókna á síð­ustu mán­uðum árs­ins 2016. Kostn­aður vegna þess­ara umsókna hefur að mestu leyti fallið til á yfir­stand­andi ári.“

Tryggja ákveðna grunnþjónustu

Í svar­inu segir að Útlend­inga­stofnun og sveit­ar­fé­lögin þrjú tryggi ákveðna grunn­þjón­ustu á meðan umsækj­andi sem bíður nið­ur­stöðu vegna umsóknar sinnar dvelur í úrræði á vegum Útlend­inga­stofn­unar eða sveit­ar­fé­lags sem stofn­unin hefur gert þjón­ustu­samn­ing við. „Ef undan er skilin sú grunn­þjón­usta sem snýr að hús­næði, uppi­haldi, skóla­göngu og heil­brigð­is­þjón­ustu, þá eru umsækj­anda tryggðar án end­ur­gjalds sam­göngur vegna erinda sem varða umsókn hans, félags­leg ráð­gjöf hjá sveit­ar­fé­lagi, túlka­þjón­usta, íslensku­kennsla, inter­net­að­gangur og upp­lýs­inga­streymi um afþr­ey­ingu í nærum­hverf­inu. Sveit­ar­fé­lag getur veitt aukna þjón­ustu, ákveði það svo.“

Börnum sem sækja um alþjóð­lega vernd og falla undir skóla­skyldu er einnig tryggð skóla­ganga. Áður en barn fer í skóla fer það í lækn­is­skoðun sam­kvæmt reglum sótt­varna­læknis. „Í þeim til­vikum þar sem barn er búsett í úrræði á vegum Útlend­inga­stofn­unar er barn­inu tryggð skóla­ganga í Hafn­ar­firði. Alla jafna hefst skóla­ganga 4–6 vikum eftir komu, en það ræðst af því hversu fljótt lækn­is­skoðun fer fram og nið­ur­staða liggur fyrir.“

Hælisleitendum fækkaði á milli ára

Flótta­mönnum sem sóttu um hæli á Íslandi fækk­aði á milli áranna 2016 og 2017 og fjöldi þeirra sem voru í þjón­ustu Útlend­inga­stofn­unar eða sveit­ar­fé­laga dróst saman um þriðj­ung. Þá hafa færri flótta­menn sótt um hæli hér á landi það sem af er ári en gerðu það á sama tíma­bili í fyrra, en alls 181 gerði slíkt á fyrstu fjórum mán­uðum árs­ins 2018.

Á öllu síð­asta ári sóttu 1.096 manns um hæli á Íslandi. Það eru færri en sóttu um hæli á Íslandi á árinu 2016. Þá fengu alls 135 alþjóð­lega vernd og leyfi til að dvelja hér áfram, en árið 2017 voru alls 1.293 umsóknir um slíkt afgreidd­ar. Því fékk einn af hverjum tíu hæl­is­leit­endum sem fékk nið­ur­stöðu í hæli á Íslandi.

Þeim hæl­­is­­leit­endum sem voru í þjón­­ustu sveit­­ar­­fé­laga eða Útlend­inga­­stofn­unar fækk­aði mikið í fyrra. Þeir voru 820 í byrjun des­em­ber 2016 en 559 í byrjun sama mán­aðar 2017. Það þýðir að hæl­­is­­leit­endum sem voru á for­ræði ríkis eða sveit­­ar­­fé­laga fækk­aði um tæpan þriðj­ung á einu ári.

Þeir sem hafa sótt um hæli og bíða eftir að mál þeirra fái afgreiðslu fá fram­­­færslu­eyri. Hann er átta þús­und krónur fyrir ein­stak­l­ing á viku en 23 þús­und krónur hjá fjög­­­urra manna fjöl­­­skyldu. Auk þess fær hver full­orð­inn hæl­­­is­­­leit­andi 2.700 krónur í vasa­pen­ing á viku og for­eldrar fá við­­­bótar ert barn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár