„Það er lygi hjá Útlendingastofnun“

Miklar umræður sköp­uð­ust á þingi í dag um fyr­ir­komu­lag er varðar afgreiðslu umsókna um rík­is­borg­ara­rétt.

Andrés Ingi Jónsson þingmaður Pírata.
Andrés Ingi Jónsson þing­maður Pírata. Mynd: Bára Huld Beck

Fjöl­margir þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar og tveir þing­menn Vinstri grænna gagn­rýndu harð­lega afgreiðslu Útlend­inga­stofn­unar á umsóknum um rík­is­borg­ara­rétt til Alþingis undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta á Alþingi í dag. Andrés Ingi Jónsson þing­maður Pírata sagði meðal ann­ars að það væri lygi hjá Útlend­inga­stofnun að alls­herjar- og mennta­mála­nefnd hefði sam­þykkt það verk­lag sem hún lagði fram 2018 til þess að hún þyrfti ekki „að standa í því að afgreiða jafn margar umsóknir til Alþingis og raun bar vitni“.

Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir þing­maður Pírata hóf umræð­una og benti á að um ára­bil hefði það fyr­ir­komu­lag verið haft á afgreiðslu umsókna um rík­is­borg­ara­rétt sem beint væri til Alþingis að þær færu í gegnum Útlend­inga­stofnun sem tæki þær saman ásamt öðrum upp­lýs­ingum og sendi Alþingi til afgreiðslu.

Sagði hún að staðið hefði til að gera þetta nú rétt fyrir jólin líkt og endranær en vegna „tregðu Útlend­inga­stofn­unar“ til að afhenda gögnin hefði alls­herjar- og mennta­mála­nefnd farið fram á afhend­ingu þeirra með vísan til laga um þing­sköp Alþingis sem kveður á um skýra skyldu stjórn­valda til að verða við slíkri beiðni þing­nefndar.

„Hefur stofn­unin nú þriðja sinni sýnt þing­inu þá van­virð­ingu að lýsa því yfir að hún muni ekki afhenda þing­inu umbeðin gögn og upp­lýs­ingar, að sögn sam­kvæmt fyr­ir­mælum ráð­herra. Fer ég því fram á að for­seti standi vörð um virð­ingu Alþingis Íslend­inga og gangi á eftir því að stjórn­völd sinni lög­bund­inni skyldu sinni til að afhenda þing­inu gögn og upp­lýs­ingar sem óskað hefur verið eftir með vísan til laga um þing­sköp Alþingis,“ sagði Arndís Anna.

Bagalegt að Útlendingastofnun hafi ekki orðið við beiðninni fyrir jólin

Logi Ein­ars­son for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar benti í fram­hald­inu á að öll nefndin væri sam­mála um að þetta væri alger­lega óboð­legt.

„Þess vegna tek ég undir orð hátt­virtrar þing­konu þar sem við óskum eftir atbeina for­seta, að hún beiti sér fyrir því að Útlend­inga­stofnun verði við þess­ari beiðni okkar. Það var auð­vitað baga­legt að þetta gæti ekki gerst fyrir jól eins og van­inn er í venju­legu árferði, en okkur var gefið vil­yrði fyrir því að fá gögnin fyrir 1. febr­úar þannig að við gætum klárað þetta. Ég óska sem sagt eftir því að þingið og for­seti legg­ist á eitt um að fara fram á þetta,“ sagði hann.

„Í algeru samræmi og samhengi við það hvernig núverandi ríkisstjórn umgengst þingið“

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar sagð­ist ein­dregið taka undir til­mæli þing­mann­anna sem rætt höfðu málið á undan henni.

„Þetta er algjör­lega óboð­legt og þá er orðin veru­leg stefnu­breyt­ing í sam­skiptum nefndar, í þessu til­viki und­ir­nefnd­ar­innar varð­andi rík­is­borg­ara­rétt­inn, og ráðu­neyt­is­ins. Það þarf að kom­ast á hreint hvort þetta er mark­visst af hálfu rík­is­stjórnar og ráð­herra sem fer með þennan mála­flokk. Þing­nefndin og þing­menn­irnir sem vinna að því að fara yfir gögn varð­andi rík­is­borg­ara­rétt­inn verða að hafa aðgang að öllum gögnum. Það er réttur okkar og skylda til að við getum sinnt því hlut­verki sem við höfum skrifað undir, það er stjórn­ar­skrár­var­inn eiður. Mér finnst þetta afskap­lega baga­legt en um leið er þetta í algeru sam­ræmi og sam­hengi við það hvernig núver­andi rík­is­stjórn umgengst þingið,“ sagði hún.

Hvað er þetta annað en gríðarleg vanvirðing við Alþingi?

Andrés Ingi Jónsson þing­maður Pírata tók þátt í umræð­unum og sagði hann að honum rynni blóðið til skyld­unnar að tjá sig um afgreiðslu Útlend­inga­stofn­unar á umsóknum um rík­is­borg­ara­rétt til Alþingis vegna þess að hann sat í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd síð­ustu tvö kjör­tíma­bil.

„Þá reyndi stofn­unin með lið­sinni ráðu­neyt­is­ins ítrekað að breyta verk­lagi; með góðu eða illu skyldi breyta verk­lagi þannig að hún þyrfti ekki að standa í því að afgreiða jafn margar umsóknir til Alþingis og raun bar vitni. Nú hátt­aði svo til við upp­haf þessa kjör­tíma­bils að nýliðar skip­uðu alls­herjar- og mennta­mála­nefnd að mestu leyti. Þeim var talin trú um að orðið hefði sam­mæli á síð­asta kjör­tíma­bili um breytt verk­lag, það verk­lag sem stofn­unin er núna ein­hliða búin að ákveða að beita.

Ég er hér kom­inn, frú for­seti, til að segja að þetta er lygi. Það er lygi hjá Útlend­inga­stofnun að alls­herjar- og mennta­mála­nefnd hafi sam­þykkt það verk­lag sem hún lagði fram hér 2018. Við gerðum það aldrei. Ekki einn ein­asti þing­maður, hvorki stjórnar né stjórn­ar­and­stöðu á þeim tíma, sam­þykkti að Útlend­inga­stofnun myndi hunsa lög­boðið verk­efni sitt gagn­vart rík­is­borg­ara­rétti. Hún heldur því fram, fær það ekki sam­þykkt. Gerir þetta samt svona. Hvað er það, frú for­seti, annað en gríð­ar­leg van­virð­ing við Alþingi?“ spurði hann.

„... fyrirgefið, ég ætlaði að segja eitthvað dálítið ljótt“

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir þing­maður Vinstri grænna tók undir með stjórn­ar­and­stöð­unni. „Mér finnst þetta alveg frá­leitt. Það eru hér lög og eftir þeim eigum við að fara. Ég hef setið í und­ir­nefnd­inni sem fjallað hefur um slík mál, þ.e. rík­is­borg­ara­rétt, og eins og hér hefur komið fram þá hefur verið reynt að breyta verk­lag­inu. Það má vel vera að því þurfi að breyta, en það ger­ist ekki ein­hliða í dóms­mála­ráðu­neyt­inu. Það ger­ist í með­förum þings­ins. Og þess vegna verður hæstv. dóms­mála­ráð­herra að hlut­ast til um það að Alþingi fái þessi gögn til að klára vinnu sína. Hvort ráð­herr­ann vill svo í fram­hald­inu taka eitt­hvert sam­tal um það að breyta verk­lag­inu er bara allt annað mál. Lögin eru svona í dag og eftir þeim ber að fara.

Þetta er alger­lega ólýð­ræð­is­legt og ógeð ... fyr­ir­gefið, ég ætl­aði að segja eitt­hvað dálítið ljótt. Við getum ekki látið koma svona fram við okkur af hálfu fram­kvæmd­ar­valds­ins. Það á ekk­ert með að hlut­ast til með þessum hætti um verk­lag sem er í lögum og við störfum eftir hér á Alþingi. Þannig að hæst­virtur dóms­mála­ráð­herra verður að hlut­ast til um að við fáum þessi gögn,“ sagði Bjarkey.

Þarf að breyta umsýslunni

Annar þing­maður Vinstri grænna tók til máls, Jódís Skúla­dóttir. „Ég kem hingað til að taka undir það sem hér hefur verið sagt. Þetta er auð­vitað glóru­laust. Og það að við sem sitjum í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd, við sem sitjum í und­ir­nefnd­inni, bíðum gagna á meðan þessi hringa­vit­leysa milli stofn­unar og ráðu­neytis, þar sem hver vísar á annan, er að leys­ast er óboð­legt. Ég vil minna á að regl­urnar voru á heima­síðu Útlend­inga­stofn­unar til 1. októ­ber. Umsækj­endur greiða fyrir þessar umsóknir sem ber að vísa til Alþingis. Því verður að fara eftir þessum lögum. Það er nátt­úr­lega bara galið að stofnun eða ráðu­neyti ætli ein­hliða að breyta þessum vinnu­reglum.

Ég ætla líka að bæta því við að við erum sjálf­sagt mörg sam­mála því að umsýsl­unni þarf að breyta. Hún er ekki frá­bær eins og hún er. En það verður ekki gert með ein­hliða ákvörðun sem okkur ber svo að fara eftir. Það virkar ekki þannig,“ sagði Jódís.

Líneik Anna Sæv­ars­dóttir, for­seti 2. vara­for­seti Alþingis, tók til máls og sagði að hún vildi láta þess getið að hún myndi beita sér fyrir því að sam­tal færi fram á milli Alþingis og fram­kvæmd­ar­valds­ins um þetta mál, þ.e. um sam­skipti Útlend­inga­stofn­unar og alls­herjar- og mennta­mála­nefndar.

Finnst óeðlilegt hversu hátt hlutfall ríkisborgararéttarveitinga fer fram með lögum frá Alþingi

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra bland­aði sér í umræð­urnar og sagði að þingið ætti auð­vitað rétt á því að fá send gögn sem því ber lögum sam­kvæmt.

„Ég ætla hins vegar að vekja athygli á öðru í þessum mála­flokki almennt sem mér finnst vera mik­ill skortur á að sé tekið inn í umræð­una hér, sem er að það er auð­vitað full­kom­lega óeðli­legt hversu hátt hlut­fall rík­is­borg­ara­rétt­ar­veit­inga fer fram með lögum frá Alþingi. Það gefur til­efni til þess að skoða lögin sjálf. Ef vilji lög­gjafans stendur til þess að rýmka mjög veru­lega skil­yrði þess að fá rík­is­borg­ara­rétt á Íslandi þá á að breyta lög­unum en ekki vera með upp­hróp­anir hér á þingi um þau mál sem fengið hafa nei­kvæða afgreiðslu réttrar stofn­unar á grund­velli þeirra laga sem Alþingi sjálft setti, að allir neit­an­irnar þurfi að koma til þings­ins vegna þess að þingið ætli að fara aftur yfir það hvers vegna málin hafa ekki fengið afgreiðslu.

Hérna höfum við í sumum til­fellum verið að tala um á annað hund­rað veit­ingar rík­is­borg­ara­réttar með lögum sem er full­kom­lega óeðli­legt ástand, vegna þess að inn­grip lög­gjafans fram yfir eigin lög­gjöf um rík­is­borg­ara­rétt hlýtur ávallt að vera algjört und­an­tekn­inga­mál,“ sagði ráð­herr­ann.

Þetta er neyðarúrræði

Helga Vala Helga­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar benti í fram­hald­inu á að Íslend­ingar væru með lög um veit­ingu rík­is­borg­ara­réttar.

„Annars vegar er það með stjórn­valds­á­kvörðun hjá Útlend­inga­stofnun og hins vegar með lögum. Þeir umsækj­endur sem senda inn umsögn sína til Alþingis gera það vegna þess að þeir upp­fylla ekki skil­yrði til að fá veit­ingu rík­is­borg­ara­réttar með stjórn­valds­á­kvörðun. Fyrir því kunna að vera margar ástæður; skortur á skil­ríkjum frá heima­landi, skortur á lesskiln­ingi, að fólk sé ólæst og geti því ekki farið í gegnum íslensku­prófið, Íslend­ingar sem hafa misst rík­is­borg­ara­rétt sinn en hafa ekki upp­fyllt skil­yrði til búsetu og svo fram­vegis. Þetta er neyð­ar­úr­ræði þar sem Alþingi grípur inn í. Það er nauð­syn­legt að hafa það og á ekki að breyta því. Þetta eru um 25 umsóknir á ári og ég held að við séum ekk­ert of góð til þess.“

Lagði hún til að Alþingi breytti fyr­ir­komu­lag­inu vegna þessa ástands, aug­lýsti eftir umsóknum, þ.e. sendi út aug­lýs­ingu um að umsækj­endur sem biðu milli vonar og ótta sendi umsóknir sínar beint til Alþingis svo að nefndin fengi þær upp­lýs­ingar beint.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár