Mótmæla orðum innanríkisráðherra – Hann ætti að „skoða sitt eigið tún“

Margir þing­menn gagn­rýndu Jón Gunn­ars­son inn­an­rík­is­ráð­herra á þingi í dag og sögðu hann meðal ann­ars sýna hroka og lít­ils­virð­ingu í skrifum sínum um gagn­rýni á afgreiðslu Útlend­inga­stofn­unar á umsóknum um rík­is­borg­ara­rétt.

Jón Gunnarsson innanríkisráðherra
Jón Gunn­ars­son inn­an­rík­is­ráð­herra Mynd: Bára Huld Beck

Þingmenn Sam­fylk­ing­ar­innar, Við­reisnar og Pírata skutu fast á inn­an­rík­is­ráð­herra, Jón Gunn­ars­son, undir liðnum fund­ar­stjórn for­seta í dag. Þingmenn stjórn­ar­flokk­anna blönd­uðu sér einnig í umræð­urnar.

Ástæðan var grein ráð­herr­ans sem birt­ist á Vísi í gær en þar gerir hann gagn­rýni þing­manna fyrr í vik­unni að við­fangs­efni. Forsagan er sú að fjöl­margir þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar og tveir þing­menn Vinstri grænna gagn­rýndu harð­lega afgreiðslu Útlend­inga­stofn­unar á umsóknum um rík­is­borg­ara­rétt til Alþingis.

Inn­an­rík­is­ráð­herra sagði meðal ann­ars í grein sinni á Vísi að þing­menn hefðu hver af öðrum farið rangt með stað­reyndir máls sem hefðu auki þess ekki komið fund­ar­stjórn nokkurn skap­aðan hlut við. „Í þessum ranga mál­flutn­ingi á röngum tíma varð þeim flestum tíð­rætt um virð­ingu Alþingis. Kannski ætti það verk­efni að efla virð­ingu Alþingis að byrja í tún­inu heima,“ sagði hann.

Telur ráðherrann hafa talað af miklum hroka

Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir þing­maður Pírata hóf umræð­una og sagði hún að ráð­herr­ann hefði talað af miklum hroka gagn­vart þing­inu í grein­inni.

„Þar er tvennu ruglað saman, ann­ars vegar beiðn­inni sem Alþingi hefur beint til stjórn­valda um afhend­ingu til­tek­inna gagna og upp­lýs­inga á grund­velli laga sem stjórn­völdum ber að sinna og hins vegar ferli við afgreiðslu umsókna um rík­is­borg­ara­rétt, sem sann­ar­lega er í vinnslu í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd. Í grein­inni tekur ráð­herra af allan vafa um það að hann telur það í sínum verka­hring að stýra vinnu þings­ins.“

Biðlaði hún til for­seta þings­ins að beita sér af öllum þunga til að standa vörð um virð­ingu rík­is­stjórn­ar­innar gagn­vart Alþingi.

Greinin með öllu forkastanleg

Helga Vala Helga­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar kom næst í pontu og sagð­ist taka undir orð Arndísar Önnu. „Þessi grein hæst­virts inn­an­rík­is­ráð­herra er með öllu for­kast­an­leg því að svo virð­ist sem hæst­virtur ráð­herra átti sig ekki á inni­haldi laga í mála­flokknum sem hann stýrir. Hann leyfir sér í þessu máli að tala um tvö­falt kerfi þar sem jafn­ræði ríkir ekki, að það séu útvaldir sem fái hér rík­is­borg­ara­rétt með lögum.“

Hún hvatti ráð­herr­ann til þess að kynna sér betur bak­grunn þess­ara laga og ástæður þess að málið væri með þessum hætti. Hún tók jafn­framt undir þá ósk að for­seti færi í lið með þing­inu og beitti sér fyrir því að fram­kvæmd­ar­valdið og ráð­herrar virtu skýr laga­boð um störf Alþingis.

Hún sagði í annarri ræðu sinni skömmu síðar að það væri grafal­var­legt þegar ráð­herra léti per­sónu­lega skoðun sína koma í veg fyrir að stofn­anir rík­is­ins færu að lögum.

„Það er alveg skýrt í lögum um veit­ingu rík­is­borg­ara­réttar að Alþingi skal veita rík­is­borg­ara­rétt. Aðstæður fólks bjaga jafn­ræði. Það er þannig að þegar rík­is­borg­ara­rétt­ur­inn er veittur sam­kvæmt stjórn­valds­á­kvörðun þá þarf að upp­fylla öll laga­skil­yrði en þess vegna, og einmitt þess vegna, er Alþingi veitt þessi und­an­þágu­heim­ild fyrir þá ein­stak­linga sem geta ekki upp­fyllt öll laga­skil­yrðin.“

Hvatti hún ráð­herr­ann til þess að kynna sér aðstæður fólks sem er í neyð „sem hefur jafn­vel búið hér frá fæð­ingu og sem hefur jafn­vel búið hér ára­tugum saman en getur ekki upp­fyllt öll laga­skil­yrði, til dæmis vegna þess að það er ekki læst, vegna þess að það getur ekki lært annað tungu­mál, vegna þess að það getur ekki lært að lesa letur eins og við notum hér eða hrein­lega vegna heilsu­fars­á­stæðna. Þess vegna getur það ekki upp­fyllt laga­skil­yrði til að fá rík­is­borg­ara­rétt sam­kvæmt stjórn­valds­á­kvörðun. Þetta er und­an­þágu­heim­ild sem Alþingi verður að hafa einmitt vegna skoð­ana eins og ráð­herra hefur nú sýnt.“

Vill að forseti Alþingis taki málið upp við ráðherra

Andrés Ingi Jónsson þing­maður Pírata tók einnig þátt í umræð­unum. „Einu sinni í gamla daga, haustið 2018, sagði dóms­mála­ráðu­neytið að heppi­leg­ast væri að end­ur­skoðun fyr­ir­komu­lags um veit­ingu rík­is­borg­ara­réttar yrði unnin í góðu sam­starfi ráðu­neyt­is­ins, Útlend­inga­stofn­unar og alls­herjar- og mennta­mála­nefndar. Nú kemur fram í grein dóms­mála­ráð­herra að ráðu­neytið hafi til­kynnt Alþingi ein­hliða um breyt­ingar á verk­lagi sem þau hafa ítrekað reynt að gera í trássi við vilja alls­herjar- og mennta­mála­nefndar. Og hvenær var það gert? Það var gert í júní á síð­asta ári þegar þingið er í hléi.

Alls­herjar- og mennta­mála­nefnd kemur ekki saman fyrr en næstum hálfu ári síðar og þá er allt orðið of seint. Þá er Útlend­inga­stofnun búin að slugsa nógu lengi til að ekki sé hægt að afgreiða umsóknir þeirra rúm­lega 100 ein­stak­linga sem borg­uðu 25.000 hver til að fá afgreiðslu hennar í sam­ræmi við lög. Þessi lít­ils­virð­ing ráð­herra, sem birt­ist í grein hans á Vísi, er eitt­hvað sem ég vænti að for­seti taki upp af mik­illi alvöru við ráð­herr­ann. Og það að hann telji sig geta til­kynnt ein­hliða hvernig Alþingi eigi að starfa bendir til þess að hann þurfi kennslu­stund í stjórn­sýslu,“ sagði Andrés Ingi.

Hvatti forseta til að grípa inn í

Hanna Katrín Frið­riks­son þing­flokks­for­maður Við­reisnar not­aði tæki­færið og lýsti yfir áhyggjum af því að henni þætti þess­ari rík­is­stjórn vera orðið fullt tamt að feta það sem áður hefði talið ótroðnar slóðir, þ.e. að efn­is­at­riði ein­stakra mála og afstaða ein­stakra ráð­herra, jafn­vel rík­is­stjórn­ar­innar, til þeirra stýrði því hvort lög­bundin upp­lýs­inga­gjöf ráðu­neyta eða und­ir­stofn­ana þeirra til Alþingis væri virt.

„Ég ætla bara að hvetja for­seta til að grípa inn í og standa með þing­inu og almenn­ingi í þessum málum.“

Jódís Skúla­dóttir þing­maður Vinstri grænna tók undir gagn­rýn­ina. „Þetta mál er miklu stærra en afgreiðsla umsókna um rík­is­borg­ara­rétt. Hér er bara um þrí­skipt­ingu valds­ins að ræða. Meðferð þessa máls hefur verið með öllum ólík­indum og ég held að það sé alveg ljóst að for­seti og við sem hér sitjum þurfum að leysa úr þessu. Þetta eru óboð­leg vinnu­brögð. Það er ekki ráðu­neytis eða stofn­unar að skipa þing­nefnd ein­hliða fyrir um breytt verk­lag. Þannig gengur það ekki fyrir sig.

Stofn­un­inni ber að veita okkur ákveðin gögn innan ákveð­ins frests sam­kvæmt lögum og það ber að virða. Annað mál er svo hvort þessi til­högun sé rétt og hvort við þurfum að breyta henni. En svona ganga málin ein­fald­lega ekki fyrir sig,“ sagði hún.

Breytingin kom nefndarmönnum á óvart

Bryndís Har­alds­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður alls­herjar- og mennta­mála­nefndar, sagð að það hefði komið nefnd­ar­mönnum á óvart að orðið hefði breyt­ing á verk­lagi Útlend­inga­stofn­unar.

„En það er alveg ljóst að það bréf barst til þáver­andi alls­herjar- og mennta­mála­nefndar. Ég get tekið undir að ráðu­neyti eða stofn­anir ákveða ekki ein­hliða breytt verk­lag þings­ins, það er alveg ljóst. En við höfum átt góðan fund með ráðu­neyt­is­stjóra inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins þar sem er bent á þá ann­marka sem uppi eru við það fyr­ir­komu­lag sem við­haft hefur verið hér á síð­ustu miss­erum. Það lýtur að jafn­ræði þeirra sem eru að sækja um rík­is­borg­ara­rétt. Við hljótum að sjálf­sögðu að vilja gæta að því jafn­ræði þannig að ég tek undir það sem sagt hefur verið hér, við þurfum að finna betra fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lag.

En ég er þess full­viss að þegar við setj­umst niður með full­trúum Útlend­inga­stofn­unar, sem núna hafa sent okkur þær umsóknir sem borist hafa, umsagnir um þær umsóknir sem þeir hafa náð að fara yfir, þá getur und­ir­nefnd alls­herjar- og mennta­mála­nefndar kom­ist að góðri nið­ur­stöðu og sátt í þessu máli. Við hljótum öll að vilja öll leysa þetta.“

Ráðherrann ætti að skoða „eigið tún“

Gísli Rafn Ólafsson þing­maður Pírata sagð­ist taka undir gagn­rýn­ina. „Mig langar hins vegar að benda á eina stóra óvirð­ingu sem hæst­virtur inn­an­rík­is­ráð­herra setur fram í nið­ur­lagi greinar sinnar. Þar talar hann um að við höfum verið að nota umræður um fund­ar­stjórn for­seta til að kvarta yfir starfs­háttum ráð­herra og stofn­ana hans.“

Benti hann ráð­herra á að hann hefði ekki verið í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi frá því fyrir ára­mót og því ekki gefið kost á því að þing­menn gagn­rýndu þetta á neinum öðrum stað í dag­skránni en undir fund­ar­sköpum for­seta. „Ég held að hæst­virtur ráð­herra ætti að skoða sitt eigið tún þegar kemur að því að sýna Alþingi virð­ingu,“ sagði hann og vís­aði þar með í orð ráð­herra í grein­inni.

Setur traust sitt á Bryndísi og Birgi

Líneik Anna Sæv­ars­dóttir þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og 2. vara­for­seti Alþingis bland­aði sér í umræð­una og sagð­ist taka undir með þing­mönn­unum og leggja áherslu á að sam­skipti Alþingis og fram­kvæmd­ar­valds­ins færi fram sam­kvæmt lögum og að virð­ing væri á báða bóga.

„Ég vil líka koma því að að ég set mitt traust á hæst­virtan for­mann alls­herjar- og mennta­mála­nefndar, Bryndísi Har­alds­dóttur, og hæst­virtan for­seta varð­andi það að koma á eðli­legum sam­skiptum þannig að afgreiðsla þeirra umsókna sem nú liggja fyrir geti farið fram. Ég vil samt sem áður líka taka undir það að mik­il­vægt er að vera stöðugt að vakta og end­ur­skoða fyr­ir­komu­lagið og það þarf að ger­ast í sam­starfi alls­herjar- og mennta­mála­nefndar og ráðu­neytis.“

„Er komið upp vantraust í stjórnarliðinu á innanríkisráðherra?“

Andrés Ingi sagði í fram­hald­inu að það væri „nú ýmis dellan í Vís­is­grein hæst­virts ráð­herra sem mætti nefna“.

„En mig langar að nefna sér­stak­lega þá stað­hæf­ingu að almennar umsóknir um rík­is­borg­ara­rétt lendi í bið vegna þeirra sem sækja um til Alþingis. Allt þetta fólk greiðir fyrir afgreiðslu Útlend­inga­stofn­unar í sam­ræmi við gjald­skrá sem á að end­ur­spegla þá vinnu sem felst í afgreiðsl­unni. Annað hvort er gjald­skráin röng, sem er á ábyrgð ráð­herra, eða að fjár­mun­irnir skila sér ekki til Útlend­inga­stofn­unar, í starfs­liðið, til að vinna þessar umsóknir. Að kenna fólk­inu sem sækir um til Alþingis um tafir á skrif­stofu Útlend­inga­stofnun – þetta er bara þvæla. Svo tek ég sér­stak­lega eftir því að hér mæta full­trúar sam­starfs­flokk­anna upp í ræðu­stól. Fulltrúi Vinstri grænna gagn­rýnir ráð­herr­ann berum orðum. Fulltrúi Fram­sóknar lýsir fullu trausti á tveimur Sjálf­stæð­is­mönnum. Hvorugur þeirra er ráð­herr­ann. Hvorugur Sjálf­stæð­is­mað­ur­inn sem hátt­virtur þing­maður Líneik Anna Sæv­ars­dóttir treystir í þessu máli er ráð­herra mála­flokks­ins.“

Spurði hann hvort komið væri upp van­traust í stjórn­ar­lið­inu á inn­an­rík­is­ráð­herra.

Vill uppfæra verklagið

Bergþór Ólason þing­maður Mið­flokks­ins kom síð­astur inn í umræð­una og sagð­ist vilja rifja upp að fyr­ir­komu­lagið sem við­haft væri í þessum efnum væri ekki nýtt vanda­mál.

„Sjálfur hef ég í gegnum allt liðið kjör­tíma­bil setið hjá við afgreiðslu rík­is­borg­ara­réttar, ekki vegna þess að ég hefði per­sónu­lega út á þá sem hann hlotn­að­ist að setja heldur þótti mér það fyr­ir­komu­lag sem við­haft hefur verið mjög brogað, svo að vægt sé til orða tekið, og gerði ítrekað til­lögu um að það yrði upp­fært og lag­fært. Alltaf var tekið vel undir það en svo ger­ist ekki neitt. Það ger­ist ekki neitt fyrr en liðið kjör­tíma­bil er búið, þá ger­ist þetta með þeim hætti sem hér hefur verið lýst.

Ég er hræddur um að við séum að fara að sigla inn í annað kjör­tíma­bil undir sam­starfi þess­ara sömu flokka þar sem mál eru þæfð og svæfð þar til póli­tíkusarnir eru komnir í skjól eins og í þessu máli síð­ast­liðið sumar þegar búið var að fresta þingi og fólk komið í und­ir­bún­ing kosn­inga. Ég vona bara að sú hvatn­ing sem hér hefur komið fram til for­manns hátt­virtrar alls­herjar- og mennta­mála­nefndar að upp­færa þetta verk­lag verði til ein­hvers gagns því að und­an­farin fjögur ár urðu til lít­ils í þeim efnum þar til ráðu­neytið sjálft steig inn í málið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Útlendingamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár