Fjölskyldum af þýskum gyðingaættum vísað frá í seinni heimsstyrjöldinni– „Þessi saga er að endurtaka sig“

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar segir að Íslend­ingar verði að sýna mannúð og sam­hug í verki og hjálpa barna­fjöl­skyldum á flótta og fólki í neyð til að finna frið­ar­höfn og fram­tíð í öruggu landi.

Oddný Harðardóttir þingmaður Samfylkingarinnar.
Oddný Harð­ar­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Oddný Harð­ar­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sagði undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag að Íslend­ingar yrðu að gera betur í mál­efnum fólks á flótta.

„Árlega vísum við fjölda hæl­is­leit­enda úr landi. Þar í hópi eru margir sem sætt hafa ofsóknum og ógn í heima­landi sínu en við kjósum að senda þau út í óvissu og ógn sem við viljum helst ekki við­ur­kenna eða horfast í augu við.“

Hóf hún mál sitt á að vísa í útvarps­þátt­inn Lestina á Rás 1 sem útvarpað var síð­ast­lið­inn mánu­dag. Þar hefðu hlust­endur verið minntir á það þegar fjöldi fjöl­skyldna af þýskum gyð­inga­ættum og ann­arra póli­tískra flótta­manna reyndi að leita skjóls á Íslandi fyrir ofsóknum nas­ista við upp­haf seinni heims­styrj­ald­ar­innar.

„Það voru fjöl­skyldur sem vildu leita hér skjóls, setj­ast hér að og miðla þekk­ingu sinni og verk­kunn­áttu. Þessum umsóknum var nær öllum hafnað af íslensku rík­is­stjórn­inni. Þetta sýna yfir 2.000 skjöl frá dóms- og kirkju­mála­ráðu­neyt­inu frá árunum 1935–1941. Átak­an­legar umsóknir frá örvænt­ing­ar­fullu fólki í sárri neyð. Reyndar fór það svo að flestir þess­ara umsækj­enda létu lífið í útrým­ing­ar­búðum nas­ista. Þetta er svartur kafli í sögu inn­flytj­enda­mála á Íslandi sem við þurfum að horfast í augu við,“ sagði hún.

Vitum ekki hver örlög fólksins verða

Benti Oddný á að nú kynni ein­hver að segja að þetta væri liðin tíð. Nú væri öldin önnur og að Ísland væri í far­ar­broddi í mann­úð­ar­málum í heim­inum.

„En það er ekki alveg þannig. Þessi saga er að end­ur­taka sig þó með ólíkum hætti sé. Árlega vísum við fjölda hæl­is­leit­enda úr landi. Þar í hópi eru margir sem sætt hafa ofsóknum og ógn í heima­landi sínu en við kjósum að senda þau út í óvissu og ógn sem við viljum helst ekki við­ur­kenna eða horfast í augu við.

Við vitum ekk­ert hver örlög þeirra verða eða hafa orðið en rétt eins og fyrr, á sama hátt og við berum ábyrgð á örlögum gyð­inga­fjöl­skyldn­anna fyrr á árum, þá berum við ábyrgð á örlögum þeirra hæl­is­leit­enda sem við sendum út í óvissu og hættu­legar aðstæður. Hér verðum við að gera betur. Við verðum að sýna mannúð og sam­hug í verki og hjálpa barna­fjöl­skyldum og fólki í neyð til að finna frið­ar­höfn og fram­tíð í öruggu landi,“ sagði hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár