Meðferð gegn PCOS í kortunum

Nýjar nið­ur­stöður sem birtar voru í tíma­rit­inu Nature Medicine varpa ljósi á ástæð­una að baki fjöl­blöðru­eggja­stokks­heil­kenni og hugs­an­lega með­ferð gegn því.

Ein af hverjum fimm konum upp­lifir heil­kenni sem nefn­ist fjöl­blöðru­eggja­stokks­heil­kenni (PCOS) á lífs­leið­inni. Nýjar nið­ur­stöður sem birtar voru í tíma­rit­inu Nature Medicine varpa ljósi á ástæð­una að baki heil­kenn­inu og hugs­an­lega með­ferð gegn því.

PCOS ein­kenn­ist af því að kona er með hækkuð karl­hormón miðað við það sem eðli­legt telst. Einkenni geta meðal ann­ars verið auk­inn hár­vöxtur á lík­ama, hár­losi á höfði og skert frjó­semi þó ein­kennin séu mis­mun­andi og mis­mikil milli kvenna. Fram til þessa hefur reynst erfitt að rekja hvað það er sem orsakar heil­kennið og finna áhrifa­ríkar með­ferðir gegn því.

Rann­sókn­ar­hóp­ur­inn greindi tengls á milli horm­óna­ó­jafn­vægis í móð­ur­kviði og PCOS. Sér í lagi var sam­band greint á milli snert­ingu fóst­urs í móð­ur­kviði við vaxt­ar­þátt sem nefn­ist anti-Muller­ian hor­mone (AMH). Fyrri rann­sóknir hafa bent til þess að AMH sé hækkað í konum með PCOS en þekkt er að gildi horm­óns­ins lækki á meðan á þungun stendur. Ekki var ljóst hvort gildi AMH væri hækkuð á með­göngu hjá konum með PCOS.

Samkvæmt nið­ur­stöð­unum voru gildi AMH 30% hærri í barns­haf­andi konum með PCOS en öðrum. Vegna þess að áður hefur verið sýnt fram á að PCOS gangi að ein­hverju leiti í erfðir vildu vís­inda­menn­irnir einnig kanna hvort dætur kvenna með PCOS hefðu hækkuð AMH gildi.

Til að prófa þetta var þung­uðum músum gefið AMH svo gildi vaxt­ar­þátt­ar­ins voru yfir eðli­legum mörkum á með­göng­unni. Í ljós kom að kven­kyns afkvæmi músa með hækkuð AMH gildi voru lík­legri til að þróa með sér PCOS en kven­kyns afkvæmi í sam­an­burð­ar­hópnum.

Að auki tóks hópnum að snúa við áhrif­unum í mús­unum með því að gefa þeim lyfið cetrorelix í æð. Með lyfja­gjöf­inni hurfu ein­kenni PCOS og gæti lyfið því verið mögu­leg með­ferð gegn PCOS í konum. Prófanir á lyf­inu í konum hefj­ast seinna á þessu ári og er ljóst að ef vel gengur gæti lyfið haft jákvæð áhrifa á líðan og frjó­semi millj­óna kvenna um allan heim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár