Þess vegna þreytast börn ekki við leik

Mikil orka barna á sér líf­eðl­is­fræði­legar skýr­ingar.

Líklega hafa flestir sem umgang­ast börn upp­lifað það að vera alveg að gef­ast upp á orku barn­anna þegar kemur að því að leika. Einhvern veg­inn virð­ast krakkar geta farið fimm þús­und sinnum í renni­braut­ina í sund­laug­unum án þess að finna til þreytu eða þeirri heita-potts-löngun sem drífur full­orðna fólkið í sund.

Þessi óþrjót­andi orka er víst ekki bara ímyndum þreyttra for­eldra heldur bendir ný rann­sókn til þess að líf­eðl­is­fræði barna sé um margt betri (skil­virk­ari) en líf­eðl­is­fræði full­orð­inna, jafn­vel afburða íþrótta­manna. Rann­sóknin mið­aði einmitt að því að skoða fyrr­nefnt fyr­ir­bæri um óþreyt­andi börn í leik með því að bera saman þrjá hópa í mik­illi hreyf­ingu.

Fyrsti hóp­ur­inn sam­an­stóð af 8-12 ára drengjum, sem ekki æfðu neinar íþróttir að stað­aldri. Hinir tveir hóp­arnir voru full­orðnir (19-27 ára) karl­kyns þátt­takak­endur sem ann­ars vegar voru í mjög góðu lík­am­legu formi og hins vegar, eins og drengirnir, stund­uðu enga lík­ams­rækt. Þessir þrír sjálf­boða­liða­hópar voru allir látnir hreyfa sig af krafti á meðan fylgst var með ýmsum lík­am­legum þáttum.

Þeir þættir sem voru skoð­aðir til að meta lík­am­legt ástand þátt­tak­enda voru hjart­sláttur, súr­efn­is­upp­taka og losun þess sem kallað er mjólk­ur­sýra og mynd­ast við loft­firrð efna­skipti. Í öllum til­fellum komu mæl­ingar drengj­anna betur út en mæl­ingar full­orðnu hópanna, hvort sem borið var saman við þann hóp sem stund­aði mikla hreyf­ingu eða enga.

Þessi rann­sókn sýnir í fyrsta lagi að við sem full­orðin erum getum hætt að láta okkur líða illa yfir því að halda ekki í við börnin okkar. Þau eru með lík­am­legt for­skot á okkur sem engin leið er að keppa við. Í öðru lagi sést hér að lík­amar okkar breyt­ast á kyn­þroska­skeið­inu á þann veg að efna­skipti okkar taka stakka­skiptum. Þannig und­ir­strika þessar nið­ur­stöður hið gamla góða að hreyf­ing er ekki bara holl og góð heldur nauð­syn­leg, sér­stak­lega fyrir full­orðið fólk.

Vonandi verður áfram­hald á þess­ari rann­sókn þar sem hægt verður að meta hvaða ferlar það eru sem við­halda þess­ari líf­eðl­is­fræði í börnum. Mögulega er hægt að nýta slíkar upp­lýs­ingar til að draga úr líkum á lífstílstengdum sjúk­dómum eins og syk­ur­sýki týpu tvö eða hjarta- og æða­sjúk­dómum. Það verður spenn­andi að fylgj­ast með.

Þessi frétt birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár