Bein fylgni milli stuðnings hjá ungu fólki og vilja til að lækka kosningaaldur

Þeir flokkar sem komu í veg fyrir að kosn­inga­aldur væri lækk­aður í 16 ár njóta mun minna fylgis hjá ungu fólki en heilt yfir. Þeir sem studdu þá breyt­ingu myndu hins vegar græða á því ef ein­ungis fólk undir þrí­tugu fengi að kjósa.

Þeir þrír flokkar sem beittu mál­þófi gegn því að kosn­inga­aldur yrði lækk­aður í 16 ár í kom­andi sveita­stjórn­ar­kosn­ingum njóta áber­andi minni stuðn­ings kjós­enda í yngsta ald­urs­hópi kjós­enda en þeim elstu. Flokk­arnir þrír eru Sjálf­stæð­is­flokkur, Mið­flokkur og Flokkur fólks­ins.

[links]Komið var í veg fyrir atkvæða­greiðslu um frum­varp sem myndi lækka kosn­inga­aldur í kom­andi sveita­stjórn­ar­kosn­ingum úr 18 árum í 16 ár þann 23. mars síð­ast­lið­inn. Það var gert með mál­þófi þing­manna úr Sjálf­stæð­is­flokki, Mið­flokki og Flokki fólks­ins. Hefði frum­varpið orðið að lögum hefðu um níu þús­und nýir kjós­endur fengið að kjósa. Öruggur meiri­hluti var fyrir mál­inu á Alþingi.

[adspot]Í nýrri könnun Félags­vís­inda­stofn­unar sem gerð var fyrir Morg­un­blaðið er fylgi flokka í Reykja­vík meðal ann­ars greint eftir aldri. Þar kom fram að á meðal kjós­enda á aldr­inum 18-29 ára, yngsti ald­urs­hóp­ur­inn sem má kjósa, var fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins 21 pró­sent, fylgi Mið­flokks­ins þrjú pró­sent og fylgi Flokks fólks­ins 2,7 pró­sent. Það er mun minna fylgi en allir þrír flokk­arnir mæl­ast með í heild þar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist með 27,3 pró­sent, Mið­flokk­ur­inn með 7,3 pró­sent og Flokkur fólks­ins með 3,6 pró­sent.

Það er líka fylgni á milli afstöðu flokka til þess að vilja lækka kosn­inga­ald­urs og vin­sælda þeirra í yngsta ald­urs­hópnum. Sam­fylk­ingin nýtur 34,9 pró­sent fylgis hjá fólki undir þrí­tugu í Reykja­vík sam­kvæmt könnun Félags­vís­inda­stofn­unar en er með 30,5 pró­sent fylgi heilt yfir. Vinstri græn myndu fá 12 pró­sent fylgi ef allir kjós­endur væru yngri en þrí­tugt en eru með 9,7 pró­sent fylgi hjá öllum ald­urs­hópum. Píratar mæl­ast með 8,7 pró­sent fylgi hjá yngsta ald­urs­hópnum en 6,8 pró­sent í heild og Viðreisn er með 6,4 pró­sent hjá fólki undir þrí­tugu en 5,3 pró­sent í heild. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er einnig vin­sælli hjá ungu fólk en öðrum ald­urs­hópum, 4,1 pró­sent fólks undir þrí­tugu segir að það myndi kjósa Framsókn ef kosið yrði í dag en fylgi flokks­ins hjá öllum ald­urs­hópum mælist ein­ungis 2,8 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2018

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár