Kosningaaldur verður ekki lækkaður – Málþóf andstæðinga drepur málið

Nær engar líkur eru á því að það náist að greiða atkvæði um lækkun kosn­inga­ald­urs á þingi í dag vegna mál­þófs. Umtals­verður meiri­hluti virð­ist samt sem áður vera fyrir sam­þykkt máls­ins.

Andrés Ingi Jónsson er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
Andrés Ingi Jónsson er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Andrés Ingi Jónsson, þing­maður Vinstri grænna og fyrsti flutn­ings­maður frum­varps um lækkun kosn­inga­ald­urs fyrir sveita­stjórn­ar­kosn­ingar í 16 ár, segir að eins og mæl­enda­skráin líti út í þing­inu nú sé útlit fyrir að umræðan um málið verði lengri en tími sé til að klára í dag. „Það þýðir að við náum ekki að klára málið fyrir páska­hlé og þá er orðið hæpið að við náum að lækka kosn­inga­aldur fyrir kosn­ing­arnar í vor.“

Á Alþingi stendur nú yfir mál­þóf þing­manna úr Sjálf­stæð­is­flokki, Mið­flokki og Flokki fólks­ins til að tefja fyrir atkvæða­greiðslu um frum­varp sem mun lækka kosn­inga­aldur úr 18 árum í 16 fyrir kom­andi sveita­stjórn­ar­kosn­ingar, sem fram fara í lok maí. Ef frum­varpið yrði að lögum myndu um níu þús­und nýir kjós­endur fá rétt til að taka þátt í þeim kosn­ingum.

Öruggur meiri­hluti er fyrir mál­inu á þingi, sam­kvæmt við­mæl­endum Kjarnans. Málþóf þeirra gerir það hins vegar að verkum að ekki næst að greiða atkvæði um það. Það þýðir því að vilji minni­hluta þing­manna nær fram að ganga, að minnsta kosti í bili, og 16 og 17 ára Íslend­ingar fá ekki að kjósa í sveita­stjórn­ar­kosn­ing­unum í lok maí líkt og stefnt var að.

Aðspurður hvort hægt sé að setja málið aftur á dag­skrá eftir páska­frí segir Andrés að það þurfi að skoða það, en lík­lega sé þá of skammur tími til að ná mál­inu í gegn fyrir kom­andi kosn­ingar.

Hart tekist á

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans hefur verið hart tek­ist á í hlið­ar­her­bergjum Alþingis í dag um málið. Það sem gerir það flókið er að víg­línan dregst ekki á milli stjórnar og stjórn­ar­and­stöðu. Þvert á móti er um að ræða mál sem Vinstri græn lögðu fram og hafa haft for­göngu um lengi. Síðast þegar frum­varpið var lagt fram, en fékk ekki efn­is­lega með­ferð, var fyrsti flutn­ings­maður þess Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður flokks­ins og nú for­sæt­is­ráð­herra. Nú er, líkt og áður sagði, Andrés Ingi fyrsti flutn­ings­maður þess nú.

Önnur umræða um málið fór fram í gær og þar voru lagðar fram tvær breyt­ing­ar­til­lögur sem báðar mið­uðu að því að gild­is­töku lag­anna yrði frestað, ann­ars vegar til 1. jan­úar 2019 og hins vegar til 1. jan­úar 2019. Báðar þessar til­lögur voru felldar.

Atkvæði féllu þannig að nær allir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks, Flokks fólks­ins, Mið­flokks vildu fresta gild­is­tök­unni fram yfir næstu kosn­ingar. Auk þess greiddu þrír þing­menn Fram­sókn­ar­flokks atkvæði með því. Þessi hópur mynd­aði hins vegar minni­hluta. Þriðja breyt­inga­til­lagan sem felur í sér að gild­is­töku lag­anna verði frestað fram yfir kosn­ingar, lögð fram af Gunnari Braga Sveins­syni þing­manni Mið­flokks, bíður afgreiðslu þrátt fyrir að tvær nán­ast sam­hljóma til­lögur hafi verið felldar í gær.

Málið gekk í kjöl­farið til stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar sem fund­aði tví­vegis um það í gær. Ein þeirra raka sem teflt var fram af and­stæð­ingum þess að málið yrði sam­þykkt í dag var að það gæti teflt kosn­ingum í tví­sýnu. Helga Vala Helga­dóttir, for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, segir að það hafi hins vegar komið skýrt fram á fundi nefnd­ar­innar með full­trúa dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins í gær að það væri ekk­ert við breyt­ingu á kosn­inga­aldri sem krefð­ist ein­hvers konar auka­fram­kvæmdar að hálfu ráðu­neyt­is­ins. „Þetta er ekki þannig breyt­ing. Ekki frekar en í fyrra þegar boðað var til kosn­inga með fimm vikna fyr­ir­vara.“

Þing­fundur mun standa til klukkan 20:00 í kvöld sam­kvæmt fyr­ir­liggj­andi dag­skrá. Eftir það mun þingi vera slitið og þing­menn fara í páska­frí í tvær vikur.

Fylgni milli fylgis og vilja til að lækka aldurinn

Athygli vekur að þeir flokkar sem njóta mest stuðn­ings hjá ungu fólki eru mun meira fylgj­andi því að frum­varpið verði sam­þykkt strax og að breyt­ingin taki gildi fyrir kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Í síð­ustu skoð­ana­könn­un­inni sem Gallup gerði um fylgi stjórn­mála­flokka fyrir síð­ustu Alþing­is­kosn­ingar, og birt­ist 27. októ­ber 2017, kom til að mynda fram að Vinstri græn nutu stuðn­ings 25 pró­sent kjós­enda sem voru undir 30 ára. Stuðn­ingur við flokk­inn var lang­mestur í yngsta ald­urs­hópnum og umtals­vert . Píratar nutu stuðn­ings 15 pró­sent kjós­enda í þeim ald­urs­hópi. Til sam­an­burðar ætl­uðu 3-6 pró­sent þeirra sem voru eldri en 50 ára að kjósa Pírata. Viðreisn naut stuðn­ings 11 pró­sents kjós­enda undir þrí­tugu en ein­ungis fjögur pró­sent kjós­enda sem voru yfir 60 ára ætl­uðu að kjósa flokk­inn. Eini flokk­ur­inn sem er í heild sinni fylgj­andi breyt­ing­unni á kosn­inga­aldr­inum sem nýtur meira fylgis hjá eldri kjós­endum en yngri er Sam­fylk­ingin. Það er þó þannig að 12 pró­sent kjós­enda undir þrí­tugu ætl­uðu að kjósa þann flokk sem er meira fylgi en hann naut hjá fólki á fer­tugs­aldri.

Flokk­arnir sem eru mest á móti breyt­ing­unni, eða að minnsta kosti mót­fallnir því að hún taki gildi fyrir kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar, eiga það allir sam­eig­in­legt að njóta umtals­verðs meira fylgis hjá eldri kjós­endum en þeim sem yngri eru. Munurinn er sýni­leg­astur hjá Sjálf­stæð­is­flokki. Í könnun Gallup kom fram að 18 pró­sent kjós­enda undir þrí­tugu ætl­uðu að kjósa flokk­inn, sem er langt undir kjör­fylgi hans. Að sama skapi naut hann stuðn­ings 28-30 pró­sent þeirra sem voru eldri en 40 ára. Mið­flokk­ur­inn naut stuðn­ings sjö pró­sents kjós­enda undir þrí­tugu og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn naut stuðn­ings átta pró­sent ungra kjós­enda. Í báðum til­vikum er það fylgi tölu­vert undir kjör­fylgi. Í til­viki Flokks fólks­ins mæld­ist stuðn­ingur við hann hjá fólki yngra en 30 ára ein­ungis eitt pró­sent í könnun Gallup.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár