Ásmundur Einar mun ekki mæta á fund velferðarnefndar

Félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra hefur afboðað sig á fund vel­ferð­ar­nefndar Alþingis næst­kom­andi mánu­dag.

Ásmundur Einar Daðason
Ásmundur Einar Daðason Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ásmundur Einar Daðason félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra hefur afboðað sig á opinn fund vel­ferð­ar­nefndar Alþingis á mánu­dag­inn. Þetta kemur fram í frétt Stund­ar­innar í dag og stað­festi Halldóra Mogensen, for­maður nefnd­ar­innar og þing­maður Pírata, þetta í sam­tali við Kjarnann.

[links]Nefnd­inni var til­kynnt þetta í dag og mun því fund­ur­inn falla niður.

Eins og kom fram í fréttum í gær boð­aði Halldóra félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra á opinn fund í vel­ferð­ar­nefnd næst­kom­andi mánu­dag. Ásmundur Einar sagði í fréttum RÚV í gær að hann myndi mæta á fund­inn og fara yfir málin.

Athuga­semd gerð kl. 19:40: Tekin hefur verið sú ákvörðun að halda fund­inn eftir allt saman næst­kom­andi mánu­dag eftir mis­skiln­ing milli nefndar og ráðu­neytis.

[adspot]

Bragi Guð­brands­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu og fram­bjóð­andi Íslands til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna, beitti sér fyrir því að maður fengi að umgang­ast dætur sínar sem hann var grun­aður um kyn­ferð­is­brot gegn. Þetta kom fram í ítar­legri umfjöllun Stund­ar­innar í gær.

Segir jafn­framt að Bragi hafi hann átt ítrekuð sam­skipti við föður manns­ins sem er mál­kunn­ugur Braga frá því þeir störf­uðu báðir við barna­vernd­ar­mál.

Ásmundur Einar var upp­lýstur um máls­at­vik, sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar, og afskipti Braga Guð­brands­sonar af umræddu barna­vernd­ar­máli á fundi í ráðu­neyt­inu í lok jan­úar 2018.

Hann er nú staddur erlendis en sagði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra í sam­tali við Kjarnann í gær að hún hefði heyrt í Ásmundi Einari og að þau myndu fara yfir málin þegar hann kemur til baka.

Aðspurð um hvort að þau atriði sem nú liggja fyrir eftir umfjöllun Stund­ar­innar, um afskipti Braga að máli manns­ins sem grun­aður var um að brjóta gegn dætrum sínum, breyti ein­hverju þegar kemur að stuðn­ingi Katrínar sjálfrar og rík­is­stjórn­ar­innar við fram­boð Braga hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum ítrek­aði hún að hún myndi ræða málið við Ásmund þegar hann kemur að utan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár