Hvað vissi ríkisstjórnin?

Félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra er boð­aður á opinn fund í vel­ferð­ar­nefnd næst­kom­andi mánu­dag til að ræða frekar ásak­anir á hendur for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu.

Ásmundur Einar Daðason
Ásmundur Einar Daðason Mynd: Birgir Þór Harðarson

Bragi Guð­brands­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu og fram­bjóð­andi Íslands til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna, beitti sér fyrir því að ungur maður fengi að umgang­ast dætur sínar sem hann var grun­aður um kyn­ferð­is­brot gegn. Þetta kemur fram í ítar­legri umfjöllun Stund­ar­innar í morgun.

Segir jafn­framt að Bragi hafi hann átt ítrekuð sam­skipti við föður manns­ins sem er mál­kunn­ugur Braga frá því þeir störf­uðu báðir við barna­vernd­ar­mál.

Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra var upp­lýstur um máls­at­vik, sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar, og afskipti Braga Guð­brands­sonar af umræddu barna­vernd­ar­máli á fundi í ráðu­neyt­inu í lok jan­úar 2018.

Formaður velferðarnefndar boðar ráðherra á opinn fund

Í nótt boð­aði Halldóra Mogensen, for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis og þing­maður Pírata, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra á opinn fund í vel­ferð­ar­nefnd næst­kom­andi mánu­dag. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Halldóru í dag.

„Við lestur Stund­ar­innar fæ ég ekki séð betur en Ásmundur Einar hafi sagt ósatt í þing­sal Alþingis 26. febr­úar þegar ég spurði hann út í ásak­anir á hendur for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu. Þar sagði hann orð­rétt „Barna­vernd­ar­stofa eða for­stjóri hennar hafa ekki brotið af sér með neinum hætti". En sam­kvæmt fréttum Stund­ar­innar hafði hann fulla vit­neskju um þetta mál og afskipti Braga Guð­brands­sonar af því.

Í stað þess að láta Braga sæta ábyrgð á gjörðum sínum er honum verð­launað með stuðn­ingi rík­is­stjórn­ar­innar við fram­boð hans til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna,“ segir Halldóra.

Ekki tilefni til áminningar

Kjarninn hefur enn ekki náð tali af for­svars­mönnum rík­is­stjórn­ar­innar til að fá stað­fest­ingu á því hvað var nákvæm­lega rætt á rík­is­stjórn­ar­fundi þann 23. febr­úar síð­ast­lið­inn þegar Bragi var útnefndur sem fram­bjóð­andi Íslands til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Ásmundur Einar er staddur erlendis en Sóley Ragn­ars­dóttir, aðstoð­ar­maður hans, segir í sam­tali við Kjarnann að upp­lýs­ingar um barna­vernd­ar­málin sjálf hafi ekki verið til umræðu á fyrr­nefndum fundi.

Aftur á móti hafi verið farið yfir það á rík­is­stjórn­ar­fund­inum að mál hafi verið til með­ferðar hjá ráðu­neyt­inu sem vörð­uðu kvart­anir þriggja barna­vernd­ar­nefnda á hendur Braga og að þeim hefði lokið með þeirri nið­ur­stöðu að ekki hafi verið til­efni til áminn­ingar og að hann hafi ekki brotið af sér í starfi.

Staða Braga var talin sterk

Rík­is­stjórnin sam­þykkti eins og fyrr segir að sækj­ast eftir sæti fyrir Íslands hönd í Barna­rétt­ar­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna. Bragi Guð­brands­son for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu verður í kjöri til nefnd­ar­innar en í henni sitja 18 sér­fræð­ingar og hafa þeir það hlut­verk að fylgj­ast með fram­kvæmd Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Ásmundur Einar veitti Braga leyfi til eins árs frá emb­ætti for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu en nái Bragi kjöri lætur hann af emb­ætti sínu sem for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu þar sem áhersla er lögð á að nefnd­ar­menn séu óháðir barn­vernd­ar­yf­ir­völdum í ein­stökum ríkjum SÞ.

Staða Braga var sem fram­bjóð­anda Íslands var talin sterk og sagði í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu þann 23. febr­úar síð­ast­lið­inn „vegna ára­tuga reynslu hans af mála­flokknum og þátt­töku í alþjóð­legu sam­starfi á þessu sviði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár