Bragi í leyfi frá embætti forstjóra Barnaverndarstofu

Rík­is­stjórnin sam­þykkti á fundi sínum í morgun að sækj­ast eftir sæti fyrir Íslands hönd í Barna­rétt­ar­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna. Bragi Guð­brands­son for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu verður í kjöri til nefnd­ar­innar og verður þar af leið­andi í leyfi í eitt ár.

Bragi Guðbrandsson
Bragi Guð­brands­son Mynd: Aðsend

Rík­is­stjórnin sam­þykkti á fundi sínum í morgun að sækj­ast eftir sæti fyrir Íslands hönd í Barna­rétt­ar­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna. Bragi Guð­brands­son for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu verður í kjöri til nefnd­ar­innar en í henni sitja 18 sér­fræð­ingar og hafa þeir það hlut­verk að fylgj­ast með fram­kvæmd Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, hefur veitt Braga leyfi til eins árs frá emb­ætti for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu en nái Bragi kjöri lætur hann af emb­ætti sínu sem for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu þar sem áhersla er lögð á að nefnd­ar­menn séu óháðir barn­vernd­ar­yf­ir­völdum í ein­stökum ríkjum SÞ.

Segir í til­kynn­ing­unni að staða Braga sem fram­bjóð­anda Íslands sé talin sterk vegna ára­tuga reynslu hans af mála­flokknum og þátt­töku í alþjóð­legu sam­starfi á þessu sviði.

Ekki náð­ist í Braga við vinnslu frétt­ar­innar.

[adspot]

Kosið á tveggja ára fresti

Kosið er í nefnd­ina á tveggja ára fresti, níu full­trúar í hvert sinn. Hver full­trúi er kos­inn til fjög­urra ára í senn. Næsta val full­trúa í nefnd­ina fer fram þann 29. júní næst­kom­andi. Utan­rík­is­ráðu­neytið mun stýra kosn­inga­bar­áttu vegna fram­boðs full­trúa Íslands með milli­göngu fasta­nefnd­ar­innar í New York.

Norð­ur­löndin telja mik­il­vægt að eiga rödd á vett­vangi Barna­rétt­ar­nefnd­ar­innar og síð­ast­liðin átta ár hefur Noregur átt þar full­trúa; Kirsten Sandberg, lög­fræð­ing og sér­fræð­ing í rétt­indum barna. Hún mun ekki gefa kost á sér áfram og hingað til hefur ekk­ert Norð­ur­land­anna skilað inn fram­boði. Frestur til þess rennur út í lok apríl.

Segir í til­kynn­ing­unni að sam­hliða und­ir­bún­ingi vegna fram­boðs síns muni Bragi sinna afmörk­uðum verk­efnum í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu sem snúa að til­teknum áherslu­málum ráð­herra í mál­efnum barna sam­kvæmt samn­ingi þar að lút­andi. Sé þar einkum horft til þess að tryggja börnum og fjöl­skyldum þeirra sem skjótasta íhlutun og stuðla að heild­stæðri nálgun og sam­fellu þjón­ust­unnar þannig að hún mæti sem best þörfum barna og fjöl­skyldna hverju sinni.

Eftirlit með barnaverndarstarfi endurskoðað

Eftirlit með öllu barna­vernd­ar­starfi í land­inu verður end­ur­skoðað og ráð­ist í heild­ar­end­ur­skoðun barna­vernd­ar­laga. Þá verða settar skýrar form­kröfur um sam­skipta­hætti stjórn­valda sem gegna hlut­verki á sviði barna­verndar. 

Þetta kemur fram í frétt vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins í dag.

Mark­miðið er að efla og þróa barna­vernd­ar­starf í land­inu og styrkja stjórn­sýslu mála­flokks­ins, sam­kvæmt frétt­inni. Frumvarp til laga um eft­ir­lit með barna­vernd er komið á þing­mála­skrá rík­is­stjórn­ar­innar. Hluti þess­ara verk­efna verður á höndum nýrrar gæða- og eft­ir­lits­stofn­unar sem tekur til starfa innan vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins á næstu vikum.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, fund­aði í dag með for­mönnum barna­vernd­ar­nefnda Reykja­víkur, Hafn­ar­fjarðar og Kópavogs og kynnti þeim hinar áform­uðu breyt­ingar en þeim er ætlað að byggja upp traust innan mála­flokks­ins.

Segir enn­fremur að for­menn barna­vernd­ar­nefndana hafi leitað til vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins síð­ast­liðið haust vegna sam­skipta við Barna­vernd­ar­stofu og for­stjóra hennar og lagt fram umkvart­anir þar að lút­andi. Vel­ferð­ar­ráðu­neytið hafi tekið þær til efn­is­legrar umfjöll­unar sem nú er lokið og hafi nið­ur­stöð­urnar verið kynntar aðilum máls­ins.

Vilja endurheimta traust

Ráðherra segir að fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar á sviði barna­verndar séu að hluta til liður í við­brögðum ráðu­neyt­is­ins til að end­ur­heimta traust í kjöl­far fyrr­nefndra umkvart­ana en þeim sé einnig ætlað að bæta stjórn­sýslu mála­flokks­ins og stuðla að þróun nýrra úrræða í barna­vernd:

„Ein­stak­lingar og stofn­anir sem gegna hlut­verki á sviði barna­verndar verða að geta unnið saman á grund­velli trausts og trún­aðar og fá ef nokkur við­fangs­efni stjórn­sýsl­unnar eru mik­il­væg­ari og við­kvæm­ari en þessi. Eftir við­ræður við for­menn barna­vernd­ar­nefnd­anna og for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu tel ég ljóst að öllum sem hlut eiga að máli sé ljós ábyrgð sín hvað þetta varðar og vilji leggja sitt af mörkum þannig að góður friður skap­ist og skil­yrði fyrir fag­leg vinnu­brögð verði sem best,“ sagði ráð­herra að loknum fund­inum í dag.

Þá hefur félags­mála­ráð­herra ákveðið að ráð­ast í ítar­lega skoðun á þjón­ustu við börn með það meg­in­mark­miði að tryggja skjóta íhlutun og stuðla að sam­fellu í þjón­ust­unni þannig að hún mæti sem best þörfum barna og fjöl­skyldna. Þessi vinna mun nýt­ast við yfir­stand­andi end­ur­skoðun barna­vernd­ar­laga sem kveðið er á um í fram­kvæmda­á­ætlun á sviði barna­verndar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár