Samfylkingin: Velferð barna verði í forgangi

Þing­flokkur Sam­fylk­ing­ar­innar hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna máls fyrr­ver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu og með­ferðar Ásmundar Einars Daða­sonar ráð­herra á því.

Þing­flokkur Sam­fylk­ing­ar­innar krefst þess að rík­is­stjórnin setji vel­ferð barna í for­gang. Í til­kynn­ingu frá honum, vegna máls Braga Guð­brands­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu, og Ásmundar Einars Daða­sonar, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, kemur fram að ef Ásmundur Einar hafi leynt vel­ferð­ar­nefnd og Alþingi mik­il­vægum gögnum er varðar Barna­vernd­ar­stofu þá hafi það „ótví­rætt áhrif á stöðu ráð­herr­ans“. „Alþingi hefur ríkt eft­ir­lits­hlut­verk með störfum ráð­herra. Komi það í ljós að félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra eða ráðu­neyti hans hafi leynt vel­ferð­ar­nefnd og Alþingi mik­il­vægum gögnum er varðar mál­efni Barna­vernd­ar­stofu og öryggi og vel­ferð barna, hefur það ótví­rætt áhrif á stöðu ráð­herr­ans. Full­trúar í vel­ferð­ar­nefnd munu um helg­ina fara ítar­lega yfir trún­að­ar­gögn um málið og stefnt er að því að nefndin fundi með ráð­herra strax á mánu­dag. Að loknum þeim fundi verða von­andi öll kurl komin til grafar og staða ráð­herra og aðkoma hans að mál­inu upp­lýst,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Í umfjöllun Stund­ar­innar í morgun kom fram að Bragi hafi beitt sér fyrir því að maður fengi að umgang­ast dætur sínar sem hann var grun­aður um kyn­ferð­is­brot gegn. Ásmundur Einar fékk upp­lýs­ingar um þetta, en deildi þeim ekki með rík­is­stjórn eða vel­ferð­ar­nefnd Alþingis.

Eins og kunn­ugt er, þá greindi Ásmundur Einar frá því að Bragi Guð­brands­son yrði í fram­boði fyrir hönd Íslands í Barna­rétt­ar­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna. Rík­is­stjórnin sam­þykkti það.

Í við­tali við RÚV í kvöld, þá seg­ist Ásmundur Einar engum gögnum verið leynt.

Kosið er í hana á tveggja ára fresti, níu full­trúar í hvert sinn. Hver full­trúi er kos­inn til fjög­urra ára í senn. Næsta val full­trúa í nefnd­ina fer fram þann 29. júní næst­kom­andi en Utan­rík­is­ráðu­neytið mun stýra kosn­inga­bar­áttu vegna fram­boðs full­trúa Íslands með milli­göngu fasta­nefnd­ar­innar í New York. Frestur til fram­boðs rennur út næst­kom­andi mánu­dag.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, segir að mál Braga hefði ekki komið til umræðu innan rík­is­stjórn­ar­innar þegar til­kynnt var um full­trúa Íslands. Hún seg­ist ætla að ræða við Ásmund Einar þegar hann komi að utan eftir helgi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár