Píratar krefjast þess að ríkisstjórnin upplýsi mál fyrrverandi forstjóra Barnaverndarstofu án tafa

Þing­flokkur Pírata hefur gefur frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann krefst þess að rík­is­stjórn Íslands setji rétt­indi barna í for­gang.

Þing­flokkur Pírata krefst þess að rík­is­stjórn Íslands setji nú rétt­indi barna í algjöran for­gang og sýni bæði frum­kvæði sjálf og veiti einnig Alþingi og öðrum eft­ir­lits­að­ilum stuðn­ing við að upp­lýsa mál Braga Guð­brands­sonar í starfi sínu sem for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu að fullu og án tafa.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá flokknum seinni part­inn í dag.

[links]„Samkvæmt frétta­flutn­ingi Stund­ar­innar sem birt­ist í morgun hafa ráð­herrar rík­is­stjórnar Íslands hylmt yfir í öðru máli tengdu barn­a­níði.

Ef þær fréttir sem birt­ust í morgun reyn­ist réttar hefur Bragi Guð­brands­son í starfi sínu sem for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu beitt sér í trássi við lög, til að þvinga Barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar, sem hafði for­ræði á við­kom­andi máli, til að verða að kröfum kunn­ingja síns, föður hins grun­aða.

Slíkt fram­ferði er ámæl­is­vert og munu þing­menn Pírata beita sér fyrir áfram­hald­andi rann­sókn á því hvort Bragi Guð­brands­son hafi framið lög­brot með aðgerðum sínum. Halldóra Mogensen, for­maður vel­ferð­ar­nefndar, hóf frum­kvæð­is­rann­sókn á mál­inu í jan­úar og hefur vel­ferð­ar­nefnd Alþingis fengið gögn máls­ins,“ segir í til­kynn­ing­unni.

[adspot]

Segir enn fremur í til­kynn­ingu Pírata að full­yrt sé að þrátt fyrir ítrek­aðar kvart­anir barna­vernd­ar­nefnda til félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra og í kjöl­far rann­sóknar ráðu­neyt­is­ins, hafi Ásmundur Einar Daðason ekk­ert aðhafst.

Í stað þess hafi hann sagt ósatt í pontu Alþingis þann 26. febr­úar síð­ast­lið­inn þegar hann svar­aði fyr­ir­spurn Halldóru Mogensen, for­manns vel­ferð­ar­nefndar, á þá leið að „Barna­vernd­ar­stofa eða for­stjóri hennar hafi ekki brotið af sér með neinum hætti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár