„Það kom ekkert fram um þetta mál“

Katrín Jak­obs­dóttir segir að mál Braga Guð­brands­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu, hafi ekki borið á góma á fundi rík­is­stjórn­ar­innar þegar sam­þykkt var að hann yrði fram­bjóð­andi Íslands til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður VG.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður VG. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að mál Braga Guð­brands­sonar, fyrr­ver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu, hafi ekki borið á góma á fundi rík­is­stjórn­ar­innar þann 23. febr­úar síð­ast­lið­inn þegar sam­þykkt var að hann yrði fram­bjóð­andi Íslands til Barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Í umfjöllun Stund­ar­innar í morgun kom fram að Bragi hafi beitt sér fyrir því að maður fengi að umgang­ast dætur sínar sem hann var grun­aður um kyn­ferð­is­brot gegn.

Katrín segir að aftur á móti hafi verið greint á fund­inum frá nið­ur­stöðu vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins um að Bragi væri tal­inn hæfur og að hann hafi ekki brotið af sér í starfi.

Fara yfir málin þegar Ásmundur kemur að utan

[links]Ásmundur Einar er erlendis en hann hefur verið boð­aður á opinn fund í vel­ferð­ar­nefnd næst­kom­andi mánu­dag. Halldóra Mogensen, for­maður vel­ferð­ar­nefndar Alþingis og þing­maður Pírata, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, greindi frá þessu í dag.

Katrín seg­ist hafa heyrt í Ásmundi Einari í dag og að þau muni fara yfir málin þegar hann kemur til baka.

Aðspurð um hvort að þau atriði sem nú liggja fyrir eftir umfjöllun Stund­ar­innar, um afskipti Braga að máli manns­ins sem grun­aður var um að brjóta gegn dætrum sínum, breyti ein­hverju þegar kemur að stuðn­ingi Katrínar sjálfrar og rík­isstjón­ar­innar við fram­boð Braga hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum ítrekar hún að hún muni ræða málið við Ásmund þegar hann kemur að utan.

[adspot]

Frestur rennur út á mánudaginn

Kosið er í Barna­rétt­ar­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna á tveggja ára fresti, níu full­trúar í hvert sinn. Hver full­trúi er kos­inn til fjög­urra ára í senn. Næsta val full­trúa í nefnd­ina fer fram þann 29. júní næst­kom­andi en Utan­rík­is­ráðu­neytið mun stýra kosn­inga­bar­áttu vegna fram­boðs full­trúa Íslands með milli­göngu fasta­nefnd­ar­innar í New York. Frestur til fram­boðs rennur út næst­kom­andi mánu­dag.

Í frétt vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins frá 23. febr­úar kemur fram að Norð­ur­löndin telji mik­il­vægt að eiga rödd á vett­vangi Barna­rétt­ar­nefnd­ar­innar og síð­ast­liðin átta ár hafi Noregur átt þar full­trúa; Kirsten Sandberg, lög­fræð­ing og sér­fræð­ing í rétt­indum barna. Hún muni ekki gefa kost á sér áfram og hingað til hafi ekk­ert Norð­ur­land­anna skilað inn fram­boði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár