Eru ilmkjarnaolíur að hafa áhrif á hormónabúskap okkar?

Er notkun ilm­kjarna­olíu mögu­leg án auka­verk­ana? Er jákvæð ímynd þeirra fyrst og fremst afleið­ing af snjallri mark­aðs­setn­ingu?

Lavander og tea tree olía eru vin­sælar olíur sem gefa góða lykt og eru því not­aðar í ýmsar vöru sem við­koma per­sónu­legum hrein­læti. Oft er þá not­ast við svo­kall­aðar ilm­kjarna­ol­íur sem hafa með snjallri mark­aðs­setn­ingu fengið jákvæða ímynd og því er fólk óhrætt við að nota þær á ýmsa vegu. Ný rann­sókn bendir hins vegar til þess að slík notkun sé mögu­lega ekki án auka­verk­ana.

Rann­sókn­ar­hópur frá Chicago kynnti rann­sóknir sínar á árlegri ráð­stefnu Endocrine Society um miðjan síð­ast­lið­inn mánuð. Þar kom fram að efni sem finn­ast í lavander og tea tree olíum geta raskað jafn­vægi kyn­horm­ón­anna estrógen og andrógen.

Estrógen er sam­heiti yfir hormón sem oft eru tengd við þroskun kven­legra eig­in­leika, eins og t.d. brjósta. Meðan andrógen er yfir­heiti yfir hormón sem koma aðal­lega við sögu þegar karl­kyns eig­in­leikar koma í ljós.

Til að skoða hvort efnin sem finn­ast í olí­unum hafi áhrif á horm­óna­jafn­vægi þeirra ein­stak­linga sem nota olí­urnar voru átta efni skoðuð sér­stak­lega í frumu­rækt­unum. Þessi átta efni sem tekin voru fyrir heita: eucalyptol, 4-terpineol, dipentene/limonene og alpha-terpineol, sem koma bæði fyrir í lavander og tea tree olíu, auk lina­lyl acetate, linalool, alpha-terpinene og gamma-terpinene sem finnst ein­ungis í annarri hvorri. Öll átta efnin höfðu að ein­hver áhrif á tján­ingu gena sem tengj­ast estrógen eða andrógen búskap frumn­anna.

Þessar nið­ur­stöður eru áhyggju­efni þar sem margar ilm­kjarna­ol­íur sem mögu­lega inni­halda sömu efni eru á mark­aði. Þessi mark­aður er undir litlu eða engu eft­ir­liti. Þrátt fyrir það er ekki endi­lega hægt að full­yrða um að notkun þeirra sé alltaf full­kom­lega skað­laus, sér­stak­lega ekki meðan engin inni­halds­lýs­ing liggur fyrir.

Samkvæmt þessu er því ástæða til að fara var­lega við notkun efna sem ekki hafa verið rann­sökuð til hlítar, sér­stak­lega þegar börn eða ung­lingar eiga í hlut. Þau eru sér­stak­lega við­kvæm fyrir röskun á boð­efnum sem hafa áhrif á þann þroska sem mun brátt eða er að eiga sér stað.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár