Óttarr mátti spila með HAM gegn greiðslu en Ragnheiður Elín mátti ekki fá lánað skart

Sex ráð­herra hafa óskað eftir ráð­legg­ingum um hvort að til­vik sem þeir stóðu frammi fyrir væru í sam­ræmi við siða­reglur ráð­herra.

Óttarr Proppé, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, tekur lagið með HAM.
Óttarr Proppé, fyrr­ver­andi heil­brigð­is­ráð­herra, tekur lagið með HAM. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Óttarr Proppé mátti spila á tón­leikum með hljóm­sveit sinni HAM á meðan að hann var ráð­herra og þiggja greiðslur fyrir en var gert að upp­lýsa for­sæt­is­ráðu­neytið um þær fjár­hæðir sem hann myndi fá fyrir.

Ragn­heiður Elín Árna­dóttir mátti ekki fá lán­aða skart­gripi frá gull­smiði til að bera opin­ber­lega þegar hún var iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra þótt þeir væru ekki gjöf þar sem slíkt sam­rýmd­ist „tæp­lega siða­reglum ráð­herra“. Í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins um hvort þetta fyr­ir­komu­lag væri í sam­ræmi við siða­reglur ráð­herra sagði m.a. að í siða­regl­unum segði „að ráð­herra not­færi sér ekki stöðu sína til per­sónu­legs ávinn­ings fyrir sig.[...]Vissu­lega er hér ekki um að ræða gjöf í eig­in­legum skiln­ingi. Hins vegar er verið að bjóða ráð­herra þjón­ustu sem að öllum lík­indum myndi venju­lega kosta tals­verða fjár­muni, þ.e. að fá skart­gripi leigða. Henni yrði sem sagt ekki boðin þessi þjón­usta nema vegna þess að hún er ráð­herra og þekktur stjórn­mála­maður. Skiptir þá ekki öllu máli hvor eigi frum­kvæðið að þessu fyr­ir­komu­lagi. Vissu­lega er lík­legt að það sem vaki fyrir ráð­herr­anum sé fyrst og fremst að vera opin fyrir því að kynna íslenska hönnun en ekki að njóta sjálf góðs af. En þá vakna almennar spurn­ingar um hvort það sé við hæfi að ráð­herra taki þátt í að kynna sér­stak­lega vörur eins fyr­ir­tækis, enda má búast við að við­kom­andi gull­smiður muni aug­lýsa það að ráð­herr­ann sé meðal við­skipta­vina. ímynda má sér að fleiri fyr­ir­tæki kæmu þá í kjöl­farið og vildu fá sam­bæri­legan samn­ing varð­andi sínar vörur. Fljótt myndi þá fara af stað umræða um að ráð­herrar væru "kost­aðir" af þessum og hinum fyr­ir­tækjum[...]Að öllu sam­an­lögðu verður að telja hæpið út frá siða­reglum ráð­herra að gera samn­ing af þessu tagi við við­kom­andi gull­smið.“

Þetta er meðal þess sem kemur fram í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um þau sex til­vik sem ráð­herrar leit­uðu til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins um ráð­legg­ingar um hvort að til­vik sem upp komu væri sam­rým­an­leg siða­reglum ráð­herra. Fyr­ir­spurnin var lögð fram eftir að for­sæt­is­ráð­herra svar­aði fyr­ir­spurn Björns Leví Gunn­ars­sonar, þing­manns Pírata um túlkun siða­reglna 16. mars síð­ast­lið­inn.

Þar kom m.a. fram að „í mála­skrá for­sæt­is­ráðu­neytis fund­ust alls sex til­vik á tíma­bil­inu sem spurt er um þar sem annar ráð­herra leit­aði til ráðu­neyt­is­ins vegna siða­reglna. Tilvikin skipt­ast í þrjá meg­in­flokka; í fyrsta lagi ráð­gjöf vegna fyr­ir­hug­aðrar boðs­ferðar, sbr. e-lið 3. gr. núgild­andi siða­reglna ráð­herra, nr. 1250/2017 (tvö til­vik), í öðru lagi óskir um sam­þykki fyrir því að ráð­herra sinni öðrum verk­efnum, sbr. b-lið 3. gr. núgild­andi siða­reglna ráð­herra (þrjú til­vik), og í þriðja lagi önnur ráð­gjöf (eitt til­vik).“

Í svari ráðu­neyt­is­ins var gert grein fyrir því hvað fólst nákvæm­lega í þessum til­vikum og hvaða ráð­herrar það voru sem leit­uðu til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins vegna siða­reglna. Með fylgdu einnig þau tölvu­póst­sam­skipti sem áttu sér stað vegna þessa.

Ragn­heiður Elín mátti hins vegar láta WOW Air bjóða sér með í jóm­frú­ar­ferð flug­fé­lags­ins til Washington þar sem um væri að ræða „nýbreytni í starf­semi íslenskra fyr­ir­tækja“.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, þá sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, mátti sitja í stjórn Leik­fé­lags Reykja­víkur og þiggja fyrir ríf­lega 100 þús­und krónur í mán­að­ar­legar greiðslur sam­hliða ráð­herra­starf­inu. Greiðsl­urnar þóttu innan hóf­legra marka í skiln­ingi siða­reglna ráð­herra. Ekki var heldur gerð athuga­semd við setu hennar í stjórn Þroska­hjálpar og Golf­sam­bands Íslands, en þau störf voru ólaunuð.

Sigríður Á. Andersen vildi fá að halda áfram að skrifa greinar hálfs­mán­að­ar­lega í Morg­un­blaðið og fá sjö þús­und krónur fyrir hverja þeirra eftir að hún tók við ráð­herra­emb­ætti. For­sæt­is­ráðu­neytið komst að þeirri nið­ur­stöðu að slík skrif sam­rýmd­ust siða­reglum ráð­herra „einkum með hlið­sjón af því að afrakstur starf­anna birt­ist opin­ber­lega og að þeirra væri getið í hags­muna­skrá ráð­herra á vef Alþingis.“

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála- iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra var hins vegar ráð­lagt frá því að þekkj­ast boð Amerísk- íslenska við­skipta­ráðs­ins um að greiða ferða­kostnað fyrir maka hennar og barn í til Washington á vor­mán­uðum 2017. Við þá ákvörðun var m.a. „horft til þess að Amerísk-íslenska við­skipta­ráðið hefur það hlut­verk að standa vörð um við­skipta­tengda hags­muni félaga sinna gagn­vart banda­rískum og íslenskum yfir­völdum.“

Svar for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og fylgi­skjöl þess er hægt að lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

siðareglur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár