Nef- og munntóbakssala ÁTVR aldrei verið meiri í byrjun árs

ÁTVR, sem fram­leiðir og selur gróf­kornað nef- og munn­tó­bak og er í ein­ok­un­ar­stöðu á íslenska mark­aðnum, seldi meira af slíku á fyrstu tveimur mán­uðum árs­ins en fyr­ir­tækið hefur nokkru sinni gert áður.

Áfengis- og tóbaks­verslun rík­is­ins (ÁTVR), sem hefur einka­rétt á að fram­leiða og selja gróf­kornað nef- og munn­tó­bak, seldi 37,6 tonn af slíku í fyrra. Það er aðeins minna en fyr­ir­tækið seldi árið 2016, þegar salan var rétt tæp­lega 40 tonn, sem var sölu­met. Þetta má sjá yfir­liti yfir mán­að­ar­legar sölu­tölur ÁTVR.

Þar kemur einnig fram að á fyrstu tveimur mán­uðum árs­ins hefur selst meira af nef- og munn­tó­baki en nokkru sinni áður á því tíma­bili. Á metár­inu 2016 seld­ust 5,3 tonn af nef- og munn­tó­baki. Í jan­úar og febr­úar 2018 hafa selst 6,2 tonn, eða 17 pró­sent meira en á fyrstu tveimur mán­uðum árs­ins 2016.

Fjórfaldast frá aldarmótum

Ástæðu þess að tóbaks­sala dróst saman í fyrra má ugg­laust rekja til þess að tóbaks­gjald var hækkað í byrjun árs 2017. Við það hækk­aði verð á dós af nef- og munn­tó­baki sem ÁTVR fram­leiðir, og er oft­ast kallað „Ruddi“, um 60 pró­sent í verði. Algengt smá­sölu­verð eftir þá hækkun var um þrjú þús­und krónur á dós.

Svo virð­ist sem að not­endur tóbaks­ins setji þá hækkun ekki lengur mikið fyrir sig því að neyslan hefur auk­ist á ný það sem af er árinu 2018.

Salan á gróf­korn­uðu tóbaki hefur auk­ist feyki­lega mikið á und­an­förnum árum. Árið 2000 seld­ust til að mynda ríf­­lega 10 tonn af nef­tó­baki, og því hefur salan fjór­fald­ast frá þeim tíma.

Það hefur áður gerst að hækkun á tóbaks­gjaldi hefur hægt á sölu tóbaks­ins. Það gerð­ist árin 2012 og 2013 eftir að tóbaks­gjald var tvö­faldað. Eftir þau ár fór salan hins vegar að aukast aftur á ný og náði, líkt og áður sagði, 40 tonnum árið 2016.

Ein­okun lengi

Árið 1996 var fín­kornað munn- og nef­tó­bak bannað með lögum á Íslandi. Það þýðir að ­tó­bakið sem ÁTVR fram­­­­leiðir hefur verið í nán­­­­ast ein­ok­un­­­­ar­­­­stöðu á mark­aðnum síðan lögin voru sett. Sam­hliða hefur neysla á munn­tó­baki auk­ist tölu­vert og þeir sem neyta þess kaupa ann­að­hvort smygl­varn­ing á svörtum mark­aði, þar sem er mikið fram­­­­boð, eða nota ­tó­bakið sem ÁTVR fram­­­­leið­ir sem munn­tó­bak.

Þessi aukna neysla hefur skilað auknum tekjum í vasa hins opin­bera svo um mun­­­­ar, bæði vegna hækk­­­­unar á tóbaks­­­­gjaldi og stór­auk­innar eft­ir­­­­spurn­­­­ar. Í fyrra skil­aði til að mynda tóbaks­gjald, sem leggst á allar tóbaks­vörur, hvort sem um er að ræða vind­linga og sígar­ettur eða hið gróf­korn­aða nef- og munn­tó­bak sem ÁTVR fram­leiðir og sel­ur, um sex millj­örðum króna í rík­is­kass­ann. Því er um umtals­verða tekju­lind að ræða fyrir rík­is­sjóð.

Miklar tekjur af sölu á rík­is­fram­leiddu tóbaki

Tekjur ÁTVR af sölu tóbaks dróg­ust í heild saman á árinu 2016. Þær voru tveimur pró­sentum lægri en árið 2015 eða alls 9,3 millj­arðar króna. Þar mun­aði mestu um að sala á sígar­ettum dróst saman um 6,1 pró­sent og á vindlum um 7,5 pró­sent.

Sala á nef­- og munntó­baki hélt hins veg­ar, líkt og áður sagði, áfram að aukast og jókst sam­tals um 10,7 pró­sent á árinu. Salan skil­aði alls 827,6 millj­ónum króna í kass­ann árið 2016 án virð­is­auka­skatts. Árið 2015 var selt rík­is­fram­leitt tóbak fyrir 748 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lýðheilsa

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár