Söguleg mótmæli í Bandaríkjunum - hundruð þúsunda krefjast breytinga á byssulöggjöf

Fjölda­mót­mælin March for our lives þar sem banda­rískir nem­endur bók­staf­lega gengu fyrir lífum sínum og ann­arra fóru fram í dag.

Emma Gonzalez fyrir miðju, sem er einn þeirra nemenda sem lifði af skotárásina í Parkland í Flórída í febrúar. Nemendur í Stoneman Douglas gagnfræðaskólanum hafa haft veg og vanda af því að skipuleggja mótmæli dagsins.
Emma Gonzalez fyrir miðju, sem er einn þeirra nem­enda sem lifði af skotárás­ina í Parkland í Flórída í febr­úar. Nemendur í Stoneman Douglas gagn­fræða­skól­anum hafa haft veg og vanda af því að skipu­leggja mót­mæli dags­ins. Mynd: EPA

Fjölda­mót­mælin March for our lives þar sem banda­rískir nem­endur bók­staf­lega gengu fyrir lífum sínum og ann­arra fóru fram í dag. Skot­vopna­menn­ing og -lög­gjöf Banda­ríkj­anna voru í for­grunni þar sem þús­undir mættu til mót­mæl­anna, bæði í 800 mis­mun­andi göngum þar í landi en einnig víðs vegar ann­ars staðar í heim­inum, þar á meðal í Reykja­vík þar sem gengið var frá Arn­ar­hóli á Aust­ur­völl í sam­stöðu göngu.

Fjöl­menn­ust var gangan í Washington þar sem nem­endur í Stoneman Douglas gagn­fræða­skól­anum í Parkland í Flórída fóru fyrir göng­unni. Þau hafa staðið að baki skipu­lagn­ingu kröfu­göng­unnar í dag, en sautján nem­endur og starfs­menn skól­ans létu lífið í skotárás í skól­anum í febr­úar á þessu ári.

Nemendur skól­ans hafa verið drif­kraft­ur­inn í umræð­unni um byssu­tengda glæpi og skotárásir í skólum í Banda­ríkj­unum sem hefur sjaldan verið eins hávær og nú og þegar haft mikil áhrif.

Lestu nánar um þann árangur sem náðst hefur í bar­átt­unni við skot­vopnin í Banda­ríkj­unum hér.

Meðal þeirra sem tóku til máls var nem­andi Marjory Sto­nem­ans Douglas skól­ans Emma Gonzalez. Emma vakti mikla athygli strax eftir árás­ina í febr­úar með einkar til­finn­inga­ríkri ræðu á mót­mælum þar sem hún kall­aði mál­flutn­ing stjórn­mála­manna og hags­mun­að­ila í skot­vopna­sölu „bullshit“.

Hún hóf ræðu sína í dag á því að lýsa skotárásinni í Parkland sem tók sex mín­útur og tutt­ugu sek­úndur í heild. Hún las upp nöfn þeirra sem létu lífið og lýsti því hvað þau myndu aldrei gera aftr, líkt og að kvarta yfir að þurfa að æfa sig á píanóið, hanga með vinum sínum eða mæta í tíma. Hún stóð síðan hljóð í nokkrar mín­útur.

„Síðan ég kom hingað á svið, hafa liðið sex mín­útur og tutt­ugu sek­úndur og skotárárás­armað­ur­inn hefur hætt að skjóta og mun fljót­lega skilja riffil­inn sinn eftir, falla í hóp nem­enda meðan þeir flýja og hann mun ganga frjáls í klukku­tíma áður en hann verður hand­tek­inn. Berjist fyrir lífum ykkar áður en það verður hlut­verk ein­hvers ann­ars,“ sagði Gonzalez.

[links]Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, og eig­in­kona hans Melania eru ekki stödd í Washington í dag. Þau fóru frá Hvíta hús­inu í gær til Mar-a-Lago sem er golf­klúbbur í eigu for­set­ans, þar sem þau hyggj­ast eyða helg­inni. Til Trump sást í morgun þar sem hann var á leið út á golf­völl. Gonzalez og Alex Wind, sam­nem­andi hennar, segj­ast ekki láta það á sig fá að for­set­inn verði ekki við­staddur mót­mælin. „Það skiptir ekki máli hverjir verða þarna, það sem skiptir máli er að til­vist okkar sé við­ur­kennd,“ sagði Wind og bætti við: „Við ætlum að sjá til þess að raddir okkar heyr­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

byssulöggjöf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár