Hvað þarf til svo byssulöggjöf í Bandaríkjunum verði breytt?

Skotárás í grunn­skóla í smá­bænum Uvalde í Texas kallar fram kunn­ug­legan þrýst­ing um herta byssu­lög­gjöf. Póli­tískar hindr­anir eru enn til staðar og ólík­legt verður að telj­ast að harm­leik­ur­inn í Uvalde leiði til raun­veru­legra breyt­inga.

Börn á aldrinum 5-11 stunda nám í Robb-grunnskólanum í smábænum Uvalde í Texas. 19 börn og tveir kennarar létu lífið í skotárás í skólanum á þriðjudag.
Börn á aldr­inum 5-11 stunda nám í Robb-grunn­skól­anum í smá­bænum Uvalde í Texas. 19 börn og tveir kenn­arar létu lífið í skotárás í skól­anum á þriðju­dag. Mynd: EPA

Skotárásin í grunn­skóla í smá­bænum Uvalde Texas á þriðju­dag er sú mann­skæð­asta í banda­rískum grunn­skóla frá því að 20 börn og sex full­orðnir voru skotin til bana í Sandy Hook grunn­skól­anum fyrir ára­tug. Reiði og ang­ist ríkir vegna árás­ar­innar í Texas og eru stjórn­völd gagn­rýnd fyrir að ekk­ert hafi í raun breyst á þessum ára­tug.

5-11 ára börn stunda nám í Robb-grunn­skól­anum. 19 börn og tveir kenn­arar voru myrt í skotárásinni. Árá­samað­ur­inn var 18 ára, vopn­aður skamm­byssu og riffli, og skaut á börnin af handa­hófi þegar þau reyndu að flýja. Árás­armað­ur­inn var inni í skól­anum í um 40 mín­útur áður en lög­regla skaut hann til bana. Börnin sem létu lífið í árásinni voru á aldr­inum sjö til tíu ára. Eitt fórn­ar­lambanna var 10 ára strákur sem elskaði að dansa. Annað var ung stúlka sem var skotin þegar hún reyndi að hringja á lög­regl­una.

„Þeir brugðust börnunum okkar aftur“

Banda­ríkja­menn sem hafa misst nákomna í skotárásum eru fyrir löngu komnir með nóg. Faðir sem missti 14 ára son sinn í skotárásinni í Parkland-fram­halds­skól­anum er kom­inn með nóg og spyr hversu margar skotárásir þurfi til að eitt­hvað verði gert í raun og veru?

Jaime, sonur Fred Gutten­berg, var 14 ára þegar hann lét lífið í skotárásinni sem gerð var í Marjory Stoneman Douglas-fram­halds­skól­anum í Parkland í Flórída árið 2018. Gutten­berg segir stjórn­mála­menn sem „stjórn­mála­væða byssur og ofbeldi hafi leitt til þessa dags“.

„Þeir brugð­ust börn­unum okkar aftur. Ég er hættur. Ég get ekki meira. Hversu oft þarf þetta að ger­ast?“ sagði Gutten­berg í sam­tali við MSNBC-sjón­varps­stöð­ina eftir skotárás­ina.

Endurtekin orð Bandaríkjaforseta

Barack Obama var Banda­ríkja­for­seti þegar skotárásin í Sandy Hook átti sér stað og hét hann því í til­finn­inga­þrung­inni ræðu að nú yrði byssu­lög­gjöf hert. Málið dag­aði hins vegar uppi í þing­inu.

Joe Biden Banda­ríkja­for­seti hélt sömu­leiðis til­finn­inga­þrungna ræðu eftir skotárás­ina í Uvalde á þriðju­dag. „Af hverju látum við bjóða okkur að búa við þetta blóð­bað?“ spurði Biden. „Af hverju höldum við áfram að leyfa þessu að ger­ast?“ spurði Biden jafn­framt og sagði að tími væri kom­inn til að standa uppi í hár­inu á þeim sem berj­ast fyrir byssu­eign í Banda­ríkj­unum.

Þrátt fyrir að demókratar séu með meiri­hluta bæði í full­trúa­deild­inni og öld­unga­deild­inni, sem og for­seta­emb­ættið, virð­ist það ekki ætla að duga til að knýja fram breyt­ingar. Áskor­an­irnar eru enn til staðar og það sem meira er, nýjar bæt­ast við:

Gamlar hindranir á þinginu

Nokkrum vikum eftir skor­árás­ina í Sandy Hook grunn­skól­anum studdi meiri­hluti öld­unga­deild­ar­þing­manna frum­varp þar sem bak­grunns­at­hug­anir þeirra sem hyggja á byssu­kaup voru hertar til muna. Það dugði hins vegar ekki til þar sem ein­faldur meiri­hluti dugir ekki til að fá laga­frum­vörp sam­þykkt heldur þarf sam­þykki frá 60 af 100 þing­mönnum öld­unga­deild­ar­innar. Það sama virð­ist vera uppi á ten­ingnum núna, það er að aðeins örfáir þeirra 50 repúblik­ana sem eiga sæti á þing­inu eru fylgj­andi að herða byssu­lög­gjöf.

Umræðan er hins vegar til staðar, bæði hjá demókrötum og repúblik­unum, og lík­leg­asta breyt­ing til að fá hljóm­grunn snýr að laga­setn­ingu sem kemur í veg fyrir að ein­stak­lingar sem glíma við and­leg veik­indi eða eru á saka­skrá geti keypt skot­vopn (e. Red flag law).

Breytingar í stökum ríkjum

Nokkrar breyt­ingar í átt að hertri byssu­lög­gjöf hafa verið gerðar í nokkrum ríkjum Banda­ríkj­anna eftir árás­ina í Sandy Hook. Í ríkjum þar sem demókratar hafa verið við völd síð­ustu ár, til dæmis Connecticut, New York, Maryland og Kali­forníu, hefur lög­gjöf varð­andi byssu­eign verið hert.

Í ríkjum þar sem repúblikanar eru við stjórn­völ­inn er staðan allt önnur og stefnan frekar að liðka fyrir byssu­eign en herða. Þannig er staðan í Texas, þar sem skotárásin varð í vik­unni. Beto O'Rourke, fram­bjóð­andi demókrata til rík­is­stjóra í Texas í kosn­ingum sem fram fara í nóv­em­ber, lét Greg Abbott heyra það á blaða­manna­fundi í gær þar sem hann gagn­rýndi stefnu hans, og rík­is­ins, um byssu­lög­gjöf. „Tíminn til að stöðva næstu skotárás er núna og þú ert ekki að gera neitt,“ sagði O'Rourke.

Við­brögðin í Texas hafa verið á þá leið að auka fjár­magn til örygg­is­gæslu í skólum og hefur Ken Paxton, rík­is­sak­sókn­ari í Texas, lagt til að kenn­urum verði veittur greið­ari aðgangur að skot­vopnum.

Hindranir fyrir dómstólum

Jafnvel þó stjórn­mála­lands­lagið breyt­ist á þingi eða í ein­stökum ríkjum í átt að frek­ari vilja til hertrar byssu­lögga­far eru fleiri hindr­anir í veg­inum, meðal ann­ars fyrir dóm­stólum.

Í naumum meiri­hluta­úr­skurði, fimm gegnum fjórum, í Hæsta­rétti Banda­ríkj­anna árið 2008, í máli Washington-borgar gegn Dick Heller komst rétt­ur­inn að þeirri nið­ur­stöðu að annar við­auki stjórn­ar­skrár­innar veiti ein­stökum borg­urum skýran rétt til að eiga skot­vopn og nota slík vopn til þess sem telst hefð­bund­inn lög­legur til­gangur, til að mynda til sjálfs­varnar innan heim­ilis.

Sama hversu margar skotárásir í skólum verða á næst­unni virð­ist lítið ætla að hagga stjórn­ar­skrár­vörðum rétti til byssu­eignar í Banda­ríkj­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

byssulöggjöf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár