Krefjast breytinga á byssulöggjöfinni

Nemendur við Stoneman Douglas High School í Flórída heim­sóttu Hvíta­húsið og kröfð­ust breyt­inga á byssu­lög­gjöf­inni.

Nemendur við Stoneman Douglas High School í Flórída, þar sem 17 voru drepnir í skotárás 14. febr­úar síð­ast­lið­inn og fjórir til við­bótar særðir alvar­lega, heim­sóttu Donald Trump Banda­ríkja­for­seta í Hvíta húsið og kröfð­ust breyt­inga á byssu­lög­gjöf­inni.

„Við munum ekki hætta, við krefj­umst aðgerða,“ sagði Justin Gruber, nem­andi á sext­ánda ári við skól­ann, þegar hann ávarp­aði for­set­ann.

Í salnum voru sam­an­komnir nem­endur, for­eldrar fórn­ar­lamba og margir af æðstu ráða­mönnum Banda­ríkj­anna. Ungmenni úr skól­anum fluttu kjarn­yrtar ræður þar sem orð­unum var beint að ráða­mönnum, og var krafa gerð um breyt­ingar á byssu­lög­gjöf­inni.

Töldu þau með öllu óásætt­an­legt að það væri yfir höfuð hægt, að kaupa árás­ar­vopn af ýmsu tagi í versl­unum, án nokk­urra vand­kvæða.

Á þessu ári hafa verið fram­kvæmdar 18 skotárásir í skólum í Banda­ríkj­unum. Að með­al­tali hafa látið lífið um 3,6 af hverjum 100 þús­und íbúum vegna skotárása árlega í Banda­ríkj­unum, en með­al­tölin í flestum þró­uðum ríkjum heims­ins eru á bil­inu 0,1 til 0,3 á hverja hund­rað þús­und íbúa.

Donald J. Trump Banda­ríkja­for­seti sagði á fund­inum að hann teldi koma til greina að kenn­arar myndu bera vopn „til að tryggja öryggi“. Hann sagði að þetta gæti þó aðeins átt við um fólk sem kynni að fara með skot­vopn.

Hann sagð­ist ætla að beita sér fyrir því að bak­grunns­at­hug­anir þeirra sem keyptu skot­vopn yrðu ítar­legri og betri. Hann lof­aði nem­end­unum og aðstand­endum þeirra sem féllu, að grípa til aðgerða. „Í þetta skiptið munum við gera eitt­hvað,“ sagði hann.

Tvenn stór mót­mæli hafa nú þegar verið skipu­lögð, á lands­vísu, undir yfir­skrift­inni; nú er nóg komið (Enough is enough). Þau fara fram 14. mars, þegar nem­endur í gagn­fræði­skólum í Banda­ríkj­unum ætla að yfir­gefa skól­ann til að mót­mæla, og síðan 24. mars, þegar ung­menni ætla að mót­mæla í skipu­lögðum mót­mæla­göngum vítt og breitt um Banda­ríkin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár