Walmart bannar kaup á byssum fyrir 21 árs og yngri

Ákvörðun Walmart þykir með mestu sigrum and­stæð­inga byssu­lög­gjaf­ar­innar í Banda­ríkj­unum.

Stjórn Walmart, stærsta smá­sölu­fyr­ir­tæk­is­ins Banda­ríkj­anna og heims­ins, sé horft til árlegra tekna, ákvað í gær að banna sölu á byssum og skotum til fólks yngra en 21 árs. Áður hafði stór versl­un­ar­keðja, Dick's Sporting Goods, stigið sama skref.

Áður var við­miðið 18 ár. Með þessu telur Walmart sig vera að svara kalli tím­ans, ekki síst að und­an­förnu.

Ungmenni úr Marjory Stoneman Douglas High School í Flórída, þar sem 17 voru drepin í skotárás með AR-15 riffli hinn 14. febr­úar síð­ast­lið­inn, hafa að und­an­förnu haft mikil áhrif um öll Banda­ríkin og leitt áfram þrýsti­hópa og mót­mæli gegn núver­andi byssu­lög­gjöf.

Edward Stack, for­stjóri Walmart, sagði ung­mennin hafa hreyft við stjórn­endum Walmart og leitt til þess að málin voru tekin til end­ur­skoð­unar.

Hefur þeirra meg­in­krafa verið sú að leitt verði í lög bann við sjálf­virkum rifflum, skil­greindum árás­ar­vopnum og að hámarks­aldur fyrir kaupum á byssum verði hækk­aður í 21 árs.

Walmart ákvað í gær að bíða ekki eftir laga­breyt­ingum heldur ákveða að hækka lág­marks­aldur fyrir byssu­kaupum í versl­unum sínum, og taka ákveðnar teg­undir skota úr sölu.

Ákvörð­unin þykir mik­ill sigur fyrir and­stæð­inga byssu­lög­gjaf­ar­innar í Banda­ríkj­unum. Eftir að Walmart til­kynnti um ákvörðun sína var til­kynnt um það að Donald Trump Banda­ríkja­for­seti væri til­bú­inn til þess að end­ur­skoða byssu­lög­gjöf­ina í Banda­ríkj­unum, og taka þar til­lit til ólíkra sjón­ar­miða.

Walmart er stærsti vinnu­veit­andi Banda­ríkj­anna með 2,3 millj­ónir starfs­manna og meira en 500 millj­arða Banda­ríkja­dala í tekjur, eða sem nemur 50 þús­und millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár