Unglingarnir sem ætla að breyta byssumenningunni

Framundan eru fjölda­mót­mæli, 24. mars, þar sem kraf­ist verður breyt­ingar á byssu­lög­gjöf­inni. Vit­und­ar­vakn­ing hefur verið um mik­il­vægi þess að breyta um stefnu und­an­farnar vikur.

Skelfi­leg skotárás á skóla í Flórída, hinn 14. febr­úar, hefur haft mikil áhrif á umræðu um byssu­tengda glæpi og skotárásir á skóla í Banda­ríkj­unum. Því miður hafa skotárásir á skóla verið algengar í Banda­ríkj­unum en það sem af er þessu ári eru þær 19 tals­ins.

Mann­skæð­ust er árásin 14. febr­úar á Mar­jory Stonem­an Douglas High School í Parkland. Þá lét­ust 17. Fjórtán nem­endur og þrír starfs­menn skól­ans.

Ný lína í sandinn

Eftir þennan skelfi­lega atburð má segja að það hafi orðið straum­hvörf í umræðu um byssu­eign og byssu­glæpi í land­inu. Ástæðan er ekki sú að þessi atburður sé ein­stakur, heldur sú að við­brögð bekkj­ar­systk­ina þeirra sem lét­ust hafa verið magn­þrungin, þaul­skipu­lögð og hníf­beitt.

Á þau hefur verið hlustað vegna þess að þau hafa verið skýr í mál­flutn­ingi og náð eyrum fjöl­margra sem mikil áhrif geta haft á sölu- og dreif­ingu skot­vopna. Ekki aðeins stjórn­mála­manna heldur líka for­svars­manna fyr­ir­tækja.

Segja má að einn stærsti sig­ur­inn hafi unn­ist þegar stærsti vinnu­veit­andi Banda­ríkj­anna, WalMart, ákvað að hækka lág­marks­aldur þeirra sem geta keypt byssur úr 18 í 21 ár. Þá voru teknar upp stífar reglur um sölu á svo­nefndum árás­ar­vopnum, og hættu­leg­ustu byss­urnar voru teknar úr sölu.

Í til­kynn­ingu frá WalMart til kaup­hallar sagði ein­fald­lega, að mál­flutn­ingur bekkj­ar­systk­ina þeirra sem lét­ust í Parkland hafi náð eyrum stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins, sem hafi ákveðið að end­ur­skoða reglur með það að mark­miði að vera sam­fé­lags­lega ábyrg­ari sölu­að­ili skot­vopna.

Stórfrétt

Þó til­kynn­ingin hafi verið nokkuð hefð­bundin, þá var henni tekið sem stór­frétt þegar hún birt­ist. Eftir ára­tuga­bar­áttu fyrir breyttri byssu­menn­ingu og reglu­verki þegar kemur að byssum, þá var stærsti versl­un­ar­rek­andi heims­ins, sem er með 2,3 millj­ónir manna í vinnu í Banda­ríkj­unum, til­bú­inn til þess að hlusta á sjón­ar­mið þeirra sem bentu á fár­an­leik­ann í því, að 18 ára gömul ung­menni gætu gengið inn í verslun og keypt árás­ar­vopn sem hönnuð eru til þess að drepa fólk í einu skoti og sem flesta á sem skemmstum tíma.

Eftir heim­sókn ung­menn­anna í Hvíta húsið, þar sem þau ræddu við Donald Trump for­seta og Mike Pence vara­for­seta, þá var ljóst að þeim var dauð­ans alvara með mál­flutn­ingi sínum, um að nú væri nóg komið. Í þetta skiptið yrðu breyt­ingar.

Hvað er Trump að tala um?

Þó Trump hafi lofað ung­menn­unum sem heim­sóttu hann því, að bregð­ast við með end­ur­skoðun byssu­lög­gjaf­ar­innar, þá er ekki gott að segja hvað hann raun­veru­lega vill. Hin valda­miklu Samtök byssu­eig­enda (NRA) hafa náð góðu tal­sam­bandi við for­set­ann, svo ekki sé meira sagt. NRA hafa full­yrt að ekki standi til að tak­marka rétt fólks til þess að eiga og nota byssu af þeirri teg­und sem það vill. Yfir­lýs­ing um þetta birt­ist frá sam­tök­unum eftir fund með Trump. For­set­inn sagði á Twitter eftir fund með NRA að hann hefði átt „frá­bæran“ fund með NRA, án þess þó að tjá sig neitt efn­is­lega um hvað var rætt á fund­inum.

NRA hefur gíf­ur­lega mikil ítök í banda­ríska þing­inu, og þá einkum hjá Repúblikönum. Samtökin hafa styrkt fram­boð ein­stakra þing­manna og barist ötul­lega fyrir því að Banda­ríkja­menn geti nálg­ast byssur - af svo til öllum þekktum teg­undum - með sem ein­föld­umst hætti. Vitna sam­tökin oft­ast nær í stjórn­ar­skrána, máli sínu til stuðn­ings. Allir eigi að hafa frelsi til að eiga skot­vopn til að geta varið sig, segja sam­tökin.

Þau hafa með öllu neitað með að mögu­lega sé sam­hengi á milli hins auð­velda aðgengis að skot­vopnum og síðan ótrú­legra margra byssu­glæpa í Banda­ríkj­unum. Tölurnar eru bein­línis slá­andi.

Tæplega 4 eru drepnir með byssu í Banda­ríkj­unum á hverja 100 þús­und íbúa, en algengt er að þetta hlut­fall sé á bil­inu 0,2 til 0,4 á Vest­ur­löndum.

Vopnaðir kennarar?

Þrátt fyrir að nú sé búið að hækka lág­marks­aldur byssu­kaup­enda í 21 ár í Flórída, og raunar víðar í ríkjum Banda­ríkj­anna, þá eru engu að síður blikur á lofti um hvaða stefnu þessi mála­flokkur mun taka. Trump hefur talað fyrir því að kenn­arar fái heim­ild til að bera skot­vopn í skólum, en þó ein­ungis ef þeir hafa fengið þjálfun til þess. Flórída ríki hefur raunar þegar stigið fyrsta skrefið í þessa átt með breyt­ingum á reglu­verki.

Framundan er áfram­hald­andi slagur um byssu­lög­gjöf­ina, þar sem ung­ling­arnir í Parkland eru í far­ar­broddi bar­átt­unnar gegn núver­andi byssu­lög­gjöf. Þeir vilja að miklu tak­mark­anir séu settar á byssu­sölu, bak­grunns­at­hug­anir verði hertar og komið í veg fyrir það - með öllum ráðum - að and­lega veikir ein­stak­lingar geti keypt byssur og notað þær.

Mörgum þykja þessar kröfur sjálf­sagðar, en sagan segir okkur að það verði þrautin þyngri að þrýsta þessum breyt­ingum í gegn. Hinn 24. mars verða sam­stöðu­fundir um öll Banda­ríkin, og er meg­in­krafn sú að byssu­lög­gjöf­inni verði breytt í sam­ræmi við kröfur ung­ling­anna í Parkland.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár