Ungmenni ganga út úr skólum um öll Bandaríkin

Ungmenni í Banda­ríkj­unum hafa í dag stýrt tákn­ræna sam­stöðu til að minna á mik­il­vægi þess að sporna gegna byssu­glæpum.

Nemendur í ung­menna­skólum (High School) um öll Banda­ríkin hafa í dag gengið út úr skóla­stofum, með 17 mín­útna hléi, til minn­ingar um þá 17 sem lét­ust í skotárás á Marjory Stoneman Douglas High School fyrir mán­uði síðan upp á dag.

Bekkj­ar­fé­lagar þeirra sem lét­ust hafa skipu­lagt mót­mælin og sam­stöðu­fundi. Þátt­takan hefur verið gríð­ar­leg, og mörg hund­ruð þús­und ung­menni hafa tekið þátt í aðgerðum og einnig sam­stöðu­fundum, þar sem stjórn­völd í Banda­ríkj­unum er hvött til þess að end­ur­skoða byssu­lög­gjöf­ina í land­inu, með það að mark­miði að koma í veg fyrir byssu­árásir.

Eins og kunn­ugt er, þá eru dauðs­föll vegna byssu­glæpa hvergi í þró­uðum ríkjum eins algeng og í Banda­ríkj­unum. Um 3,8 af hverjum 100 þús­und íbúum deyja vegna byssu­glæpa, en algengt hlut­föll í öðrum þró­uðum ríkjum er á bil­inu 0,2 til 0,5.

Á fund­unum í dag, hafa nem­endur hvatt stjórn­völd og yfir­völdum í hverju ríki, til þess að end­ur­skoða reglu­verk til að auka öryggi nem­enda.

Barátta ung­menn­ana frá Flórída hefur nú þegar leitt til mik­illa breyt­inga, þegar kemur aðgengi ung­menna að byssum. Þannig hefur WalMart, stærsti versl­un­ar­rek­andi Banda­ríkj­anna og heims­ins alls, ákveðið að hækka lág­marks­aldur byssu­kaup­enda úr 18 í 21 ár og tekið úr sölu margar teg­undir skot­vopna og skot­færa. Í til­kynn­ingu frá stjórn fyr­ir­tæk­is­ins sagði hún, að bar­átta ung­menna í Banda­ríkj­unum hefði náð eyrum stjórn­ar­innar og að það væri mat hennar, að WalMart þyrfti að sýna meiri ábyrgð.

Mót­mæla­fundir eru skipu­lagðir 24. mars, og eru stór mót­mæli fyr­ir­huguð í Washington DC þar sem stjórn­völd verða minnt á ábyrgð sína, þegar kemur að byssu­lög­gjöf­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár