Baktería talin geta valdið að sjálfsofnæmissjúkdómum

Lítið er vitað um hvað veldur sjálfsof­næm­is­sjúk­dómum.

Söngkonan Selena Gomez glímir við sjálfsofnæmissjúkdóminn lupus.
Söng­konan Selena Gomez glímir við sjálfsof­næm­is­sjúk­dóm­inn lupus.

Tíðni sjálfsof­næm­is­sjúk­dóma hefur farið vax­andi á und­an­förnum árum en lítið er vitað um það hvað veldur þeim. Auk þess getur verið erfitt að greina og með­höndla sjúk­dómana. Vís­inda­menn við háskól­ann í Yale kunna nú að hafa kom­ist að því hvað veldur sjálfsof­næm­is­sjúk­dómum.

Í grein sem birt var í tíma­rit­inu Science er bent á tengsl milli sjálfsof­næm­is­sjúk­dóma og bakt­er­í­unnar Enerococcus gall­in­arum, sem er að finna í þarma­flóru okkar. Samkvæmt nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­hóps­ins getur sjálfsof­næm­is­svar farið af stað þegar bakt­er­ían flyst til ann­arra líf­færa eins og milta, lifur og eitla.

Sjálfsof­næm­is­sjúk­dómar eru hópur sjúk­dóma sem eiga það sam­eig­in­legt að valda lang­vinnum bólgum sem stafa að því að ónæm­is­frumur lík­am­ans ráð­ast gegn heil­brigðum vefum hans. Til eru yfir 100 sjálfsof­næm­is­sjúk­dómar, þar á meðal eru lupus og liða­gigt.

Í rann­sókn­inni voru erfða­breyttar mýs sem voru sótt­næmar fyrir sjálfsof­næm­is­sjúk­dómum not­aðar til að skilja betur þennan hóp sjúk­dóma. Með því að greina bakt­er­íur í þörmum mús­anna sem ollu bólgu­svari og fram­leiðslu mótefna í lík­am­anum var bakt­er­ían Enterococcus gall­in­arum greind sem helsti söku­dólg­ur­inn.

Til að stað­festa grun sinn skoð­aði rann­sókn­ar­hóp­ur­inn að auki lifr­ar­frumur rækt­aðar úr bæði heil­brigðum ein­stak­lingum og ein­stak­lingum með sjálfsof­næm­is­sjúk­dóma. Í þeim hópi sem glímdi við sjálf­só­næm­is­sjúk­dóm var bakt­er­í­una að finna í rækt­uðu fru­munum.

Að auki þró­aði rann­sókn­ar­hóp­ur­inn sýkla­lyf eða bólu­efni gegn bakt­er­í­unni og dró það úr ein­kennum í mús­unum. Vonir standa til að hægt verði að þróa bólu­efnið áfram svo úr verði leið til að með­höndla sjálfsof­næm­is­sjúk­dóma í fram­tíð­inni.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár