Malacidin – nýtt sýklalyf gegn ónæmum bakteríum

Nýtt sýkla­lyf gefur ástæðu til bjart­sýni. Notast var við jarð­vegs­sýni til að leita að genum sem gætu kóðað fyrir sýkla­lyfjum.

Enn og aftur dúkkar sýkla­lyfja­ó­næmið upp hjá okkur og í þetta sinn fréttir sem gefa ástæðu til bjart­sýni. Fyrr í vik­unni var birt grein í tíma­rit­inu Nature Microbiology þar sem upp­götvun vís­inda­hóps við The Rockefeller Uni­versity á nýju sýkla­lyfi er sett fram.

Hópurinn not­aði jarð­vegs­sýni til að leita eftir genum sem gætu kóðað fyrir sýkla­lyfjum. Til að auð­velda sér leit­ina nýtti hóp­ur­inn sér þekk­ingu sína á svoköll­uðum kalk-háðum sýkla­lyfjum. Slík sýkla­lyf eru eins og nafnið gefur til kynna háð því að kalk sé í umhverfi bakt­er­í­unnar svo það virki.

Hópurinn nýtti sér þess vegna þekktar raðir sem til­heyra genum sem gera sýkla­lyfin kalk-háð til að leita að erfða­efn­is­bútum úr jarð­vegs­sýn­unum og fiska þannig út mögu­leg sýkla­lyfjagen. Þetta er fram­kvæmt á þann hátt að jarð­vegs­sýnum er safnað og erfða­efni allra líf­vera sem þar búa er ein­angrað. Síðan er allt erfða­efnið rað­greint og eftir það leitað eftir þessum til­teknu þekktu röðum.

Næsta skref var svo að skoða erfða­efnið í kring um kalk-háðu bút­ana og meta hvort um var að ræða mögu­legt gen sem kóðar fyrir sýkla­lyfjum. Ef talið var lík­legt að þarna væri eitt­hvað bita­stætt á ferð­inni, þá var erfða­efn­inu komið fyrir inní til­rauna­líf­ver­unni E.coli sem bjó til afurð gens­ins. Efninu safnað og ein­angrað áður en það var prófað með til­liti til sýkla­lyfja­virkni.

Ástæða þess að hópu­inn leit­aði að nýju sýkla­lyfi í jarð­vegs­sýnum er sú að þar er mikið af óþekktum örverum sem eru lík­legar til að bera með sér ein­hvers konar varnir gegn öðrum örveru, sýkla­lyf eru jú í flestum til­fellum upp­runnar í bakt­er­íum eða sveppum.

Fyrsti ávinn­ingur þess­arar leitar hefur nú litið dags­ins ljós – malicidin. Nýja sýkla­lyfið hefur verið prófað á Staphylococcus aureus stofni sem geymir sýkla­lyfja­ó­næmi. Nið­ur­stöð­urnar voru afger­andi, bakt­er­ían steinlá fyrir þessu nýja lyfi.

Þrátt fyrir þessar gleði­legu nið­ur­stöður er þó enn langt í land. Þróun og prófun nýrra lyfja tekur því miður nokkur ár í fram­kvæmd. Allt er þetta þó gert til að auka öryggi okkar neyt­enda og á meðan við bíðum er aldrei að vita nema Rockefeller hóp­ur­inn og aðrir hópar sem stunda svip­aðar rann­sóknir, kynni enn fleiri sýkla­lyf til sög­unnar.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatanum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár