Stjórnvöld hafa ekki metið ávinning neytenda né bænda af búvörusamningum

Búvöru­samn­ingar sem und­ir­rit­aðir voru 2016 kosta að minnsta kosti 13 millj­arða króna á ári í tíu ár. Sam­ráðs­hópur um end­ur­skoðun þeirra hefur verið end­ur­skip­aður tvisvar sinnum. Ekkert mat fram­kvæmt á ávinn­ingi neyt­enda né bænda.

Íslensk stjórn­völd hafa hvorki látið fara fram sér­stakt mat á ávinn­ingi neyt­enda né á ávinn­ingi bænda af til­urð búvöru­samn­inga. Hins vegar hafi stjórn­völd látið vinna úttektir á árangri búvöru­samn­inga á síð­ast­liðnum tveimur ára­tugum. Í aðdrag­anda þeirra samn­inga sem und­ir­rit­aðir voru síð­asta hafi til að að mynda verið byggt á þremur skýrslum og hafi skýrsl­unnar legið til grund­vallar þeim samn­ingum. Þetta kemur fram í svari Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Þor­steins Víglunds­sonar, þing­manns Við­reisnar, um búvöru­samn­inga.

Tvær skýrsln­anna sem vísað er til voru unnar af Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands. Þær fjalla um aðlög­un­ar­samn­ing ríkis og garð­yrkju­bænda (kom út í nóv­em­ber 2013) og mjólk­ur­fram­leiðslu á Íslandi (kom út í júní 2015). Sú þriðja er unnin af Rann­sókn­ar­mið­stöð Háskól­ans á Akureyri og fjallar um mark­mið og for­sendur sauð­fjár­rækt­ar­samn­ings (kom út í októ­ber 2015).

Tíu ára samningar

Nýj­­ustu búvöru­samn­ing­­arnir voru und­ir­­rit­aðir 19. febr­­úar 2016 af full­­trúum bænda ann­­ars vegar og full­­trúum rík­­is­ins. Fyrir hönd rík­­is­ins skrif­uðu Sig­­urður Ingi Jóhanns­­son, þáver­andi land­­bún­­að­­ar­ráð­herra, og Bjarni Bene­dikts­­son, fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, undir samn­ing­anna.

Þeir voru afar umdeildir og vöktu upp miklar deilur í sam­fé­lag­inu. Þrennt skipti þar mestu. Í fyrsta lagi lengd þeirra, en samn­ing­arnir bundu hendur rík­is­stjórn­a í að minnsta kosti þrjú kjör­tíma­bil. Í öðru lagi feiki­lega hár kostn­aður sem greiddur er úr rík­is­sjóði til að við­halda kerfi sem að mati margra hags­muna­að­ila er fjand­sam­legt neyt­endum og bændum sjálfum og gagn­ast fyrst og síð­ast stórum milli­liðs­fyr­ir­tækjum eins og Mjólk­ur­sam­söl­unni, Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga og Slát­ur­fé­lagi Suð­ur­lands. Í þriðja lagi var gagn­rýnt að engir aðrir en bændur og for­svars­menn rík­is­ins hafi verið kall­aðir að borð­inu þegar samn­ing­arnir voru und­ir­bún­ir.

Greiðslur úr rík­is­sjóði vegna samn­ings­ins nema 132 millj­örðum króna á samn­ings­tím­an­um, eða að með­al­tali 13,2 millj­arðar króna á ári. Auk þess eru samn­ing­arnir tvö­falt verð­tryggð­ir. Þ.e. þeir taka árlegum breyt­ingum í sam­ræmi við verð­lags­upp­færslu fjár­laga og eru „leið­rétt­ir“ ef þróun með­al­tals­vísi­tölu neyslu­verðs verður önnur en verð­lags­for­sendur fjár­laga á árinu.

Í samn­ing­unum er stefnt að því að kvóta­­kerfi í mjólk­­ur­fram­­leiðslu og sauð­fjár­­­rækt verði lagt nið­­ur. Hins vegar hefur verið ákveðið að halda núver­andi stöðu óbreyttri um ein­hvern tíma og setja ákvörðun um afnám kvóta­­kerf­is­ins í atkvæða­greiðslu meðal bænda árið 2019.

Búvöru­samn­ing­arnir eru fjórir samn­ing­ar: Ramma­samn­ingur um almenn starfs­skil­yrði land­bún­að­ar­ins og samn­ingar um starfs­skil­yrði naut­­gripa­­rækt­­­ar, sauð­fjár­­­ræktar og garð­yrkju.

Svört skýrsla um mjólkurframleiðslu

Und­ir­ritun samn­ing­anna vakti strax gríð­ar­lega hörð við­brögð. Sú gagn­rýni snéri fyrst og síð­ast að þeim upp­hæðum sem þar eru undir og tíma­lengd samn­ings­ins. Þá var harð­lega gagn­rýnt að hags­munir neyt­enda hefðu verið hunds­aðir við gerð þeirra. Var þar meðal ann­ars vísað í skýrslu sem Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands vann um mjólk­ur­vöru­fram­leiðslu á Íslandi og kom út í júni 2015. Skýrslan er ein þeirra sem ráð­herra segir í svari sínu við ofan­greindri fyr­ir­spurn að hafi verið lögð til grund­vallar við gerð búvöru­samn­inga. Nið­ur­staða hennar var hins vegar nokkuð skýr: Íslenska kerfið er mein­gallað og afar kostn­að­­ar­­samt fyrir ríkið og neyt­end­­ur.

Í skýrsl­unni segir að það kerfi sem er við lýði geri það að verkum að íslenska ríkið og eig­endur þess, íslenskir neyt­end­­ur, þurfi að borga um átta millj­­örðum krónum meira fyrir fram­­leiðslu á henni en ef mjólkin hefði ein­fald­­lega verið flutt inn frá öðru fram­­leiðslu­landi á árunum 2011 til 2013. Ríkið og neyt­endur borg­uðu 15,5 millj­­arða króna fyrir mjólk­ina á tíma­bil­inu en inn­­­flutt mjólk, með flutn­ings­­kostn­aði, hefði kostað 7,5 millj­­arða króna. Reyndar var það svo að á tíma­bil­inu sem um ræðir var fram­­leitt meira af mjólk hér­­­lendis en neytt var af henni. Neysla Íslend­inga hefði ein­ungis kostað tæp­­lega 6,5 millj­­arða króna á ári. Offram­­leiðsla á nið­­ur­greiddri mjólk­inni kost­aði neyt­endur og ríkið því millj­­arð til við­­bót­­ar.

Bændur geta hafnað endurskoðun

Í búvöru­samn­ingum er gert ráð fyrir því að hægt sé að end­ur­skoða samn­ing­anna á samn­ings­tím­anum. Fyrstu end­ur­skoðun á að ljúka fyrir árs­lok 2019. Sam­ráðs­hópur um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga á að vinna þá vinnu.

Það er hins vegar undir bændum komið hvort að samn­ing­arnir verði end­ur­skoð­aðir eða ekki. Þeir eiga þess kost að kjósa um nýjan búvöru­samn­ing eða við­bætur við fyrri samn­inga. Hafni þeir mögu­legum breyt­ingum sem sem gerðar verða við end­ur­skoð­un­ina 2019 verður aftur sest niður og leitað frek­ari samn­inga.

Því er ljóst að Bænda­sam­tökin geta ein­hliða hafnað öllum þeim breyt­ingum sem lagðar verða til við end­ur­skoðun búvöru­samn­inga árið 2019 ef aðilar þeirra eru þeim mót­falln­ir. Hafni þeir öllum end­ur­skoð­un­ar­til­lögum munu samn­ing­arnir gilda til þeirra tíu ára sem þeir eru gerð­ir.

Þrír hópar á rúmu ári

Frá haustinu 2016 hafa þrír sam­ráðs­hópar um end­ur­skoðun búvöru­samn­inga verið skip­aðir af þremur mis­mun­andi rík­is­stjórnum. Það er til merkis um hversu póli­tískt málið er.

Gunnar Bragi Sveins­­son, frá­­far­andi ráð­herra mála­­flokks­ins, lauk upp­haf­lega við að skipa í sam­ráðs­hóp­inn 18. nóv­­em­ber 2016, þremur vikum eftir kosn­­ingar og mán­uði eftir að skipan hans átti upp­­haf­­lega að liggja fyr­ir­. Af þeim tólf full­­­trúum sem skip­aðir voru í hóp­inn voru átta full­­­trúar sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegs- og land­­­bún­­­að­­­ar­ráðu­­­neytis eða Bænda­­­sam­­­taka Íslands, þeir sömu og gerðu búvöru­­samn­ing­anna í febr­­ú­­ar 2016 sem til stendur að end­­ur­­skoða. Laun­þeg­­­ar, atvinn­u­lífið og neyt­endur áttu sam­tals fjóra full­­­trú­a.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, sem tók við sem sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra í jan­úar 2017, end­ur­skip­aði í sam­ráðs­hóp­inn. Full­trúum var fjölgað úr tólf í þrett­án. Umhverf­is­ráð­herra til­nefndir einn full­trúa og Félag atvinnu­rek­enda einn, til við­bótar þeim sem þegar voru skip­aðir sam­kvæmt til­nefn­ingu. Þá var skipan þriggja full­trúa af fimm sem fyrri ráð­herra skip­aði án til­nefn­ingar aft­ur­köll­uð og nýir full­trúar skip­aðir í stað­inn.

Kristján Þór, núver­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, end­ur­skip­aði síðan hóp­inn enn á ný í síð­ustu viku. Nú eru átta manns í honum og tveir for­menn, þau Bryn­hildur Pét­urs­dóttir fram­kvæmda­stjóri Neyt­enda­sam­tak­anna og Har­aldur Bene­dikts­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­maður Bænda­sam­tak­anna.

Auk þess eru í hópnum Þór­lindur Kjart­ans­son, skip­aður af land­bún­að­ar­ráð­herra, Haf­dís Hanna Ægis­dótt­ir, skipuð af umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra, Jóhanna Hreins­dóttir skipuð af Sam­tökum afurða í mjólkur­iðn­aði, Hall­dór Árna­son skip­aður af Sam­tökum atvinnu­lífs­ins, Sindri Sig­ur­geirs­son for­maður Bænda­sam­tak­anna og Elín Heiða Vals­dóttir einnig skipuð af Bænda­sam­tök­un­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

landbúnaðarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár