Lagt til að mjólkurframleiðslukerfi verði gjörbylt neytendum í vil

Það kerfi sem er við­haft á Íslandi við mjólk­ur­fram­leiðslu gerir það að verkum að íslenska ríkið og eig­endur þess, íslenskir neyt­endur, þurfa að borga um átta millj­örðum krónum meira fyrir fram­leiðslu á henni en ef mjólkin hefði ein­fald­lega verið flutt inn frá öðru fram­leiðslu­landi á árunum 2011 til 2013. Ríkið og neyt­endur borg­uðu 15,5 millj­arða króna fyrir mjólk­ina á tíma­bil­inu en inn­flutt mjólk, með flutn­ings­kostn­aði, hefði kostað 7,5 millj­arða króna. Reyndar er það svo að á tíma­bil­inu sem um ræðir var fram­leitt meira af mjólk hér­lendis en neytt var af henni. Neysla Íslend­inga hefði ein­ungis kostað tæp­lega 6,5 millj­arða króna á ári. Offram­leiðsla á nið­ur­greiddri mjólk­inni kost­aði neyt­endur og ríkið því millj­arð til við­bótar.

Þetta kemur fram í skýrslu Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands um mjólk­ur­vöru­fram­leiðslu á Íslandi sem gerð var opin­ber í dag. Nið­ur­staða skýrsl­unnar er nokkuð skýr: íslenska kerfið er mein­gallað og afar kostn­að­ar­samt fyrir ríkið og neyt­endur. Skýrslu­höf­undar leggja til að magn­tollar af mjólk­ur­vörum verði afnumdir og verð­tollar lækk­aðir úr 30 pró­sentum í 20 pró­sent. Það ætti að nægja „til þess að ýmsar erlendar mjólk­ur­vörur verði boðnar til sölu hér, en íslenskar mjólk­ur­vörur verða þó áfram sam­keppn­is­færar. Neyt­endur hafa þá úr fleiri vörum að velja en nú og íslenskir fram­leið­endur fengju aukið aðhald.“ Á sama tíma vilja skýrslu­höf­undar afnema und­an­þágu mjólk­ur­fram­leiðslu­iðn­að­ar­ins frá sam­keppn­is­lögum.

Með öðrum orðum, þeir vilja gjör­bylta kerf­inu neyt­endum í vil.

Þrjár meginstoðir íslenska kerfisins


Í skýrsl­unni kemur fram að þrjár meg­in­stoðir liggi til grund­vallar stuðn­ings­kerfi mjólk­ur­fram­leiðslu á Íslandi. Í fyrsta lagi gildir ákveðið lág­marks­verð sem fram­leidd er innan greiðslu­marks mjólkur. Til­gangur þess er að tryggja að kúa­bændur fái svipuð laun og gengur og ger­ist hjá öðrum starfs­stéttum. Umfram­mjólk er síðan heim­ilt að selja á hvaða verði sem er. Lág­marks­verðið er sett í skjóli umfangs­mik­illar tolla­verndar sem gerir það að verkum að íslenskir mjólk­ur­fram­leið­endur sitja einir að inn­an­lands­mark­aði.

Önnur stoðin er svo­kallað greiðslu­marks­kerfi, sem er eins konar kvóta­kerfi sem veitir aðgang að lok­uðum inn­an­lands­mark­aði. Það sam­anstendur af heild­ar­greiðslu­marki sem er síðan deilt niður á kúa­bændur. Það hefur auk­ist ár frá ári og er 140 þús­und lítrar árið 2015.

Skýrslu­höf­undar benda á að stór hluti af stuðn­ingi við mjólk­ur­fram­leiðslu renni nú þegar til fjár­mála­stofn­ana og þeirra sem áður stund­uðu búskap. „Ekki verður annað séð en að bændur sjálfir njóti með tím­anum æ minni hluta stuðn­ings­ins. Þetta stafar af því að stuðn­ing­ur­inn eign­ger­ist í greiðslu­marki“.

Bein­greiðslur eru þriðja og síð­asta stoðin.Fyr­ir­framá­kveð­inni heild­ar­fjár­hæð er skipt milli greiðslu­marks­hafa í réttu hlut­falli við greiðslu­mark þeirra. Árið 2015 eru áætl­aðar greiðslur úr rík­is­sjóði vegna mjólk­ur­fram­leiðslu 6,5 millj­arðar króna. Í skýrslu Hag­fræði­stofn­unar kemur fram að mikil óvissa sé um þjóð­hags­legan kostnað vegna stuðn­ings rík­is­ins við kúa­bændur. Líklega sé hann á bil­inu 1,5 millj­arðar króna á ári og upp í rúma fjóra millj­arað króna. „Hér er um að ræða kostnað neyt­enda og skatt­greið­enda umfram ábata þeirra sem njóta góðs af stuðn­ings­kerf­inu,“ segir í skýrsl­unni.

[caption id="attachment_31120" align="alignnone" width="640"] Þær breyt­ingar sem Hag­fræði­stofnun Háskól­ans leggur til að verði gerðar á mjólk­ur­fram­leiðslu­kerf­inu myndu gjör­bylta því.[/caption]

Fákeppni og einokun markaðsráðandi fyrirtækja


Þetta kerfi leiðir af sér fákeppni. Staðan í íslenskum mjólkur­iðn­aði í dag er nefni­lega þannig að Mjólk­ur­sam­salan (MS) og Kaup­fé­lag Skag­firð­inga, sem á hlut í MS, kaupa nán­ast alla mjólk sem bændur á Íslandi selja. Fyr­ir­tækin tvö vinna auk þess saman og eru með algjöra ein­ok­un­ar­stöðu á mjólk­ur­vöru­mark­aði.

Þessi mark­aðs­ráð­andi staða fyr­ir­tækj­anna hefur verið nokkuð í sviðs­ljós­inu und­an­farin miss­eri í kjöl­far þess að Sam­keppn­is­eft­ir­litið sektaði MS um 370 millj­ónir króna í sept­em­ber síð­ast­liðnum fyrir að mis­nota mark­aðs­ráð­andi stöðu sína og brjóta þar af leið­andi gegn sam­keppn­is­lögum. Málið snérist um að MS hefði selt sam­keppn­is­að­ilum fyr­ir­tæk­is­ins Kú, sem eru tengdir MS, hrá­mjólk á 17 pró­sent lægra verði en því sem Kú bauðst.

Áfrýj­un­ar­nefnd sam­keppn­is­mála komst nokkru síðar að fella yrði úrskurð­inn úr gildi þar sem MS lét við undir höfuð leggj­ast að upp­lýsa stofn­un­ina um þennan áður óþekktan samn­ing við KS. Að mati nefnd­ar­innar komu ekki fram full­nægj­andi skýr­ingar af hálfu MS á fram­kvæmd samn­ings­ins fyrir nefnd­inni. Því er Sam­keppn­is­eft­ir­litið að rann­saka málið aftur, með hlið­sjón af umræddum samn­ingi. Nið­ur­staða liggur ekki fyrir.

Undanþegin samkeppniseftirliti


Sú ein­ok­un­ar­staða sem fyr­ir­tækin tvö, MS og Kaup­fé­lag Skag­firð­inga, eru með á mjólk­ur­vöru­mark­aði byggir einnig að búvöru­lögum og sér­stak­lega breyt­ingum sem á þeim voru gerðar á vor­þingi 2004.

Þá lagði Guðni Ágústs­son, þáver­andi land­bún­að­ar­ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins, fram stjórn­ar­frum­varp sem gekk út á að lög­festa verð­sam­ráð afurða­stöðva í mjólkur­iðn­aði og und­an­skilja búvöru­lög frá sam­keppn­is­eft­ir­liti. Í frum­varp­inu sagði að afurða­stöðvum yrði „heim­ilt að gera samn­inga sín á milli um verð­til­færslu milli til­tek­inna afurða“ þrátt fyrir ákvæði sam­keppn­islaga sem bönn­uðu slíkt sam­ráð. Í rök­stuðn­ingi frum­varps­ins sagði: „Frumvarp þetta er samið að til­hlutan land­bún­að­ar­ráð­herra [Guðna Ágústs­sonar] í því skyni að lög­festa ákvæði sem ætlað er að eyða þeirri réttaró­vissu sem skap­ast hefur um gild­andi búvöru­lög, nr. 99/1993, tryggi ekki með nægj­an­legri vissu að sam­ráð, sam­runi og verð­til­færsla í mjólkur­iðn­aði sé und­an­skilið gild­is­sviði sam­keppn­islaga í sam­ræmi við ætlan lög­gjafans“.

Hvorki var haft sam­ráð við land­bún­að­ar­nefnd né fjár­laga­nefnd við und­ir­bún­ing frum­varps­ins. Það kom fyrst fyrir sjónir nefnd­ar­manna í þeim nefndum þegar því var dreift á Alþingi.

Í ræðu sem Guðni flutti þegar hann mælti fyrir frum­varp­inu sagði hann að „á meðal mark­mið­anna er að skapa rekstr­ar­um­hverfi fyrir fram­leiðslu og vinnslu mjólk­ur­af­urða sem leiði af sér aukna hag­kvæmni, bæti afkomu­mögu­leika í mjólk­ur­fram­leiðslu og jafn­framt að við­halda þeim stöð­ug­leika sem náðst hefur milli fram­leiðslu og eft­ir­spurnar.“ Frum­varpið varð svo að lögum á loka­degi vor­þings 2004.

Eftir að Guðni hætti í stjórn­málum var hann ráð­inn fram­kvæmda­stjóri Samtaka afurða­stöðva í mjólkur­iðn­aði, sem eru í eigu MS, Kaup­fé­lags Skag­firð­inga og Mjólku, sem er í eigu Kaup­fé­lags Skag­firð­inga. Nær allar afurða­stöðvar sem taka við mjólk frá fram­leið­endum eru aðilar að sam­tök­unum.

[caption id="attachment_31121" align="alignnone" width="640"] Í skýrsl­unni er lagt til að opin­bert heild­sölu­verð á mjólk­ur­vörum verð lagt af og und­an­þágur mjólk­ur­vinnslu­fyr­ir­tækja frá sam­keppn­is­lögum verði felldar úr gildi.[/caption]

Íslensk mjólk að jafnaði 30 prósent dýrari


Í skýrslu Hag­fræði­stofn­unar er tekið á öllum ofan­greindum málum. Bent er á að almennt hafi stjórn­völd á Vest­ur­löndum dregið úr stuðn­ingi við land­búnað und­an­farin ár. Í Evr­ópu­sam­band­inu hafi kvóti á fram­leiðslu mjólkur til að mynda verið lagður af í mars 2015.

Að mati Efnahags- og fram­fara­stofn­un­ar­innar (OECD) var íslensk mjólk að jafn­aði um 30 pró­sent dýr­ari en inn­flutt mjólk. Þegar styrkjum úr rík­is­sjóði er bætt við það verð eykst mun­ur­inn mikið. Í skýrsl­unni kemur fram að á árunum 2011 til 2013 hafi mjólk á bænda­verði kostað „neyt­endur og íslenska ríkið 15,5 millj­arð króna á ári að jafn­aði, en inn­flutt mjólk hefði kostað tæp­lega 7,5 millj­arð króna, með flutn­ings­kostn­aði. Stuðn­ingur ríkis og neyt­enda við fram­leiðsl­una var með öðrum orðum um 8 millj­arðar króna á ári. Á þessum tíma var meira fram­leitt af mjólk hér á landi en neytt var af henni. Neysla Íslend­inga á mjólk hefði aðeins kostað tæp­lega 6,5 millj­arð króna, ef mjólkin hefði verið flutt inn. Hér er rætt um mjólk á bænda­verði, en þá er eftir að vinna hana.“

Veigamiklar breytingar lagðar til


Í lokakafla skýrsl­unnar eru því gerðar til­lögur um breyt­ingar á opin­berum stuðn­ingi við mjólk­ur­fram­leiðslu. Þar er lagt til að verð­tollar verði lækk­aðir í 20 pró­sent og magn­tollar afnumdir, svo fram­leiðsla grann­landa verði sam­keppn­is­fær við íslenskar mjólk­ur­af­urðir hér á landi. Síðan er lagt til að opin­bert heild­sölu­verð á mjólk­ur­vörum verð lagt af og und­an­þágur mjólk­ur­vinnslu­fyr­ir­tækja frá sam­keppn­is­lögum verði felldar úr gildi. „Í stað greiðslna úr rík­is­sjóði fyrir mjólk­ur­fram­leiðslu innan greiðslu­marks (fram­leiðslu­kvóta) komi annað hvort styrkir sem mið­aðir verði við fjölda naut­gripa og hey­feng, að ákveðnu marki, eða hreinir búsetu­styrkir. Lagt er til að greiðslu­mark (fram­leiðslu­kvóti) verði aflagt.“

Þessar breyt­ingar myndu gjör­breyta því fyr­ir­komu­lagi mjólk­ur­fram­leiðslu sem nú er við lýði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár