Prímatar klónaðir í fyrsta sinn

Kín­verskir vís­inda­menn hafa klónað apa. Tvo apa.

Kín­verskum vís­inda­mönnum hefur tek­ist að klóna prímata fyrstir manna. Þetta er í fyrsta sinn sem klónun á pró­mötum heppn­ast svo vitað sé. Sama aðferð var notuð við klón­un­ina og þegar kindin Dolly var klónuð á sínum tíma.

Klónunin var fram­kvæmd af vís­inda­mönnum við Chinese Academy of Sciences í Shanghai og gaf af sér tvo kven­kyns apa sem bera nöfnin Zhong Zhong og Hua Hua. Ef hægt verður að end­ur­fram­kvæma klón­un­ina gefur tæknin mögu­leika á því að rækta apa sem allir hafa sömu erfða­eig­in­leika. Slíkir apar eru kjörin en umdeild við­fangs­efni í ýmsar rann­sóknir á sjúk­dómum manna.

Rann­sókn­ar­hóp­ur­inn tekur sér­stak­lega fram að ætl­unin sé ekki að nýta aðferð­ina til að klóna menn. Fremur von­ast þeir til þess að hún nýt­ist við lækn­is­fræði­legar rann­sóknir.

Aðferðin sem notuð var kall­ast SCNT (e. somatic cell nuclear trans­fer) og byggir á því að fjar­lægja kjarna egg­frumu og koma í stað hans fyrir tví­litna kjarna úr frumu ein­stak­lings­ins sem skal klóna. Þar með er heilu erfða­efni komið fyrir í egg­inu. Egg­fruman er síðan örvuð til að skipta sér og að lokum er henni komið fyrir í legi stað­göngu­móður. Ef allt gengur að óskum fæð­ist heil­brigð klónuð líf­vera.

Áður hefur tek­ist að klóna 23 teg­undir spen­dýra með aðferð­inni en hún hefur ekki gefið góða raun í prímötum þar til nú. Ástæðuna má rekja til þess að erf­ið­lega hefur gengið að for­rita frumuna til að hegða sér eins og hefð­bund­inn fóst­ur­vísir.

Klónun hefur verið umdeild tækni frá upp­hafi og eru rann­sóknir þar sem prímatar eru not­aðir ekki síður umdeildar vegna gáfna þeirra og skyld­leika við menn. Afar strangar reglur gilda um rann­sóknir á prímötum víðs vegar um heim­inn og á Vest­ur­löndum má aðeins nýta þá sem til­rauna­dýr ef ekk­ert annað dýra­módel kemur til greina og rann­sóknin er sér­stak­lega mik­il­væg í lækn­is­fræði­legum skiln­ingi. Regl­urnar eru ekki jafn strangar í Asíu og eru því margar rann­sóknir á prímötum sem fara þar fram.

Það kemur því ekki á óvart að klón­unin á öpunum sé einnig umdeild í sam­fé­lag­inu en rann­sókn­ar­hóp­ur­inn von­ast til þess að íbúar á Vest­ur­löndum muni skilja gagn­semi klón­aðra apa í rann­sóknum með tím­anum.

Grein um rann­sókn­ina var birt í tíma­rit­inu Cell.

Greinin birt­ist fyrst á Hvatinn.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár