Á þriðja hundrað mál bíða nýrra héraðsdómara

Töf hefur orðið á skipun nýrra hér­aðs­dóm­ara. Gæti taf­ist enn frekar. Dóm­stjóri við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur segir baga­legt ef skip­unin tefst mikið lengur.

Guðlaugur Þór Þórðarson.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þeir sjö dóm­arar sem færðu sig frá Hér­aðs­dómi Reykja­víkur yfir í Lands­rétt nú um ára­mótin hafa á höndum sínum 220-230 mál. Dóm­stjóri við dóm­stól­inn segir það baga­legt ef skipun dóm­ar­anna dregst langt fram í jan­úar, hvað þá lengur.

Hér­aðs­dóm­stóla lands­ins vantar nú átta dóm­ara eftir að hluti þeirra færð­ist yfir til Lands­réttar sem tók form­lega til starfa þann 1. jan­úar á þessu ári. Þá mun einn dóm­ari við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur láta af störfum þann 23. jan­úar næst­kom­andi vegna ald­urs.

Töf hefur orðið á ráðn­ingum nýrra dóm­ara. Til stóð að þeir átta dóm­arar sem aug­lýst hafði verið eftir yrðu skip­aðir þann 1. jan­úar. Ljóst var í júní á síðsta ári að tölu­verðan fjölda nýrra hér­aðs­dóm­ara þyrfti að fá til starfa, þegar ákveðið var hverjir myndu færa sig yfir í hinn nýja Lands­rétt. Stöð­urnar voru aug­lýstar í sept­em­ber. Í byrjun októ­ber kom í ljós að Sigríður Á. Andersen, dóms­mála­ráð­herra, er van­hæf til að fara með málið, þar sem hluti umsækj­enda var meðal þeirra sem höfðu stefnt henni vegna þess að hún hafði ákveðið að ganga fram hjá þeim við skipun dóm­ara í Lands­rétt, þvert á nið­ur­stöðu hæf­is­nefndar um hæfi umsækj­enda um emb­ættin. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra var því settur ráð­herra dóms­mála í þessu ein­staka máli, að fara með skip­anir í emb­ætti hér­aðs­dóm­ara.

Símon Sig­valda­son dóm­stjóri við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur sagði í sam­tali við Kjarnann fyrir helgi að í þeim málum sem þeir sjö dóm­arar sem hafa hætt skilja eftir sig, og nýir dóm­arar eiga að taka við, sé í sumum til­fellum búið að ákveða aðal­með­ferð í jan­úar. Öðrum í febr­úar eða mars. Í rest­inni af málum þess­ara dóm­ara hefur slíku verið frestað eða ekki komið að því að halda aðal­með­ferð. Hann segir að ef skipun í þessi emb­ætti kemur þá í vik­unni eða stuttu eftir nýliðna helgi verði ekki of mikil röskun á störfum dóm­stóls­ins. Dragist hún eitt­hvað lengur muni þurfa að fresta málum sem sé alltaf slæmt. Þeir dóm­arar sem nú starfa við dóm­stólin eru með þétta dag­skrá og ekki sé hægt að færa málin yfir á þá. Símon mun sjálfur hlaupa undir bagga í stuttum fyr­ir­tökum mála nú næstu daga. Hann segir þó að hjá hér­aðs­dómi líkt og víða ann­ars staðar sé minna um að vera fyrstu daga árs­ins en aðra daga en von­ast eftir því að fá nýja dóm­ara til starfa sem allra fyrst.

Helga Vala Helga­dóttir þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar gerði stuttu fyrir jól athuga­semdir á Alþingi við að hér­aðs­dóm­stólar á Íslandi muni „tæm­ast“ um ára­mót og kall­aði eftir svörum bæði dóms­mála­ráð­herra sjálfs og setts ráð­herra um hvort sú staða væri ásætt­an­leg. Guð­laugur Þór settur dóms­mála­ráð­herra svar­aði henni til að dóm­stólar lands­ins myndu ekki tæm­ast þrátt fyrir að ekki verði búið að skipa þessa átta dóm­ara og taldi ekki til­efni til að vera með miklar svart­sýn­is­spár.

Ljóst er að skipun dóm­ar­anna mun tefj­ast enn frekar þar sem utan­rík­is­ráð­herra sendi dóm­nefnd um hæfni dóm­ara bréf þann 29. des­em­ber þar sem tölu­verðar aðfinnslur voru gerðar um nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar. Nefndin skil­aði nið­ur­stöðu sinni til ráðu­neyt­is­ins þann 21. des­em­ber. Taldi ráð­herra rök­stuðn­ingi nefnd­ar­innar ábóta­vant og því ekki for­sendur til að taka afstöðu til efn­is­legs mats hennar og þannig leggja mat á hvort hann tekur undir það mat eða hvort til­efni sé til að gera til­lögu um skipun ann­arra umsækj­enda. Ráðherra sendi nefnd­inni bréf þar sem þess var farið á leit að hún útskýrði betur með hvaða hætti matið var fram­kvæmt og hvers vegna þessir átta umsækj­endur voru metnir hæf­ari en aðrir umsækj­endur.

Nefndin skil­aði ráð­herra svari við bréf­inu þann 3. jan­úar. Þar var það meðal ann­ars tekið fram að nefndin lúti ekki boð­valdi ráð­herra og nokkrum aðfinnslum svarað. Ráðherra hefur ekki brugð­ist við svar­bréfi nefnd­ar­innar.

Fyrir liggur að sam­kvæmt nýföllnum dómi Hæsta­réttar í máli umsækj­enda um dóm­ara­stöður við Lands­rétt að ráð­herra ber, ákveði við­kom­andi að fylgja ekki nið­ur­stöðu dóm­nefndar, að fram­kvæma sjálf­stæða rann­sókn á hæfni þeirra umsækj­enda sem ráð­herra vill skipa í emb­ætti en dóm­nefndin telur ekki meðal þeirra hæf­ustu. Slík rann­sókn myndi að öllum lík­indum taka ein­hverjar vikur, jafn­vel mán­uði og þannig tefja skipun dóm­ar­anna enn frekar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómarar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár