Dómnefndin segist ekki lúta boðvaldi ráðherra

Dómnefnd um hæfni umsækj­enda um emb­ætti hér­aðs­dóm­ara hefur svarað bréfi Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar setts dóms­mála­ráð­herra. Nefndin seg­ist velja þá hæf­ustu sam­kvæmt lögum og hyggst ekki fjalla frekar um aðra umsækj­endur.

Guðlaugur Þór Þórðarson settur dómsmálaráðherra.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son settur dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Dómnefnd um hæfni umsækj­enda um emb­ætti átta hér­aðs­dóm­ara hefur svarað bréfi setts dóms­mála­ráð­herra, Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar, þar sem nefndin áréttar að nefndin lúti ekki boð­valdi ráð­herra, heldur sé sjálf­stæð stjórn­sýslu­nefnd. Kjarninn hefur bréfið undir höndum.

Guð­laugur sendi nefnd­inni bréf í kjöl­far umsögn hennar um hvaða átta umsækj­endur hún telur hæf­asta til að gegna emb­ættum hér­aðs­dóm­ara. Taldi ráð­herra að við lestur umsagn­ar­innar og and­mæla sem bár­ust frá 23 umsækj­endum hefðu vaknað ýmsar spurn­ingar um hvernig mati og máls­með­ferð nefnd­ar­innar var háttað.

Í svari nefnd­ar­innar er meðal ann­ars spurn­ingum ráð­herra í tíu tölu­liðum svarað. Ráðherra gerði til að mynda athuga­semdir við að dóm­nefndin hefði ekki not­ast við stiga­töflu til þess að raða umsækj­endum, líkt og gert var í umsögn um þá sem sóttu um stöður við Lands­rétt. Nefndin segir tæki dóm­nefndar, þar á meðal tölu­leg sam­lagn­ing­ar­tæki eins og „excel“, mis­mun­andi og ráð­ist meðal ann­ars af fjölda umsækj­enda og sam­setn­ingu umsækj­enda­hóps­ins. Slíkar töflur hafi ekki verið not­aðar í störfum nefnd­ar­innar fyrr en í Lands­rétt­ar­um­sögn­inni. Nefndin setti upp töflu til gróf­flokk­unar umsækj­enda sem hún telur vera vinnu­skjal sem ekki verður afhent.

Þá segir í bréf­inu að ráð­herra hafi fundið að því að ekki sé í umsögn­inni rök­stutt sér­stak­lega á grund­velli heild­ar­mats hvers vegna þeir umsækj­endur sem metnir voru hæf­astir séu taldir bera af, en ekki aðrir. Nefndin segir ekki ljóst hvað ráð­herra á við. Fram komi hvaða þættir voru metnir og hvernig umsækj­endur voru taldir hafa komið út í hverjum ein­stökum þætti. Meg­in­á­herslan hafi verið á þrjá stóra þætti, það er dóm­ara­reynslu, reynslu af lög­manns­störfum og stjórn­sýslu­störfum og þessir þættir metnir jafnt. Að auki hafi farið fram sér­stakt sund­ur­greint mat á menntun, fræði­störfum, kennslu og útgáfu. Í þeim sam­an­burði sem fer fram í hverjum þætti felst matið, sem síðan er dregið saman í heild­ar­nið­ur­stöðu.

Dóm­nefndin segir að sam­kvæmt lögum og reglum sé henni falið að ákveða hvaða umsækj­endur séu hæf­astir til að hljóta þau dóm­ara­emb­ætti sem veita á. Hún seg­ist hafa kom­ist að sinni nið­ur­stöðu og um aðra umsækj­endur muni hún ekki fjalla frekar en orðið er í umsögn­inni.

Í bréf­inu er sér­stak­lega vísað í nýfall­inn dóm Hæsta­réttar þar sem umsækj­anda um emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt voru veittar miska­bætur vegna þess að Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra var tal­inn hafa brotið reglur þegar hún vék frá áliti dóm­nefnd­ar­innar varð­andi veit­ingu dóm­ara­emb­ætt­anna. Í dómnum segir að laga­setn­ing um dóm­nefnd­ina hafi haft það að mark­miði að styrkja sjálf­stæði dóm­stóla og auka traust almenn­ings á því að dóm­arar væru óháðir vald­höfum fram­kvæmda­valds. Efn­is­lega sömu reglur hafi verið teknar upp í lög um dóm­stóla, þar sem rann­sókn­ar­skyldu stjórn­sýslu­laga hafi verið að veru­legu leyti létt af ráð­herra við skipun í emb­ætti hér­aðs­dóm­ara og skyldan þess í stað lögð á herðar sjálf­stæðrar og óháðrar dóm­nefndar sem skipuð var með til­liti til þess að tryggt yrði að sér­þekk­ing væri þar fyrir hendi um mat á hæfni umsækj­enda um dóm­ara­emb­ætti.

Guð­laugur fer með málið þar sem Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra telst til þess van­hæf þar sem einn umsækj­enda um emb­ætti hér­aðs­dóm­ara er sá sem hún var talin hafa brotið gegn í áður­nefndum dómi. Sá, Ástráður Har­alds­son hæsta­rétt­ar­lög­maður, fékk dæmdar 700 þús­und krónur í miska­bætur vegna brots dóms­mála­ráð­herra.

Uppfært: Bréf nefnd­ar­innar hefur nú verið birt á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómarar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár